... fórum á "Gala"frumsýningu á myndinni hans Hjálmars "Daisy Diamond" á fimmtudaginn og ég verð að segja hreint út að mér fannst þetta vera ansi mikið á grensunni klám/artí fartí! Það heyrðist vel þegar það fór óþægindakliður um salinn í ákveðnum senum. Hún fær mjög góða dóma hérna þessi mynd og margir frægustu leikarar Danmerkur sem ganga ansi langt fyrir þennan leikstjóra en Hjálmar fær ekki að sjá hana fyrr en hann er orðinn 20 ára um leið og ég kaupi fyrsta bjórinn hans!! Þetta er ekki fyrir viðkvæmar sálir og ef einhver er forvitinn og vill sjá kappann á hvíta tjaldinu þá er allt í lagi að ganga út þegar barnasenurnar eru búnar því þetta verður bara hard core klám eftir það. Við höfum verið að grínast með það að nú eru Snæfríður og Hjálmar búin að leika saman í klámmynd og þá getum við strikað það útaf listanum yfir það sem við þurfum að hafa áhyggjur af í framtíðinni.
En seriously folks ekki fara að sjá þessa mynd nema þið hafið áhuga á að láta vekja með ykkur óþæginda/viðbjóðstilfinningu. Þetta er vond mynd og þær eru svo sem nauðsynlegar því það er margt í þessum heimi sem er vont en ég vil frekar að myndir veki með mér hlátur og gleði en ekki viðbjóð ;/ Enda fórum við skötuhjúin heim hálfsjokkeruð og horfðum á Friends til að ná viðbjóðnum úr hausnum fyrir svefninn.
Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)