Það verður ekki af þeim skafið flutningamönnunum sem tóku dótið okkar og fluttu það til Lúxemborgar síðustu helgi. Þurfti í fyrsta lagi að bíða lengi eftir þeim og þegar þeir á endanum komu á föstudaginn voru þeir svo þreyttir eftir flutninga dagsins að ég var ekki alveg viss hvort ég ætti að treysta þeim fyrir verkinu en svo komu tveir til viðbótar og allt gekk þetta á endanum. Fyrir utan auðvitað að þeir stálu fyrir mína hönd nokkrum hlutum úr geymslunni sem ólánsamir nágrannar mínir geymdu úti á geymslugangi þó svo að ég hafi stoppað þá tvisvar sinnum með sama sjónvarpsskápinn og skíðabogana!!! En við erum komin með skúffur í geymsluna sem er ágætt :)
Þegar við svo mættum í húsið okkar á mánudagskvöldið áttum við ekki til orð... hvurslags vinnubrögð eru þetta spyr ég. Þegar maður kemur inní húsið er smá gangur og svo stofan nokkuð stór beint áfram. Þeir hentu dótinu inní stofuna hér og þar nota bene ekkert skipulega og svo þegar plássið var uppurið þar inni fylltu þeir uppí hurðaropið (sem er tvöfalt) með kössunum og settu hjólin okkar og skenk fyrir framan svo þetta var eins og að bjarga húsgögnunum sínum úr hruninni kolanámu. Svo fyrst eftir að við náðum dýnunum okkar úr prísundinni gátum við lagt okkar þreyttu hausa á koddana eftir tæplega 9 tíma keyrslu.
miðvikudagur, desember 05, 2007
Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)