Ekki seinna vænna að blogga til að ná inn apríl færslu!! Annars er ég viss um að "áhorfið" hefur dottið talsvert niður ef ekki horfið algjörlega í þessari bloggleti minni.
Það er nú líka mest lítið að frétta. Sigtryggur vinnur og vinnur og vinnur og ég bíð og bíð og bíð eftir vorinu. Eftir trampólín uppsetninguna frægu snjóaði þessi ósköp og ég og börnin dunduðum okkur í snjókasti og snjókallagerð í tvo daga áður en hann hvarf aftur. Síðan þá hefur veðrið verið upp og niður eins og á flestum stöðum en hlýnar alltaf meira inná milli köldu daganna.
Við ákváðum að hitta Eddu og Jón Árna miðja leið milli lúx og köben og Hannover varð fyrir valinu... eða réttara sagt gistum í Gronau í 280 ára gömlu húsi sem átti hug hennar Nínu allan og átti hún erfitt með að átta sig á því að húsið væri ekki að fara að hrynja þó það væri allt svona skakkt. Nú er hún búin að skrifa litla ritgerð um það í skólanum. Ég hélt kannski að fallegi garðurinn eða stórkostlegi dýragarðurinn í Hannover hefði vakið meiri athygli en nei... hallandi húsið var aðalmálið "and it didn foll don" eins og Nína skrifaði. Annars vorum við mest hissa á Gronau, 5600 manna bær sem var steinsofandi þegar við komum um kvöldið á fimmtudaginn en á föstudagsmorguninn þegar við ætluðum að spóka okkur um í þessum eldgamla fallega "smá"bæ þá urðum við að hafa okkur öll við að lenda ekki undir bíl eða vera gengin niður.... "the busiest little town in Germany" algerlega og við forðuðum okkur til Hannover til að fá smá ró :)
Okkur tókst nú samt að fá smá lit í andlitið áður en rigningin byrjaði aftur í gær. Þetta er eiginlega öfugt við Ísland þ.e. að það rignir í miðri viku og góða veðrið kemur um helgar en eins og allir Íslendingar vita er góða veðrið yfirleitt á virkum dögum og leiðinlega veðrið um helgar þegar á að taka grillið fram.
Fegin er ég að hafa ekki verið búin að planta vorblómunum. Stefni á það um helgina loksins og tæta illgresið úr garðinum og slá áður en ég týni Hjálmari.
Varðandi myndirnar þá skammast ég mín auðvitað niðrí tær. Málið er að við erum búin með allt pláss á hörðu diskunum okkar og þurftum aðeins að losa pláss til að geta tekið af vélunum það sem af er árinu. Hitt vandamálið er svo að ég kann ekkert á þetta og ætla að læra þetta af Sigtryggi þegar hann hefur tíma og þá fáið þið alveg nóg af myndum.
Svo ég gleymi ekki aðalmálinu þá var Nína Berglind að taka þátt í vorsýningu í skólanum sínum. Með búningum og frumsömdum lögum/textum og ljósum og öllu. Hún var með nokkrar sameiginlegar línur og svo var dansað og sungið. Skellum inn videói af þessu þegar þið vitið ég get græjað þetta ;)
Gleðilegt sumar allir heima. Hér er enn verið að bíða eftir sumrinu....
þriðjudagur, apríl 29, 2008
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
1 ummæli:
Gleðilegt sumar. Þú ættir kannski að breyta fyrirsögninni, Kom til Køben ...
Sxxx
Skrifa ummæli