laugardagur, nóvember 29, 2008
fimmtudagur, nóvember 27, 2008
þriðjudagur, nóvember 25, 2008
laugardagur, nóvember 22, 2008
fimmtudagur, nóvember 20, 2008
HlaupaHjálmar
Já það verður ekki af honum tekið þegar hann segist vera íþróttaálfurinn litli guttinn. Hann er íþróttaálfurinn. Vill bara hlaupa allt sem hann fer. Þegar búið er að leggja bílnum og losa beltið spyr hann "Má ég hlaupa" og svo hleypur hann heim að dyrum. Um daginn þurfti ég aldeilis að taka á honum stóra mínum og spretta á eftir honum því hann stakk af og var hlaupinn hálfa leiðina heim til Silju frænku sinnar. Ekki er gaman að fara með honum að kaupa í matinn eða aðrar verslanir því hann stingur bara af, hleypur um alla búðina svo hann heldur mér í þjálfun og þolinmæðin "þjálfast" í leiðinni.
Hann vill ekki vera í fötum nema boxer nærbuxum, því þær eru hlaupanærbuxur, og hlýrabol, svo fer hann í hlaupaskónna sína og alls ekki peysu eða húfu nema það sé hægt að koma honum í skilning um að það sé hlaupapeysa eða hlaupahúfa. Hann á einmitt eitt stykki hlaupapeysu sem er orðin alltof lítil á hann en það er það eina sem virkar. Ég bíð eftir að barnaverndaryfirvöld komi og eigi við mig orð þegar hann er úti hlaupandi svona fáklæddur hér í hverfinu. Ég keypti inniskó á hann um daginn og það er búið að sannfæra hann um að þetta séu hlaupainniskór svo nú er hann alsæll með skónna og hleypur um allt hér inni á þeim.
Það væri gaman að mæla vegalengdina sem hann hleypur á degi hverjum, það myndi örugglega sóma góðum ofurhlaupara.
mánudagur, nóvember 17, 2008
sunnudagur, nóvember 16, 2008
fimmtudagur, nóvember 06, 2008
Diskósveifla eða niðursveifla
Nú er mér bara óglatt. Hvenær sér fyrir endann á þessum leiðinlegu og neikvæðu fréttum? Hvenær getum við farið að hætta að hafa áhyggjur af því að börnin okkar fá ekki að borða hugsanlega í nálægri framtíð? Getum við haldið gleðileg jól? Hvar verðum við um jólin? Hvenær kemur sú sældartíð að maður geti tekið ákvarðanir varðandi framtíðina? Það er ekkert bara frá Íslandi sem slæmu fréttirnar berast svo það er ekki endilega betra ástandið annars staðar ef einhver er að hugsa um landflótta. Vá hvað ég er orðin neikvæð... ekki í mínu eðli en svona aðstæður eru bara til að brjóta mann niður. Í öllu ástandi eru sveiflur svo nú tek ég út mína niðursveiflu og bíð spennt eftir uppsveiflunni. Kannski kemur hún um helgina, margt skemmtilegt framundan, partý, matarboð, skautaferð, afslöppun, útivera, samvera og það mætti telja áfram.
En mikið svakalega sef ég samt vel þessa dagana... ég bara átta mig ekki á þessu...
Góða helgi allir saman
En mikið svakalega sef ég samt vel þessa dagana... ég bara átta mig ekki á þessu...
Góða helgi allir saman
þriðjudagur, nóvember 04, 2008
Nýjar myndir
Það eru komnar nýjar myndir á Flickr fyrir ágúst, september og október. Smella á myndina fyrir neðan Photos hægra megin á síðunni til að skoða.
Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)







