Mikill gestagangur búinn að vera og í nokkrum tilfellum farið með gesti á flugvöllinn og aðrir sóttir. Nú eru síðustu gestirnir hjá okkur í bili og Nína Berglind farin til Íslands alein með Elvu Cailin frænku sinni sem er einu ári yngri! Þetta gekk eins og í sögu og mín kona vissi alveg nákvæmlega hvert hún var að fara og hvernig átti að gera hlutina - hún er náttlega svo vön þessi pæja :)
Núna er hún í stelpuferð í sveitinni með ömmu Nínu og fleiri frænkum.
Á meðan er afskaplega hljótt hérna hjá okkur og Hjálmar er að vinna í því að bæta upp skortinn á látunum.... ekki mjög erfitt fyrir hann þar sem hann er háværasta barn í heimi eins og við höfum fengið að vita :)
Fórum til Odense á afmælisdaginn hans Sigtryggs með Selmu systur og hennar börnum til að heimsækja Stymma bróður og fjölskyldu sem eru nýflutt þangað. Mjög gaman að kíkja í sveitina í einn dag og fá kökur og góðan mat í skemmtilegum félagsskap. Svolítið erfitt að keyra tilbaka þar sem ég var nokkuð nálægt því að sofna undir stýri. Hef aldrei lent í þessu áður - en heim komumst við Hjálmar heilu og höldnu. Afgangurinn af liðinu var í öðrum bíl, kannski þess vegna sem ég átti erfitt með að halda mér vakandi :/
Veðrið í gær sló svo öll met - þrumuveður og stormur og mesta rigning sem ég hef séð hér í Danmörku, slagaði hátt í rigninguna í Frakklandi í fyrrasumar en stóð yfir í mun styttri tíma og svo haglél í lokin - hvað er að gerast með veðrið hér í Evrópu?!
Að lokum ein klaufaleg saga af yours truly. Var að sækja um vinnu hér á Ríkisspítalanum, vaktalaus vinna og allt bara ídealt fyrir mig. Vandaði mig svakalega við umsóknina, afritaði leyfin mín tvö og einkunnir og prófskírteini og meðmælabréf og CV og skrifaði svo nokkrar línur með um sjálfa mig eins og Danir vilja hafa það og sendi í pósti í fyrradag. Vaknaði svo í gærmorgun við vondan draum og kallaði á Sigtrygg "ÉG GLEYMDI AÐ SENDA ALLAR KONTAKTUPPLÝSINGAR MEÐ UMSÓKNINNI!!!!" Svo ég settist aftur niður og skrifaði annað bréf og lét fylgja með í þetta sinn símanúmer, heimilisfang og netfang og setti í póst :)
laugardagur, júlí 28, 2007
Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)