fimmtudagur, júní 28, 2007

Pearl Jam, Justin, skylmingar og óveður

Vá hvað það er búið að vera mikið að gera.

Fólki rignir hér inn í Kaupmannahöfn í stuttar og lengri ferðir. Svo eru búnar að vera sumarhátíðir í gamla leikskólanum hennar Nínu og frístundaheimilinu hennar nýja. Grill og lautarferðir á meðan veðrið var stórkostlegt. Ekki svo mikið um það núna þar sem það rignir eitthvað flesta daga. Erum búin að vera dugleg að fara á tónleika. Justin Timberlake - stelpuferð í leðjubað og gufu og lunch og dinner og svo JT svakalega gaman. Damien Rice sló í gegn líka en bestu tónleikarnir voru núna á þriðjudaginn.... OMG segi ég nú bara - Pearl Jam í allri sinni dýrð í fyrsta skipti í Danmörku síðan harmleikurinn átti sér stað á Roskilde þar sem 9 mann létu lífið og þeir lögðu sko allt í tónleikana og það var svo gaman. Ég og Sigtryggur náðum að troða okkur fremst og berja gömlu goðin okkar augum og ekki spillti fyrir að ég náði í eitt stykki McCreedy gítarnögl fyrir gítarnördið :) Svo hjóluðum við heim kófsveitt með eyrnasuð. Verð að segja að þetta eru með bestu ef ekki bestu tónleikar sem ég hef farið á.... liggja á svipaðri línu og þegar ég fór að sjá Weezer á pínkulitlum tónleikastað í Osló hér um árið þegar þeir voru uppá sitt besta.

Fór líka að sjá hann Bödda frænda minn keppa á norðurlandamótinu í skylmingum í Odense í fyrradag. Hann var rosaflottur og endaði á því að taka bronsverðlaunin í sínum aldursflokki yngri en 13 ára semsagt. Gaman að fylgjast með sporti sem ekki er fjallað mikið um og fáir æfa. Þó var alveg slatti af Íslendingum þarna, eiginlega meirihluti - gaman að því. Virðulegt sport og Íslendingum veitir ekki af smá virðuleika :)

Að lokum - fórum til Marielyst í gær til að hitta vini okkar sem voru í sumarhúsi þar og þvílíkt og annað eins. Ágætis veður þegar við lögðum af stað, búið að stytta upp eftir svakalega rigningu og aðeins að glitta í sól en eftir því sem við keyrðum lengra því meira bættist í vindinn og rigninguna og okkur var hætt að standa á sama. Ég er með harðsperrur í handleggjunum eftir að hafa rembst við að halda bílnum á veginum. Þurftum svo að stoppa í einhverri geðveikri umferðarteppu rétt hjá Farø brúnni yfir á Falster og hringdum hingað og þangað til að komast að því hvað væri í gangi og þá var brúin lokuð vegna veðurs en sem betur fer stuttu seinna fóru þeir að hleypa fólksbílum yfir á meðan hjólhýsi og vöruflutningabílar þurftu að raða sér upp í vegakantinum og bíða eftir að lægði. Þegar við svo komum loksins til Marielyst eftir að hafa fengið slatta af laufblöðum og trjágreinum í bílinn fengum við þær fréttir að þetta væri versta óveður á Falster í 30 ár. Það sem maður leggur ekki á sig fyrir góðan mat í góðra vina hópi og smá sequence :)

p.s. börnin hafa það gott og bíða spennt eftir að komast í sumarfrí

laugardagur, júní 02, 2007

Hún er tannlaus greyið ...


Nína Berglind var rosalega ánægð í gær þegar hún missti seinni framtönnina. Hún missti fyrri framtönnina fyrir 10 dögum síðan og nú eru þær báðar farnar.