í nýja húsið loksins. Þetta hafa verið langdregnustu flutningar sem ég og mín fjölskylda hefur staðið í og hafa þeir verið margir. Frá því við Sigtryggur fórum að vera saman höfum við flutt - skipt um heimili/verið í millibilsástandi - 11 sinnum að þessum flutningum meðtöldum og þar af Nína Berglind 6 sinnum á sinni næstum 6 ára ævi. Ég held fast í vonina að hér verðum við í að minnsta kosti tvö ár ég bið ekki um meira. Þarf að halda ró í huga og kropp og njóta þess að vera í núinu og hér á Skanderborggade númer 5. Það leggst allavega vel í okkur. Hér höfum við sofið vel frá fyrstu nóttu og getum losað okkur við alla kassa úr íbúðinni eftir nákvæmlega 1 og 1/2 viku því þá fáum við geymsluna okkar heila en ekki hálfa.
Hjálmar er himinlifandi - hleypur í hringi gegnum eldhúsið inní stofu og finnst skemmtilegast þegar stóra systir eltir hann eða hleypur á móti honum til að bregða honum. Þá er mikið hlegið hér á bæ.
Heimasíminn er ekki lengur við lýði svo það má jarða það númer.
Bíðum svo bara spennt eftir fyrstu gestunum sem koma rétt eftir páska :)
fimmtudagur, mars 22, 2007
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
6 ummæli:
Til hamingju með nýja hreiðrið.
Viltu Regína senda póstfangið ykkar. Þakka Íslandsförunum fyrir síðast og bestu kveðjur til ykkar allra. Afi
Hlökkum til að koma einhvern tímann í heimsókn í nýju íbúðina. Þar sem þið vonist til að vera þarna a.m.k. í tvö ár eruð þið nú sennilega ekki á heimleið á næstunni:-(. Við verðum bara dugleg að koma til Köben! Þökkum Nínu Berglindi fyrir síðast. Gaman að fá að hafa hana. Knús úr Raufarseli.
Sakna ykkar eiginlega meira af því að vita að þið eruð flutt í húsið "okkar" þarna úti. Hefði verið svo gaman að vera í kommúnu með ykkur þarna... en svona er þetta.
Segi bara eins og Dísa við verðum bara dugleg að heimsækja ykkur til Köben. Fer nú að koma tími á verslunarferð með allan þennan krakkaskara sem ég á orðið :)
Hafið það gott í dönsku vori.
Gleðilega páska vinir,
Vonandi hafið þið það gott um páskana eins og við. Thor þurfti að vísu að heimsækja slysó í fyrsta skipti og láta líma saman á sér hökuna í gær.
Hlökkum til að sjá ykkur þegar við sjáum ykkur :)
Til lukku með hlaupabrautina herra Hjálmar! Loksins hægt að hlaupa í hringi með stóru systur sem er fljótust að hlaupa af öllum sem ég þekki, en þú nærð henni bráðum!
Knus og kys til hele familien - og tak for sidst - Nína,appelsína og Sigtryggur
Nafnlaus er amma Nína sem kann ekki á svona græjur!
Skrifa ummæli