Rosalega gott veður í gærmorgun, hálfgert sumarveður en svo skýjaði aftur. Þrátt fyrir það er þetta merki um að vorið sé loksins að koma. Fór einmitt af því tilefni í fyrradag að kaupa þetta risastóra trampólín, gerði mér ekki alveg grein fyrir stærðinni á myndinni á boxinu, dundaði mér við að setja það saman með Nínu og Hjálmari inní stofu og svo kom Sigtryggur heim í kvöldmat og fékk það erfiða verkefni að setja gormana á. Á sunnudagsmorguninn í gær semsagt ætlaði ég svo að rúlla því út um stóra svalahurðaropið en nei trampólínið soldið mikið stærra en að það væri gerlegt og svo ætlaði ég að prufa útidyrahurðina en nei komst ekki útúr stofunni hvernig sem við Nína reyndum, hún er ansi duglegur aðstoðarmaður. Svo það þurfti að búta það í sundur aftur og setja saman en akkúrat þegar Sigtryggur kom heim og við reyndum þetta kom hellidemba og allir rennblautir. Nú er ég búin að setja saman stoðgrindurnar aftur og þá gorma sem ég hef krafta í að setja á og bíð eftir að kraftatröllið komi heim til að klára dæmið. Það fylgdi með öryggisnet svo það þarf enginn að hafa áhyggjur af því að Hjálmar skoppi útaf þegar Nína (eða ég) er að fara heljarstökkin ;)
Svo er bara að fara að planta vorblómunum næstu helgi og fjárfesta í gaskút.
Nína Berglind er nokkurn veginn gróin sára sinna og er bara hress með lífið og tilveruna. Hjálmar farinn að sofa betur og er alger grallari. Breyttist úr smábarni í brjálaðan skæruliða á einum mánuði.
Fórum einmitt til London um páskana til að heimsækja elsku Selmu systur Regínu og fjölskyldu og fengum þetta leiðindaveður. En það er gaman eftirá að rifja upp haglstorminn í Hyde Park og svo nokkuð minna haglél og rok í dýragarðinum nokkrum dögum seinna. Það verður bara betra veður næst þegar við hittumst - á Íslandi í brúðkaupinu hjá Stymma stóra litlabróður og Helgu;) Ekki má heldur gleyma harðsperrunum sem við Selma fengum í handleggina eftir að hafa spilað Wii útí eitt, mínar eru rétt að fara núna. Held ég þurfi að fjárfesta í svona heilsuræktartæki...
mánudagur, mars 31, 2008
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
3 ummæli:
hardsperrur og marbletti eftir ad hafa slegid i hvora adra med 'spadanum' hahaha var aedi ad fa ykkur thratt fyrir vedurfar og brotinn kristal ;)
Vid reynum ad koma i haust einhverntiman vonandi, verdum ad profa trampolinid :)
luv u xxx
Selma stora systir
Elsku systkin Nína Berglind, Hjálmar og mamma og pabbi. Gleðilegt sumar og takk fyrir veturinn sem er að líða. Það er ekki langt síðan snjórinn fór úr Reykjavík, en það er enn hægt að fara á skíði uppi í Bláfjöllum, en sumarið og sólin eru alveg að koma. Er sumarið ekki komið fyrir löngu í Luxemborg? Það verður gaman að sjá ykkur öll í sumar. Bestu sumarkveðjur ÁRNI AFI.
Ég gleymdi þessum vísum ÁRNI AFI.
BRÁÐUM FÆÐAST LÍTIL LÖMB
(Lag: Fyrr var oft í koti kátt)
Bráðum fæðast lítil lömb,
leika sér og hoppa.
Með lítinn munn og litla vömb
lambagrasið þau kroppa.
Við skulum koma og klappa þeim
kvölds og bjartar nætur,
reka þau í húsin heim,
hvít með gula fætur.
Fuglarnir sem flýðu í haust
fara að koma bráðum.
Syngja þeir með sætri raust,
sveifla vængjum báðum.
Við skulum hlægja og heilsa þeim
hjartansglöð og fegin,
þegar þeir koma þreyttir heim
þúsund mílna veginn.
SÓLARGEISLINN
Þú sólargeisli sem gæist inn
og glaður skýst inn um gluggan minn
Mig langar svo að líkjast þér,
og ljósi varpa á hvern sem er,.
LÓAN
Lóan er komin að kveða burt snjóinn
Að kveða burt leiðindi, það getur hún.
Hún hefur sagt mér að senn komi spóinn,
sólskin í dali og blómstur í tún.
Hún hefur sagt mér til syndanna minna,
ég sofi of mikið og vinni ekki hót
hún hefur sagt mér að vaka og vinna
og vonglaður taka nú sumrinu mót.
Bkv ÁRNI AFI
Skrifa ummæli