sunnudagur, febrúar 24, 2008

HjólaNína

Vildi hafa, gæti hafa, skyldi hafa stoppað Nínu áður en hún skall á veggnum á fleygiferð en þá hefði ég þurft að henda honum Hjálmari sem var fastur í stólnum á hjólinu mínu í jörðina og hætta á að hann slasaðist líka. Erfiðar ákvarðanir sem ómögulegt er að taka á þremur sekúndum. Vont að horfa uppá þetta en allt fór betur en á horfðist þó svo að það sé ekki gaman að horfa á barnið sitt skella á hraunuðum steypuvegg andlitið fyrst (þarf að lifa við þá ímynd í marga daga í viðbót býst ég við) en guði sé lof fyrir hjálminn, ég segi ekki meira. Litla fallega stúlkan fékk stóran skurð á hökuna sem þurfti að sauma og nefbrot auk annarra minniháttar hruflna og skráma. Barnaspítalinn hér í lúx stóð sig eins og hetja og núna bíðum við bara eftir að Nína grói sára sinna og bólgan hjaðni á nefinu svo það sé hægt að meta það aftur á þriðjudaginn kemur - hvort það þurfi lagfæringa við... sem mér sýnist ekki sem betur fer.

Nína er auðvitað stærsta hetjan í þessu máli og skellti sér meira að segja í fimleika í gær en fékk að sleppa kollhnísunum, þó það hefði nú verið ;) Hún er mest óánægð með að hún lítur ekki nógu vel út vildi óska þess að hún gæti galdrað gamla andlitið sitt til baka. Ekki gott að vera óþolinmóður í þessum aðstæðum. Hún verður kannski ánægðari þegar marblettirnir breytast úr grænum í fjólubláa því það er einn af uppáhaldslitunum hennar.

Hjálmar hefur sofið illa síðan og erfitt að meta hvort þetta hafi allt saman haft einhver áhrif á hann. Hann auðvitað sá Nínu skella á veggnum og allt blóðið útum allt og panikkið sem fylgdi í nokkrar mínútur á eftir... verst að hann getur ekki tjáð sig um þetta að ráði.

Nú er bara að fara og fjárfesta í nýjum hjálmi fyrir Nínu þar sem hinn er ónýtur og fer beina leið í ruslið og svo einhverjum svakalega flottum fimleikabol í verðlaun fyrir hetjuskapinn :)