Nú er komið vorveður aftur eftir nokkra yndislega daga í sumarveðri. Nú er bara að vona að svona tíð komi aftur af og til það sem eftir er af vorinu.
Nína Berglind er að fara að hætta á leikskólanum... hún er orðin svo stór þessi stelpa. Byrjar á frístundaheimilinu 16. maí með bekknum sem hún verður í í haust þegar skólinn byrjar. Mjög sniðugt fyrirkomulag. Þá ná þau að kynnast og mynda vinabönd yfir sumarið og það verður ekki eins ógnvekjandi að byrja í skólanum. Veit ekki alveg hvernig Nína Berglind tekur því að skilja við hana Selmu vinkonu sína en þær geta alltaf hist þar sem við erum orðin næstum nágrannar.
Ég er ekki alveg að fíla þessi vinnumál. Er að komast að því að ég er með svo sértæka reynslu að það er ekki mikið að gera fyrir mig sem íhlaupahjúkka. Núna er því stefnan tekin á Ríkisspítalann og athuga hvort það er einhver möguleiki að fá dagvinnu þar og engar helgar eða helgidaga. Sá reyndar eina auglýsingu sem gæti hentað mér og ég þeim.
Svo er bara tónleikaruna framundan - gaman gaman. Fórum á Bob Dylan fyrir páska og það var svona gaman að sjá kappann en ekki meira en það. Svo er það Cold War Kids í maí og Damien Rice og Pearl Jam í júní alveg geggjað. Endum svo rununa á Roskilde festival í byrjun júlí og þá er komið sumarfrí. Vantar reyndar pössun fyrir Roskilde hátíðina og auglýsi eftir því hér með. Einhvern sem langar að koma til Kaupmannahafnar í byrjun júlí að passa tvo engla??
miðvikudagur, apríl 18, 2007
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
Engin ummæli:
Skrifa ummæli