Frumburðurinn orðinn sjö ára. Gaman að líta yfir farinn veg á svona merkum tímamótum. Litla snótin hefur oft reynt á þolrifin hjá foreldrunum. Neitar að fara að sofa, vill leika sér fram á rauða nótt, ef við reyndum að lesa fyrir hana á yngri árum fengum við bara tærnar hennar uppí nefið á okkur og hún sönglaði á meðan en sagðist vera að hlusta. Hún á erfitt með að slaka á og hlýða fyrirmælum, orkan of mikil fyrir hennar litla kropp. Hefur komið foreldrum sínum á óvart með að vera fyrirmyndarnemandi - og þá í þeim skilningi að sitja kyrr og hlusta á kennarann lesa, vera aldrei óþekk en alltaf hlýðin, vilja klára öll verkefni og hafa þau 100% og helst aukaverkefni ef þau bjóðast, að hjálpa samnemendum sínum og svo framvegis. Hér heima er erfitt að fá hana til að ljúka því verkefni að taka til í herberginu sínu eða elda matinn (sem hún fær einstöku sinnum að gera), byrjar að baka pönnukökur en heyrir svo eitthvað skemmtilegt lag og hendir í mig ausunni og biður mig að klára með þeim fyrirmælum að það eigi eftir að búa til N og H úr deiginu, getur ekki sótt skæri uppí herbergi því henni er svo illt í fótunum en dansar við Mamma Mia í klukkutíma og eltir bróður sinn á röndum og vill fara í þykjustuslag.
Henni finnst gaman að spila en getur ekki gert það án þess að breyta reglunum sér í hag og sagði það meira segja um daginn þegar ég var að spila við Hjálmar sem er orðinn ansi lunkinn í Sequence að henni fyndist nú skemmtilegra að svindla til að vinna! Hún getur oftast talað vini sína yfir á sitt band, hvort sem það er til að hún geti unnið í spilum eða fengið að leika með eitthvað ákveðið petshop dýr eða fengið að sitja við bílstjórasætið í gömlu bílunum í Tivolí í Kaupmannahöfn og svo mætti lengi telja. Hún hefur samningshæfileika og er yfirleitt heiðarleg í þessum tilfæringum sínum, það fara fáir súrir frá hennar samningsborði en stundum örlítið snauðari.
Nína er barngóð það verður ekki tekið af henni en stundum þekkir hún ekki takmörkin sín eins og við þurftum að taka á þegar litli bróðir hennar fæddist þegar hún var bara 4 ára en "alfær" að sjá um ungabörn að eigin mati. Hér á hún litla frænku sem hún bara elskar útaf lífinu og vill alltaf vera með, aðeins auðveldara að treysta henni nú en ennþá heldur hún sig meiri og eldri en hún er. Það má segja að ef hún sér ungabarn þá er hún komin með það í fangið og farin að leika við það, syngja eða segja sögu.
Alltaf er stuð í kringum þessa yndislegu stúlku og orkan endalaus, sumir hafa haldið því fram að hún sé "of virk". Ég hef einmitt verið að hugsa þetta uppá síðkastið og hef komist að þeirri niðurstöðu að þessi stórkostlega orka sem hún hefur á eftir að leiða til þess að hún gerir stórkostlega hluti :) Það eru sannarlega fleiri klukkutímar í sólarhringnum hennar en mínum....
föstudagur, september 26, 2008
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
3 ummæli:
Skemmtileg lesning um frumburðinn, innilega til hamingju með hana :)
Haltu nú áfram að skrifa fréttir af ykkur Regína, kíki daglega hvort eitthvað nýtt sé komið (hef svo mikið að gera þessa dagana eða hitt þó :))....dagarnir lengi að líða þegar maður er að bíða eftir að drengurinn komi í heiminn :)
Hafið það sem allra best
Kveðja, Linda
Hi saetust,
Eg taradist bara vid ad lesa thetta! Hun hefur gaman af thvi ad sja thetta thegar hun eldist :)
sakna thin
xSelma stora systir
Falleg skrif. Hlakka til að sjá hvað þú skrifar eftir önnur 7 ár.
Sxx
Skrifa ummæli