fimmtudagur, október 30, 2008

Doðaleysingar

Doðinn að renna af manni. Skyldi þó ekki vera. Er allavega búin að vera dugleg í dag, baka, elda, spjalla, svara tölvupóstum og alls konar stuð. Er líka búin að kaupa flestar jólagjafirnar og senda þær með fyrstu Íslandsförunum. Skrítið hvernig maður dofnar upp við svona ástand. Margir hér í sama doðanum og lítið um framkvæmdagleði. Nú fer vonandi að sjá fyrir endann á doðanum og ég og við getum farið að hlakka til jólanna og undirbúningsins. Gaman gaman.

Nína Berglind er búin að vera í skólafríi alla vikuna og við skelltum okkur í skemmtigarð í Þýskalandi sem heitir Europapark eða ojopapaak eins og Þjóðverjar bera þetta fram. Vorum tvo heila daga þar og gistum á mjög skemmtilegu fjölskylduhóteli á svæðinu. Mæli eindregið með þessum garði fyrir þá sem eru einhversstaðar nálægt suðvestur Þýskalandi. Svo var farið í fjöldaferð í bíó í gær á High School Musical 3 sem var auðvitað fimm stjörnu mynd ;) Allar skvísurnar mjög glaðar með þetta. Svo er bara skemmtileg helgi framundan, skellum okkur á skauta kannski... orðið ansi langt síðan ég stóð á þeim, kannski get ég það ekki lengur, verð að muna eftir rasspúðanum til vonar og vara.

Góða helgi allir saman

Engin ummæli: