þriðjudagur, október 23, 2007

Smáborgarasögur

Hovsa.... er ekki kominn október? Mikið líður tíminn hratt þegar mikið er um að vera.

Varð vitni að dópsölu/kaupum í fyrsta skiptið, mjög pent! Gaman að rölta með barnavagninn á leið í sund á sunnudegi og sjá svona :)

Á leiðinni heim sama sunnudaginn sátum við Nína Berglind saman í strætóinum og það var einhver ólukkulega útlítandi maður að gefa henni auga alltaf og henni leið eitthvað óþægilega með þetta svo ég hélt bara utan um hana og sagði að þetta væri allt í lagi. Maðurinn fer út á stoppustöðinni á undan okkar og reynir að grípa í hendina á Nínu á leiðinni út en þegar það misheppnast sleikir hann stöngina þar sem Nína var með hendina!!! Og ég var að segja henni að það væri allt í lagi...... þetta var sko ekki í lagi!!!!!

Daginn eftir var ég að hjóla í vefnaðarvöruverslun og hún er á torgi og þar má auðvitað ekki hjóla. Vill svo skemmtilega til að hún er við hliðina á lögreglustöð. Það hjóla allir á þessu torgi... ég meina hvað er málið.... allavega þá mæti ég einkennisklæddum lögregluþjóni og óeinkennisklæddum (geri ég ráð fyrir miðað við viðbrögðin), þessi einkennisklæddi brosir við mér og ég fer með annan fótinn af og læt mig renna þá verður hinn óeinkennisklæddi laganna vörður sem var að tala í símann by the way svona lítið reiður og öskrar á mig "DU CYKLER PÅ FORTOVET!!!!!!" Ég sný mér við og fer af hjólinu og segi ertu að "tala" við mig? þá verður hann enn reiðari og öskrar enn hærra "DU CYKLER PÅ FORTOVET!!!!!!" Ég sagði þá bara allt í lagi og fór af hjólinu. Slapp með skrekkinn að þurfa að borga þennan 510 kall í sekt en í staðinn var ég í tilfinningalegu áfalli.


Nokkrar skemmtilegar smásögur af "stór"borgarlífinu hér í Kaupmannahöfn. Það er kannski bara ágætt að við séum að flytja í sveitina í Lúxemborg ;)