sunnudagur, desember 07, 2008

Nína Berglind fær sér jarðarberjasultu ofan á spælt egg

Mamma setti líka alltaf sykur ofan á rúgbrauð með smjöri og Stymmi bróðir sinnep ofan á allt, kjötbollur, frans(k)brauð og ekki nóg með það Egils djús nánast óblandaðann til að skola því niður og Stefnir bróðir setti tómatsósu ofan á allt mögulegt.  Einu sinni kom ég að Selmu systur þar sem hún var búin að smyrja kokteilsósu ofan á heila Borgarnespizzu svo ég gæti örugglega ekki fengið neitt ;)  Sigtryggur vill borða lakkrís með poppinu.....  

Er að reyna að muna eitthvað sem ég geri annað en að ofnota það sem mér finnst gott eins og ost og sýrðan rjóma... einhverjar hugmyndir?

Jolaskemmtun i Strassen

miðvikudagur, desember 03, 2008

þriðjudagur, desember 02, 2008

mánudagur, desember 01, 2008

laugardagur, nóvember 29, 2008

þriðjudagur, nóvember 25, 2008

fimmtudagur, nóvember 20, 2008

HlaupaHjálmar

Já það verður ekki af honum tekið þegar hann segist vera íþróttaálfurinn litli guttinn.  Hann er íþróttaálfurinn.  Vill bara hlaupa allt sem hann fer.  Þegar búið er að leggja bílnum og losa beltið spyr hann "Má ég hlaupa" og svo hleypur hann heim að dyrum.  Um daginn þurfti ég aldeilis að taka á honum stóra mínum og spretta á eftir honum því hann stakk af og var hlaupinn hálfa leiðina heim til Silju frænku sinnar.  Ekki er gaman að fara með honum að kaupa í matinn eða aðrar verslanir því hann stingur bara af, hleypur um alla búðina svo hann heldur mér í þjálfun og þolinmæðin "þjálfast" í leiðinni.

Hann vill ekki vera í fötum nema boxer nærbuxum, því þær eru hlaupanærbuxur, og hlýrabol, svo fer hann í hlaupaskónna sína og alls ekki peysu eða húfu nema það sé hægt að koma honum í skilning um að það sé hlaupapeysa eða hlaupahúfa.  Hann á einmitt eitt stykki hlaupapeysu sem er orðin alltof lítil á hann en það er það eina sem virkar.  Ég bíð eftir að barnaverndaryfirvöld komi og eigi við mig orð þegar hann er úti hlaupandi svona fáklæddur hér í hverfinu. Ég keypti inniskó á hann um daginn og það er búið að sannfæra hann um að þetta séu hlaupainniskór svo nú er hann alsæll með skónna og hleypur um allt hér inni á þeim.

Það væri  gaman að mæla vegalengdina sem hann hleypur á degi hverjum, það myndi örugglega sóma góðum ofurhlaupara.

mánudagur, nóvember 17, 2008

fimmtudagur, nóvember 06, 2008

Diskósveifla eða niðursveifla

Nú er mér bara óglatt. Hvenær sér fyrir endann á þessum leiðinlegu og neikvæðu fréttum? Hvenær getum við farið að hætta að hafa áhyggjur af því að börnin okkar fá ekki að borða hugsanlega í nálægri framtíð? Getum við haldið gleðileg jól? Hvar verðum við um jólin? Hvenær kemur sú sældartíð að maður geti tekið ákvarðanir varðandi framtíðina? Það er ekkert bara frá Íslandi sem slæmu fréttirnar berast svo það er ekki endilega betra ástandið annars staðar ef einhver er að hugsa um landflótta. Vá hvað ég er orðin neikvæð... ekki í mínu eðli en svona aðstæður eru bara til að brjóta mann niður. Í öllu ástandi eru sveiflur svo nú tek ég út mína niðursveiflu og bíð spennt eftir uppsveiflunni. Kannski kemur hún um helgina, margt skemmtilegt framundan, partý, matarboð, skautaferð, afslöppun, útivera, samvera og það mætti telja áfram.

En mikið svakalega sef ég samt vel þessa dagana... ég bara átta mig ekki á þessu...

Góða helgi allir saman

þriðjudagur, nóvember 04, 2008

Nýjar myndir

Það eru komnar nýjar myndir á Flickr fyrir ágúst, september og október.  Smella á myndina fyrir neðan Photos hægra megin á síðunni til að skoða.

fimmtudagur, október 30, 2008

Doðaleysingar

Doðinn að renna af manni. Skyldi þó ekki vera. Er allavega búin að vera dugleg í dag, baka, elda, spjalla, svara tölvupóstum og alls konar stuð. Er líka búin að kaupa flestar jólagjafirnar og senda þær með fyrstu Íslandsförunum. Skrítið hvernig maður dofnar upp við svona ástand. Margir hér í sama doðanum og lítið um framkvæmdagleði. Nú fer vonandi að sjá fyrir endann á doðanum og ég og við getum farið að hlakka til jólanna og undirbúningsins. Gaman gaman.

Nína Berglind er búin að vera í skólafríi alla vikuna og við skelltum okkur í skemmtigarð í Þýskalandi sem heitir Europapark eða ojopapaak eins og Þjóðverjar bera þetta fram. Vorum tvo heila daga þar og gistum á mjög skemmtilegu fjölskylduhóteli á svæðinu. Mæli eindregið með þessum garði fyrir þá sem eru einhversstaðar nálægt suðvestur Þýskalandi. Svo var farið í fjöldaferð í bíó í gær á High School Musical 3 sem var auðvitað fimm stjörnu mynd ;) Allar skvísurnar mjög glaðar með þetta. Svo er bara skemmtileg helgi framundan, skellum okkur á skauta kannski... orðið ansi langt síðan ég stóð á þeim, kannski get ég það ekki lengur, verð að muna eftir rasspúðanum til vonar og vara.

Góða helgi allir saman

föstudagur, október 24, 2008

Af svefni og Nínu Berglindi

Var að lesa í gær um svefnvandamál í uppeldisbiblíunni minni af því engillinn hann Hjálmar er orðinn eitthvað óþekkur með þetta þegar ég rakst á snilldarsetningu sem ég alveg eigna henni Nínu fínu appelsínu...

"Svo eru til þau börn sem þurfa minni svefn en bókin segir okkur og það eru þau börn sem verða forsætisráðherrar, iðnjöfrar eða eitthvað af þessum óþolandi ofurafkastamiklu einstaklinga"(lausl. þýðing)

.... ég vissi það, hún á eftir að bjarga Íslandi ;)

þriðjudagur, október 21, 2008

Rússibanaferð

Púha... búnar að vera ansi fróðlegar síðustu þrjár vikur og misskemmtilegar. Ekki gaman þegar kreditkortinu manns er lokað án aðvörunar af því það vill svo til að maðurinn minn vinnur hjá íslenskum banka sem nota bene er enn starfandi þannig séð og allir enn á launum. Eykur enn meira á óöryggistilfinninguna. Gaman að sjá hvað fólk stendur saman þegar eitthvað bjátar á og allir eru tilbúnir að hjálpa öllum. Ekki gaman að þurfa að velta fyrir sér enn og aftur hvort við eigum að flytja. Gaman að Hjálmar er hættur með bleyju og tekur þannig virkan þátt í sparnaðinum. Ekki gaman að hugsa til þess að Nína Berglind þurfi að kveðja vinkonuhópinn sinn sem er ansi þéttur og skemmtilegur. Gaman hvað haustveðrið er búið að vera yndislegt. Ekki gaman að geta ekki skipulagt neitt í nánustu framtíð fyrir skipulagsfríði eins og mig. Gaman að allir eru hraustir. Gaman að Dagvaktinni síðustu. Gaman að tvö lítil heilbrigð börn hafa bæst við í vinkonuhópnum. Gaman að fylgjast með fólki á Facebook taka hvern dag fyrir sig. Gaman að vera Íslendingur og hafa bein í nefinu. Gaman að lesa sér til um íslenska skólakerfið sem er bara ansi lúnkið og ekki eins slæmt og mig minnti. Þetta verður bara skemmtilegra og skemmtilegra....

laugardagur, október 18, 2008

laugardagur, október 11, 2008

miðvikudagur, október 08, 2008

Að duga eða drepast

Nú er ungamamman komin í fight or flight viðbragðsstöðu. Vernda litlu börnin hvað sem á dynur það er það eina sem skiptir máli þegar fótunum er kippt undan manni svona nokkurn veginn án viðvörunar.

Ég get ekkert verið að ergja mig yfir því af hverju svona fór því það fór svona og nú er að taka á honum stóra sínum og skapa áframhaldandi stöðugt og ástríkt umhverfi fyrir litlu yndin mín. Ég verð eins og fíll þegar á móti blæs og ekkert getur keyrt mig niður og núna er komið að mér að nýta þennan hæfileika :)

Vona bara að fólk finni innra með sér baráttuvilja og bjartsýni og nýti sér það á þessum tímum því það breytir ösku í sólarljós.

laugardagur, september 27, 2008

föstudagur, september 26, 2008

Nína Berglind

Frumburðurinn orðinn sjö ára. Gaman að líta yfir farinn veg á svona merkum tímamótum. Litla snótin hefur oft reynt á þolrifin hjá foreldrunum. Neitar að fara að sofa, vill leika sér fram á rauða nótt, ef við reyndum að lesa fyrir hana á yngri árum fengum við bara tærnar hennar uppí nefið á okkur og hún sönglaði á meðan en sagðist vera að hlusta. Hún á erfitt með að slaka á og hlýða fyrirmælum, orkan of mikil fyrir hennar litla kropp. Hefur komið foreldrum sínum á óvart með að vera fyrirmyndarnemandi - og þá í þeim skilningi að sitja kyrr og hlusta á kennarann lesa, vera aldrei óþekk en alltaf hlýðin, vilja klára öll verkefni og hafa þau 100% og helst aukaverkefni ef þau bjóðast, að hjálpa samnemendum sínum og svo framvegis. Hér heima er erfitt að fá hana til að ljúka því verkefni að taka til í herberginu sínu eða elda matinn (sem hún fær einstöku sinnum að gera), byrjar að baka pönnukökur en heyrir svo eitthvað skemmtilegt lag og hendir í mig ausunni og biður mig að klára með þeim fyrirmælum að það eigi eftir að búa til N og H úr deiginu, getur ekki sótt skæri uppí herbergi því henni er svo illt í fótunum en dansar við Mamma Mia í klukkutíma og eltir bróður sinn á röndum og vill fara í þykjustuslag.

Henni finnst gaman að spila en getur ekki gert það án þess að breyta reglunum sér í hag og sagði það meira segja um daginn þegar ég var að spila við Hjálmar sem er orðinn ansi lunkinn í Sequence að henni fyndist nú skemmtilegra að svindla til að vinna! Hún getur oftast talað vini sína yfir á sitt band, hvort sem það er til að hún geti unnið í spilum eða fengið að leika með eitthvað ákveðið petshop dýr eða fengið að sitja við bílstjórasætið í gömlu bílunum í Tivolí í Kaupmannahöfn og svo mætti lengi telja. Hún hefur samningshæfileika og er yfirleitt heiðarleg í þessum tilfæringum sínum, það fara fáir súrir frá hennar samningsborði en stundum örlítið snauðari.

Nína er barngóð það verður ekki tekið af henni en stundum þekkir hún ekki takmörkin sín eins og við þurftum að taka á þegar litli bróðir hennar fæddist þegar hún var bara 4 ára en "alfær" að sjá um ungabörn að eigin mati. Hér á hún litla frænku sem hún bara elskar útaf lífinu og vill alltaf vera með, aðeins auðveldara að treysta henni nú en ennþá heldur hún sig meiri og eldri en hún er. Það má segja að ef hún sér ungabarn þá er hún komin með það í fangið og farin að leika við það, syngja eða segja sögu.

Alltaf er stuð í kringum þessa yndislegu stúlku og orkan endalaus, sumir hafa haldið því fram að hún sé "of virk". Ég hef einmitt verið að hugsa þetta uppá síðkastið og hef komist að þeirri niðurstöðu að þessi stórkostlega orka sem hún hefur á eftir að leiða til þess að hún gerir stórkostlega hluti :) Það eru sannarlega fleiri klukkutímar í sólarhringnum hennar en mínum....

sunnudagur, september 21, 2008

laugardagur, september 13, 2008

miðvikudagur, september 03, 2008

Myndablogg

Nú hafið þið séð það nýjasta nýtt en það er myndabloggið :) Við sendum myndir úr símanum beint á bloggsíðuna. Hentugt og sniðugt. Þannig að búast má við fleiri færslum en hefur verið ;)

Nú vorum við að fara í gegnum sumarfrísmyndirnar í gær og von bráðar detta þær inná netið. Heilir fjórir mánuðir, standi aðrir sig verr!!!

sunnudagur, ágúst 31, 2008

sunnudagur, ágúst 24, 2008

laugardagur, ágúst 23, 2008

sunnudagur, ágúst 17, 2008

föstudagur, ágúst 15, 2008

fimmtudagur, ágúst 14, 2008

Heima er best

Komin heim eftir rétt rúmlega tveggja mánaða fjarveru. Það er alltaf gott að koma heim.

Þetta var nú meiriháttar ferðasumar. Íslandsdvölin og vinnan skemmtileg og ekki spillti fyrir þetta yndislega veður og allar sundferðirnar. Hjálmar orðin mjög fær í vatninu og heldur að hann sé flugsyndur án kúta og hendir sér útí án viðvörunar.... eins gott að taka aldrei augun af þessum dreng. Svo hoppar hann líka úr sófa eða af tröppum í kollhnís!! Nína Berglind alveg búin að sleppa kútunum og syndir skriðsund og bakskrið og í kafi og allskonar bara.

Kanadaförin var frábær. Misstum reyndar einn dag af því fluginu frá Íslandi til New York seinkaði um 50 mínútur og svo var þrumuveður og JFK lokaði í hálftíma og þar með var tíminn til að ná tengifluginu útrunninn. Sáum framá að þurfa að gista á JFK með börnin þar sem erfitt var að fá hótelherbergi og enginn vildi sjá aumur á okkur fyrr en við prufuðum lúxushótelin svo við höfðum það bara gott á einu slíku í eina nótt og fengum flug daginn eftir í gegnum Kaliforníu af öllum stöðum. Það var nú nokkuð notalegt, sól og fallegar strendur og við gátum farið aðeins út að viðra okkur.

Kamloops nokkuð söm við sig... maður sér smá meiri velmegun á miðbænum og lífstílnum en samt enn gamla góða sveitastemningin og allir jafnfrábærir. Hlökkum til að fá eitthvað af liðinu í heimsókn vonandi sem fyrst.

New York - alltaf skemmtileg. Ótrúlega heillandi og alltaf eitthvað nýtt að sjá en mikið af fólki alls staðar.

Setjum inn myndir við fyrsta tækifæri. Mikið af myndum að fara í gegnum til að velja hverjar eru hæfar til birtingar.

miðvikudagur, ágúst 06, 2008

fimmtudagur, júní 26, 2008

Regína mubla

Það er nú svo furðulegt að þegar maður er kominn í gamla vinnugallann á gamla vinnustaðinn þá heilsa allir eins og maður sé rétt að koma úr sumarfríi!!! Fólk er alveg hissa þegar ég segist hafa verið í burtu í meira en tvö og hálft ár.... svona er ég aðlögunarhæf eða er ég kannski bara eins og gamall sófi sem fólk tekur ekki eftir að er farinn fyrr en hann kemur aftur úr hreinsun?

fimmtudagur, júní 19, 2008

Stuð í Middelfart

Já það flæddi aftur inní kjallarann þegar ég var að skrifa síðustu bloggfærslu en nú á að vera búið að lagfæra vandamálið. Af hverju ætli pípulagningamaðurinn hafi ekki verið kallaður til í fyrra skiptið?

En nú er ég á Íslandi og búin að hafa það náðugt í Danmörku í millitíðinni. Hitti nokkra vini og rölti um gamlar slóðir og svo fórum við Hjálmar til Odense með ömmu Nínu og Rod Stewart var bara alveg frábær. Ekki að sjá á honum (úr fjarlægð a.m.k.) að hann sé 64 ára. Hann var í fullu fjöri og sparkaði meira að segja árituðum fótboltum í áhorfendur og því miður vantaði nokkra sentimetra uppá að Selma næði einum.... oohhhh!
Myndi velja Rod hvaða dag ársins fram yfir Bob Dylan verð ég að viðurkenna úr því sem komið er.

Hjálmar er byrjaður á leikskólanum og er að fíla sig bara nokkuð vel. Hitti þar vinkonu sína sem átti heima í Danmörku á sama tíma og við og hún hefur alveg tekið hann uppá sína arma litla dúllan.

Svo fyrsti vinnudagur á morgun. Eða semi-vinnudagur. Veit ekki hvort ég verð til mikils gagns en það er aldrei að vita nema maður hrökkvi í gírinn við að koma inná deildina og anda að sér gösunum þar ;)

föstudagur, júní 06, 2008

Rigning og reykingar

Nú styttist í ferðalag hjá mér og Hjálmari. Blendnar tilfinningar, gaman að fara til Danmerkur og hitta fólk þar og sjá Rodda kallinn. Leiðinlegt að skilja Nínu og Sigtrygg eftir í svona langan tíma... hmmm hvernig kemur maður sér í svona aðstöðu?

Annars flæddi inní kjallarann hjá okkur um daginn það rigndi svo mikið, ja akkúrat fyrir viku og allt fór á flot. Sem betur fer var skipulagsfríður búin að raða flestum kössum í hillur og allt í þvottahúsinu er nokkra sentimetra yfir gólfinu svo betur fór en á horfðist. Er samt að bögglast við að þurrka nokkrar bækur en það gengur erfiðlega þar sem rakinn er svo mikill hérna og sérstaklega mikill í kjallaranum. Núna er einmitt að rigna svona mikið svo það er bara best að ég skelli mér í kjallarann og setji eitthvað fyrir hurðina inní bílskúrinn svo þetta gerist ekki aftur.

Við höllumst að því að húsvörðurinn í húsinu við hliðina á okkur sem við eigum sameiginlegan bílskúr með sé búinn að fylla öll niðurföll með sigarettustubbum og þess vegna hafi þau ekki haft undan að drenera alla rigninguna... það er ekki eins og það hafi rignt í marga klukkutíma sko!!! Reykingar eru skaðlegar ég fer ekki ofan af því.

Hlakka til að sjá ykkur öll og hafið það gott....

fimmtudagur, maí 22, 2008

Sumarplön

hmmm.... mín bara í stuði! "Alltaf" að blogga :)

Góða veðrið kom með miklum látum en hvarf svo aftur tveim vikum seinna og núna er svona sæmilegasta vorveður bara. Auðvitað langar mig samt aftur í steikina....

Nú styttist í Danmerkurferð hjá mér og Hjálmari... Rod Stewart maður... það verður erfitt að toppa það! Hlakka mikið til að sjá kallinn á sviði þó hann sé búinn að róast ansi mikið. Mamma og Selma koma líka þar sem þetta er afmælisgjöfin hennar mömmu sem hefur haldið uppá Rodda alla tíð og við því alist upp við að horfa á mömmu dansa og syngja við "HOT LEGS" "D'YA THINK I'M SEXY" og fleira sniðugt :)

Fyrir þá sem ekki vita þá hef ég hitt kallinn einu sinni áður... hann var á rölti nálægt Kings Road í London einn laugardagsmorgun fyrir mörgum árum og við Sigtryggur í leigubíl á sama stað. Hann var í grænum jakkafötum með tveggja metra háa ljósku með sér og greinilega enn í stuði frá því kvöldið áður. Maðurinn í bílnum fyrir aftan okkur flautaði og kallaði "HEY ROD" og kallinn labbaði upp að leigubílnum okkar og benti með báðum vísifingrum að okkur og sagði "tjatjatjatja"!!!

Stoppum viku í Danmörku og við Hjálmar ætlum að vera tvo aukadaga í Köben og rifja upp gamlar slóðir, hlakka mikið til.

Svo er það Ísland þar sem húsmóðirin ætlar að skella sér á vinnumarkaðinn í svona eins og einn mánuð til að dusta mesta rykið af hjúkrunarkunnáttunni. Hjálmar fer á leikskóla og það verður spennandi að sjá hvernig hann tekur því... litli mömmustrákurinn minn. Við löbbuðum framhjá leikskóla sem er hérna í götunni um daginn og Hjálmar stoppaði og starði á börnin og horfði svo á mig og skildi ekki af hverju hann var ekki hinum megin við grindverkið. Börnin á leikskólanum flykktust að grindverkinu og reyndu að opna það til að hleypa honum inn því þau voru heldur ekki að skilja málið.

Nína og Sigtryggur mæta svo til landsins í lok júní. Það verður erfitt að vera í burtu frá Nínu í þrjár vikur en þau feðgin hafa gott af því að eyða þessum tíma saman og gera eitthvað skemmtilegt. Amma Anna verður líka hér og svo auðvitað sálufélaginn hún Elín Kolfinna. Það verður lífsreynsla fyrir þær að vera í sundur heila tvo mánuði í sumar.....

Við förum nefnilega til Kanada í lok júlí til að fara í brúðkaup hjá vinum okkar í Kamloops og við erum að deyja úr tilhlökkun.... "oh Canada the land of the free.. the land of you and me.."

Svo verður stoppað hjá góðum vinum í New York á leiðinni til baka og meira að segja hittum Selmu systur þar og hennar fjölskyldu... stuð stuð stuð!!!

En hlakka til að hitta alla á Íslandi eftir bara ekki svo marga daga.. nenni ekki að telja.
Hafið þið tekið eftir hversu mikil tilhlökkun er í gangi hérna í lúx????

mánudagur, maí 12, 2008

Myndir

Myndir myndir myndir myndir myndir myndir myndir myndir

MYNDIR!!!!!

(syngist eins og Batmanlagið)

þriðjudagur, apríl 29, 2008

hmmm... apríl að verða búinn

Ekki seinna vænna að blogga til að ná inn apríl færslu!! Annars er ég viss um að "áhorfið" hefur dottið talsvert niður ef ekki horfið algjörlega í þessari bloggleti minni.

Það er nú líka mest lítið að frétta. Sigtryggur vinnur og vinnur og vinnur og ég bíð og bíð og bíð eftir vorinu. Eftir trampólín uppsetninguna frægu snjóaði þessi ósköp og ég og börnin dunduðum okkur í snjókasti og snjókallagerð í tvo daga áður en hann hvarf aftur. Síðan þá hefur veðrið verið upp og niður eins og á flestum stöðum en hlýnar alltaf meira inná milli köldu daganna.

Við ákváðum að hitta Eddu og Jón Árna miðja leið milli lúx og köben og Hannover varð fyrir valinu... eða réttara sagt gistum í Gronau í 280 ára gömlu húsi sem átti hug hennar Nínu allan og átti hún erfitt með að átta sig á því að húsið væri ekki að fara að hrynja þó það væri allt svona skakkt. Nú er hún búin að skrifa litla ritgerð um það í skólanum. Ég hélt kannski að fallegi garðurinn eða stórkostlegi dýragarðurinn í Hannover hefði vakið meiri athygli en nei... hallandi húsið var aðalmálið "and it didn foll don" eins og Nína skrifaði. Annars vorum við mest hissa á Gronau, 5600 manna bær sem var steinsofandi þegar við komum um kvöldið á fimmtudaginn en á föstudagsmorguninn þegar við ætluðum að spóka okkur um í þessum eldgamla fallega "smá"bæ þá urðum við að hafa okkur öll við að lenda ekki undir bíl eða vera gengin niður.... "the busiest little town in Germany" algerlega og við forðuðum okkur til Hannover til að fá smá ró :)

Okkur tókst nú samt að fá smá lit í andlitið áður en rigningin byrjaði aftur í gær. Þetta er eiginlega öfugt við Ísland þ.e. að það rignir í miðri viku og góða veðrið kemur um helgar en eins og allir Íslendingar vita er góða veðrið yfirleitt á virkum dögum og leiðinlega veðrið um helgar þegar á að taka grillið fram.

Fegin er ég að hafa ekki verið búin að planta vorblómunum. Stefni á það um helgina loksins og tæta illgresið úr garðinum og slá áður en ég týni Hjálmari.

Varðandi myndirnar þá skammast ég mín auðvitað niðrí tær. Málið er að við erum búin með allt pláss á hörðu diskunum okkar og þurftum aðeins að losa pláss til að geta tekið af vélunum það sem af er árinu. Hitt vandamálið er svo að ég kann ekkert á þetta og ætla að læra þetta af Sigtryggi þegar hann hefur tíma og þá fáið þið alveg nóg af myndum.

Svo ég gleymi ekki aðalmálinu þá var Nína Berglind að taka þátt í vorsýningu í skólanum sínum. Með búningum og frumsömdum lögum/textum og ljósum og öllu. Hún var með nokkrar sameiginlegar línur og svo var dansað og sungið. Skellum inn videói af þessu þegar þið vitið ég get græjað þetta ;)

Gleðilegt sumar allir heima. Hér er enn verið að bíða eftir sumrinu....

mánudagur, mars 31, 2008

Það er lóa að vappa um í garðinum mínum :)

Rosalega gott veður í gærmorgun, hálfgert sumarveður en svo skýjaði aftur. Þrátt fyrir það er þetta merki um að vorið sé loksins að koma. Fór einmitt af því tilefni í fyrradag að kaupa þetta risastóra trampólín, gerði mér ekki alveg grein fyrir stærðinni á myndinni á boxinu, dundaði mér við að setja það saman með Nínu og Hjálmari inní stofu og svo kom Sigtryggur heim í kvöldmat og fékk það erfiða verkefni að setja gormana á. Á sunnudagsmorguninn í gær semsagt ætlaði ég svo að rúlla því út um stóra svalahurðaropið en nei trampólínið soldið mikið stærra en að það væri gerlegt og svo ætlaði ég að prufa útidyrahurðina en nei komst ekki útúr stofunni hvernig sem við Nína reyndum, hún er ansi duglegur aðstoðarmaður. Svo það þurfti að búta það í sundur aftur og setja saman en akkúrat þegar Sigtryggur kom heim og við reyndum þetta kom hellidemba og allir rennblautir. Nú er ég búin að setja saman stoðgrindurnar aftur og þá gorma sem ég hef krafta í að setja á og bíð eftir að kraftatröllið komi heim til að klára dæmið. Það fylgdi með öryggisnet svo það þarf enginn að hafa áhyggjur af því að Hjálmar skoppi útaf þegar Nína (eða ég) er að fara heljarstökkin ;)

Svo er bara að fara að planta vorblómunum næstu helgi og fjárfesta í gaskút.

Nína Berglind er nokkurn veginn gróin sára sinna og er bara hress með lífið og tilveruna. Hjálmar farinn að sofa betur og er alger grallari. Breyttist úr smábarni í brjálaðan skæruliða á einum mánuði.

Fórum einmitt til London um páskana til að heimsækja elsku Selmu systur Regínu og fjölskyldu og fengum þetta leiðindaveður. En það er gaman eftirá að rifja upp haglstorminn í Hyde Park og svo nokkuð minna haglél og rok í dýragarðinum nokkrum dögum seinna. Það verður bara betra veður næst þegar við hittumst - á Íslandi í brúðkaupinu hjá Stymma stóra litlabróður og Helgu;) Ekki má heldur gleyma harðsperrunum sem við Selma fengum í handleggina eftir að hafa spilað Wii útí eitt, mínar eru rétt að fara núna. Held ég þurfi að fjárfesta í svona heilsuræktartæki...

sunnudagur, febrúar 24, 2008

HjólaNína

Vildi hafa, gæti hafa, skyldi hafa stoppað Nínu áður en hún skall á veggnum á fleygiferð en þá hefði ég þurft að henda honum Hjálmari sem var fastur í stólnum á hjólinu mínu í jörðina og hætta á að hann slasaðist líka. Erfiðar ákvarðanir sem ómögulegt er að taka á þremur sekúndum. Vont að horfa uppá þetta en allt fór betur en á horfðist þó svo að það sé ekki gaman að horfa á barnið sitt skella á hraunuðum steypuvegg andlitið fyrst (þarf að lifa við þá ímynd í marga daga í viðbót býst ég við) en guði sé lof fyrir hjálminn, ég segi ekki meira. Litla fallega stúlkan fékk stóran skurð á hökuna sem þurfti að sauma og nefbrot auk annarra minniháttar hruflna og skráma. Barnaspítalinn hér í lúx stóð sig eins og hetja og núna bíðum við bara eftir að Nína grói sára sinna og bólgan hjaðni á nefinu svo það sé hægt að meta það aftur á þriðjudaginn kemur - hvort það þurfi lagfæringa við... sem mér sýnist ekki sem betur fer.

Nína er auðvitað stærsta hetjan í þessu máli og skellti sér meira að segja í fimleika í gær en fékk að sleppa kollhnísunum, þó það hefði nú verið ;) Hún er mest óánægð með að hún lítur ekki nógu vel út vildi óska þess að hún gæti galdrað gamla andlitið sitt til baka. Ekki gott að vera óþolinmóður í þessum aðstæðum. Hún verður kannski ánægðari þegar marblettirnir breytast úr grænum í fjólubláa því það er einn af uppáhaldslitunum hennar.

Hjálmar hefur sofið illa síðan og erfitt að meta hvort þetta hafi allt saman haft einhver áhrif á hann. Hann auðvitað sá Nínu skella á veggnum og allt blóðið útum allt og panikkið sem fylgdi í nokkrar mínútur á eftir... verst að hann getur ekki tjáð sig um þetta að ráði.

Nú er bara að fara og fjárfesta í nýjum hjálmi fyrir Nínu þar sem hinn er ónýtur og fer beina leið í ruslið og svo einhverjum svakalega flottum fimleikabol í verðlaun fyrir hetjuskapinn :)

föstudagur, janúar 25, 2008

Stiklur

Kominn tími á smá skrif. Mikið búið að vera að gerast en samt ekki svo mikið :) Erum nokkurn veginn búin að koma okkur fyrir. Vantar fataskáp í andyrið, hillur í þvottahús og þvottavél á leiðinni en þetta eru smáhlutir miðað við allt hitt.

Nína Berglind stendur sig eins og hetja í skólanum, farin að tala ensku og skilur mest allt. Hún virðist ætla að aðlagast vel eins og hennar er von og vísa.

Hjálmar enn að dúllast með mömmu sinni og það er bara notalegt. Hugsa að hann fari í leikskóla bara með vorinu... kemur allt í ljós síðar.

Fórum til Danmerkur yfir jólin, fyrst Odense og það var mjög notalegt. Borðað og spilað og farið í gönguferðir og bæjarferðir og á róló og horft á sjónvarpið og legið í leti.

Svo var farið til að ganga frá íbúðinni og skila bílnum í Kaupmannahöfn og það var allt saman misskemmtilegt og meira um það síðar en fór vel á endanum. Nú bíð ég eftir að við fáum trygginguna endurgreidda og þá verður allt vitlaust :)

Svo var komið hingað aftur til Lúx og allt að komast í fastar skorður hægt og rólega. Veðrið búið að vera ansi óútreiknanlegt, rok og rigning, kalt og bjart, brjálað rok aftur og bara soldið eins og á Íslandi... vantar samt snjóinn.

Talandi um snjó þá erum við á leiðinni til Íslands eftir tæpa viku og erum að vona flestum Íslendingum til skaprauna (nema jeppafólki) að snjórinn haldi allavega þangað til svo maður geti nú kannski skellt sér í bláfjöll eina dagstund eða svo.... hef ekki farið í Bláfjöll í tugi ára - hræðilegt að geta sagt þetta svona.

En auf wiedersehen, au revoir, addi og allt það frá Lúx og hlakka til að hitta sem flesta á Íslandi


Fyrir utan þessa framtakssemi í mér þá var Sigtryggur ansi framtakssamur og það eru komin heil 3 ný albúm á myndasíðuna... geri aðrir betur