Konan sem ég elska að hata. Í þarsíðasta skipti sem ég fór að heimsækja hana langaði mig að slá hana utanundir en þá sagði hún mér að í næsta skipti ætlaði hún að hvíla grindina og vöðvana þar í kring og leggja meiri áherslu á herðarnar og hálsinn. Þegar ég heyrði þetta hætti ég við að segja henni upp. Hélt að hún fyndi nú ekkert eins slæmt og þarna niðri og að ég gæti notið þess að liggja á bekknum hennar til tilbreytingar, en hún hefur töfraputta þessi kona. Hún finnur ALLT - sem auðvitað gerir hana að góðum nuddara. Ætli ég verði ekki líka að viðurkenna að mér líður svo miklu betur í skrokknum svo eitthvað er hún að gera rétt. Hún er auðvitað alveg frábær, það er ekki hlaupið að því að losna við svona krankleika svo ég verð bara að kyngja þessu og fara svo á fullt í líkamsræktina til að styrkja þessa vöðva sem hún er búin að losa um spennuna í. Ég verð líka að undirbúa mig vel ef ég á að geta gengið með fleiri börn.
Grindargliðnun er ekkert grín ;)
mánudagur, mars 05, 2007
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
2 ummæli:
Hvað ætlarðu sem sagt að ganga með mörg í viðbót, híhí? Vona að þetta lagist allt saman!
Við Thor vorum að skoða myndböndin. Hann vildi bara sjá myndbönd með Hjálmari því hann hatar stelpur!! Þvílíkir strákastælar. Við skoðuðum samt öll myndböndin og fannst þau mjög skemmtileg.
Vona að þessi kona geti lagað þín mein og að þú fáir hjúkrunarleyfið þitt fljótt.
Bestu kveðjur frá Íslandi.
Skrifa ummæli