miðvikudagur, ágúst 22, 2007

Alvara lífsins tekin við á ný

Jæja þá er ég búin að fara í atvinnuviðtalið og fékk ekki vinnuna en er mjög fegin að vera búin að fara í eitt stykki viðtal þá veit ég við hverju ég á að búast næst. Þær voru allavega mjög almennilegar en ég held að það hái mér mest að hafa ekki unnið hérna áður. Hef heyrt nokkrar sögur af fólki sem hefur sótt um fullt af vinnum og ekkert fengið en svo þegar það fær fyrstu vinnuna þá fara hjólin að snúast. Eins og atvinnurekendur séu hræddir við að ráða útlendinga í fyrsta starfið en svo ekkert mál þegar einhver annar hefur gert það. En ég hef unnið eina vakt það hlýtur að telja ;)
Er búin að sækja um aðra vinnu nú þegar og bíð eftir upphringingu - vonandi :) Best að vera bjartsýn.

Nína Berglind stendur sig eins og hetja í öllu í kringum skólann, sprettur upp klukkan 7 á morgnana (sem við héldum að yrði erfiðasti parturinn fyrir svefnpurkuna okkar) og klæðir sig og borðar og setur á sig skólatöskuna áður en við getum sagt góðan daginn.... spurning hvað þessi spenningur endist lengi. Svo vill hún vera mætt klukkan 10 mínútur í 8 þó skólinn byrji ekki fyrr en átta en þessar tíu mínútur eru fyrir foreldra til að ræða við kennarann ef þarf. Hún á eftir að verða súpersamviskusöm erum við búin að spá. Hún ætti að hafa það frá okkur báðum. Ég var súpersamviskusöm sem barn og Sigtryggur sem fullorðinn - góð blanda :)

Danskan hennar er á sínum stað en hún var mest hrædd um að vera búin að gleyma henni þar sem hún var svo lengi á Íslandi og byrjaði aftur að tala enskuna við frænku sína frá Englandi. En hún er syngjandi og trallandi hér allan daginn "Pixelineeeee, vi skal til Pixieland, vi skal grihine og lege alle med...."

Hjálmar er orðinn soldið meiri mömmustrákur, ekki eins gott að skilja við hann á morgnana en hann skemmtir sér vel það sem eftir er dagsins og það er gott að vita. Hann er núna með alveg svakalega kúlu á enninu, sú stærsta hingað til (vonandi sú stærsta ever). Datt á hurðakarm í sumarhúsinu um helgina og svo á "fína" marmarann hérna í garðinum í gær. Hann er alltaf að koma við hana og segja áávvv og svo brosir hann bara til okkar með glettni í augunum. Hann er ekki mikið að gera drama úr þessu eins og sumir sem við þekkjum en hann er að læra af henni samt. Sparkar stundum í eitthvað og hleypur svo til okkar og vill að við kyssum á "bágtið" :)

1 ummæli:

Aslaug sagði...

Frábærar nýjar myndir. Trúi varla að þú hafir farið í sjóinn við stendur Danmerkur Regína - var þetta ekki sick kalt???
Þeir fara svo líklega bráðum að hringja bleyjukallarnir með boð sem þú getur ekki hafnað :)hahah
Bestu kveðjur frá okkur í skerjó til ykkar á S5 2tv.