mánudagur, nóvember 26, 2007

Whúha....

... fórum á "Gala"frumsýningu á myndinni hans Hjálmars "Daisy Diamond" á fimmtudaginn og ég verð að segja hreint út að mér fannst þetta vera ansi mikið á grensunni klám/artí fartí! Það heyrðist vel þegar það fór óþægindakliður um salinn í ákveðnum senum. Hún fær mjög góða dóma hérna þessi mynd og margir frægustu leikarar Danmerkur sem ganga ansi langt fyrir þennan leikstjóra en Hjálmar fær ekki að sjá hana fyrr en hann er orðinn 20 ára um leið og ég kaupi fyrsta bjórinn hans!! Þetta er ekki fyrir viðkvæmar sálir og ef einhver er forvitinn og vill sjá kappann á hvíta tjaldinu þá er allt í lagi að ganga út þegar barnasenurnar eru búnar því þetta verður bara hard core klám eftir það. Við höfum verið að grínast með það að nú eru Snæfríður og Hjálmar búin að leika saman í klámmynd og þá getum við strikað það útaf listanum yfir það sem við þurfum að hafa áhyggjur af í framtíðinni.

En seriously folks ekki fara að sjá þessa mynd nema þið hafið áhuga á að láta vekja með ykkur óþæginda/viðbjóðstilfinningu. Þetta er vond mynd og þær eru svo sem nauðsynlegar því það er margt í þessum heimi sem er vont en ég vil frekar að myndir veki með mér hlátur og gleði en ekki viðbjóð ;/ Enda fórum við skötuhjúin heim hálfsjokkeruð og horfðum á Friends til að ná viðbjóðnum úr hausnum fyrir svefninn.

4 ummæli:

Nafnlaus sagði...

obb bobb... þá veit maður það!
Ætla samt að fara og sjá þessa mynd ef hún kemur hingað, bara til að geta sagt "leikaranum" frá því síðar. Hvernig er það - eru engar myndir teknar þessa dagana?
Smúss á nebbana mína.

Nafnlaus sagði...

ekki viss um að þessi mynd henti mér - get ekki horft á neitt svona
kv margrét

Nafnlaus sagði...

Loksins blogg:-). Maður verður nú að sjá sjarmörinn í myndinni en fer kannski að ráðum þínum og slekk fljótlega. Gangi ykkur vel í flutningunum! Knús og kossar, Dísa

Nafnlaus sagði...

Ég er alla veganna búinn að setja "bann" á ömmur og afa Snæfríðar. Danir eru bara svo miklir perrar og ekki einu sinni inn við beinið heldur bara mjög opinskátt. Í einni greininni sem ég las stóð að ef foreldrar hefðu ekki pössun fyrir ungana þá bara að taka þá með..... jeminn ég fékk sjokk. Held ég sé að verða tepra með aldrinum.