í nýja húsið loksins. Þetta hafa verið langdregnustu flutningar sem ég og mín fjölskylda hefur staðið í og hafa þeir verið margir. Frá því við Sigtryggur fórum að vera saman höfum við flutt - skipt um heimili/verið í millibilsástandi - 11 sinnum að þessum flutningum meðtöldum og þar af Nína Berglind 6 sinnum á sinni næstum 6 ára ævi. Ég held fast í vonina að hér verðum við í að minnsta kosti tvö ár ég bið ekki um meira. Þarf að halda ró í huga og kropp og njóta þess að vera í núinu og hér á Skanderborggade númer 5. Það leggst allavega vel í okkur. Hér höfum við sofið vel frá fyrstu nóttu og getum losað okkur við alla kassa úr íbúðinni eftir nákvæmlega 1 og 1/2 viku því þá fáum við geymsluna okkar heila en ekki hálfa.
Hjálmar er himinlifandi - hleypur í hringi gegnum eldhúsið inní stofu og finnst skemmtilegast þegar stóra systir eltir hann eða hleypur á móti honum til að bregða honum. Þá er mikið hlegið hér á bæ.
Heimasíminn er ekki lengur við lýði svo það má jarða það númer.
Bíðum svo bara spennt eftir fyrstu gestunum sem koma rétt eftir páska :)
fimmtudagur, mars 22, 2007
mánudagur, mars 05, 2007
Helenlea
Konan sem ég elska að hata. Í þarsíðasta skipti sem ég fór að heimsækja hana langaði mig að slá hana utanundir en þá sagði hún mér að í næsta skipti ætlaði hún að hvíla grindina og vöðvana þar í kring og leggja meiri áherslu á herðarnar og hálsinn. Þegar ég heyrði þetta hætti ég við að segja henni upp. Hélt að hún fyndi nú ekkert eins slæmt og þarna niðri og að ég gæti notið þess að liggja á bekknum hennar til tilbreytingar, en hún hefur töfraputta þessi kona. Hún finnur ALLT - sem auðvitað gerir hana að góðum nuddara. Ætli ég verði ekki líka að viðurkenna að mér líður svo miklu betur í skrokknum svo eitthvað er hún að gera rétt. Hún er auðvitað alveg frábær, það er ekki hlaupið að því að losna við svona krankleika svo ég verð bara að kyngja þessu og fara svo á fullt í líkamsræktina til að styrkja þessa vöðva sem hún er búin að losa um spennuna í. Ég verð líka að undirbúa mig vel ef ég á að geta gengið með fleiri börn.
Grindargliðnun er ekkert grín ;)
Grindargliðnun er ekkert grín ;)
Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)