Er að reyna að muna eitthvað sem ég geri annað en að ofnota það sem mér finnst gott eins og ost og sýrðan rjóma... einhverjar hugmyndir?
sunnudagur, desember 07, 2008
Nína Berglind fær sér jarðarberjasultu ofan á spælt egg
Mamma setti líka alltaf sykur ofan á rúgbrauð með smjöri og Stymmi bróðir sinnep ofan á allt, kjötbollur, frans(k)brauð og ekki nóg með það Egils djús nánast óblandaðann til að skola því niður og Stefnir bróðir setti tómatsósu ofan á allt mögulegt. Einu sinni kom ég að Selmu systur þar sem hún var búin að smyrja kokteilsósu ofan á heila Borgarnespizzu svo ég gæti örugglega ekki fengið neitt ;) Sigtryggur vill borða lakkrís með poppinu.....
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
3 ummæli:
haha frabaert!
Stefnir brodir setti lika rjoma ofan a kjotbollur med brunni sosu, sultu, kartoflum og graenum baunum... raudkal var orugglega lika tharna i mixinu einhversstadar.
Thu fekkst ther haframjol eins og thu aettir lifid ad leysa og heilt oststykki med tveimur braudsneidum og settir thetta i orbylgjuna og ast med bestu lyst...
kvedja Selma stora systir
Flott að það eru fleiri en ég með skrýtinn matarsmekk ;) Prófið að fá ykkur rúgbrauð með rauðkáli, steiktu hangikjöti, steiktu eggi og tómatsósu yfir allt...mmmm rosa gott :)
Knús á línuna og gleðilegt ár
Kveðja, Linda
Á þetta bara að vera svona? Aldrei aftur nýjar myndir eða fréttir? Vantar ekki að koma nýjasta meðlim fjölskyldunnar á netið og hvar eru myndir af nýjustu svaðilförum fröken Nínu? Svo vantar myndband af Hjálmari með "Mamma mín er kínverji, pabbi minn er japani og aumingja ég" -showinu, hann er óborganlegur þessi skemmtikraftur!
MOR
Skrifa ummæli