mánudagur, maí 28, 2007

Vorlokapistill

Sumarið komið og við á fullu að njóta þess. Erum alltaf eitthvað úti. Mjög þægilegt hérna í hverfinu sem við erum í núna. Fullt af rólóvöllum og görðum og alltaf eitthvað hægt að gera. Ekki spillir fyrir að hafa svona margar búðir og kaffihús til að velja úr líka :)
Hlökkum mikið til að fá fyrsta sumargestinn í næstu viku. Svo eru alltaf fleiri að bætast í hópinn sem ætla að kíkja til Köben í sumar og það lítur út fyrir að það verði partí á hverju kvöldi....

Ég fór að vinna um daginn og líkaði bara vel. Soldið erfitt að koma svona inn sem afleysingamanneskja og kunna ekkert á tölvukerfin hjá spítulunum og svo ekki nógu góða "chitchat" dönsku. En það er allt að koma finnst mér. Hér í húsinu erum við nánast í öllum íbúðunum á sama aldri og með ung börn og erum oft að spjalla, svo vorum við uppí sveit í gær hjá vinnufélaga hans Sigtryggs henni Åse og manninum hennar og þau voru imponeruð yfir því að við skiptum ekki yfir í enskuna innan hálftíma heldur vorum bara allan daginn í dönskunni. Mér fannst það voða gaman. Sigtryggur er líka allur að koma til og skilur alltaf meira og meira.

Nína Berglind er byrjuð á "Fritten" eins og hún kallar það og þetta er voðalega spennandi. Hún er soldið feimin en þetta tekur smátíma. Hún er mjög ánægð með að vera þarna og það er svo gott fólk að vinna á þessum stað svo ég er líka ánægð. Hef verið að fara með hana seint og sækja snemma og hún finnur öryggi í því. Ég er svo þakklát fyrir að geta gefið mér tíma í þetta og þurfa ekki að henda henni frá mér grátandi. Eftir að hún byrjaði þarna er orðið svo spennandi að spila allskyns spil þannig að ég er búin að kaupa eitt fyrir hana og auglýsi eftir öðru sem ég finn ekki því dótabúðin sem það fékkst í er lokuð. Það heitir Thinkfun ef einhver sér þetta - á Íslandi kannski.... er svona strategíu spil fyrir einn. Nína er orðin mjög flink í því og á einni viku er hún farin frá beginner uppí advanced - klár stelpa.

Hjálmar orðinn stór STRÁKUR svo ekki sé meira sagt. Farinn að lemja og rífa í hárið á systur sinni og hendir öllu mögulegu og ómögulegu frá sér og sumu niður af svölunum. Svo keypti ég lítið "racer" hjól fyrir hann um daginn og hann þeysist um á þessu eins og elding. Hann hefur langað í þetta svo lengi og er í sjöunda himni yfir að eiga sjálfur eitt. Getur núna hætt að stelast á annarra manna hjól útá róló og bara hvar sem er :)

Svo brunnum við hjónaleysin allhressilega um daginn við að horfa á maraþonhlauparana koma í mark og vonum að þetta sé fyrsti og síðasti sólbruninn þetta árið. Erum útmökuð í sólarvörn þessa dagana til að lenda ekki í þessu aftur.

1 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Takk fyrir síðast, væri alveg til í að koma aftur út í sumarið en það er sennilega á leiðinni hingað til okkar næstu daga - alltaf gaman að lesa bloggið ykkar! hafið það sem best - Jöldugróf