mánudagur, febrúar 12, 2007

Fréttaskot

Er þetta ekki orðið soldið gamalt - að hafa "gleðileg jól" efsta bloggið.

Heilmikið að gerast annars. Búið að gefa út trailer fyrir "Daisy Diamond" myndina hans Hjálmars og það er hægt að fara inná myndasíðuna okkar og finna hann þar í febrúar settinu og líka "freeze frame" af senunni þar sem sést framan í drenginn :) Þetta lítur út fyrir að ætla að verða spennandi mynd þó þetta myndbrot gefi afskaplega lítið upp ;)

Erum líka búin að setja inn nýjar myndir.

Fundum nýja íbúð á föstudaginn og það er þvílíkur léttir þar sem við þurfum að fara úr þessari 1. apríl. Var farin að herða mig uppí það að búa með börnin í bílnum. Fáum hina íbúðina 1. mars svo það er nógur tími til að flytja. Þurfum ekki að skipta um hverfi sem er plús en missum garðinn og leiksvæðið hérna fyrir utan... fáum í staðinn tvær stórar svalir svo þetta jafnast út. Gestaaðstaðan verður ekki eins góð og hún hefur verið en það er allt hægt ef viljinn er fyrir hendi.

Hjálmar fær sérherbergi loksins. Ágæt tímasetning þar sem ljúflingsdrengurinn er allt í einu kominn með eigin vilja og skellir sér niður á gólfið organdi ef við leyfum honum ekki eitthvað. Tímarnir breytast og börnin með.

Nína Berglind alltaf hress, með sinn eigin vilja líka auðvitað. Svakalega ánægð í leikskólanum og þau ánægð með hana og danskan hennar orðin mjög góð. Svo á hún að byrja í skóla í haust og er farin að hlakka mikið til. Talar ekki um annað og hvað lífið breytist mikið þegar hún verður sex ára: Þá getur hún farið í fimleika (ekki fyrr), hún ætlar að vakna snemma og klæða sig alveg sjálf, vera fljót að borða morgunmatinn, fara ein í dansskólann sinn í strætó og svona gæti ég haldið áfram. Ég vona bara að hún standi við eitthvað af þessu, þó ekki þetta með að fara ein í strætó ;/

Ég er búin að sækja um vinnu. Á skrifstofu sem sendir hjúkrunarfræðinga í afleysingar á nokkra spítala hér í nágrenninu. Nú bíð ég spennt eftir fyrsta símtalinu... og soldið kvíðin. Með þessu móti get ég stjórnað vinnutímanum og auðvitað bað ég bara um dagvaktir og enga helgarvinnu - komin með nóg af því. Hef unnið vaktavinnu frá því ég hætti í unglingavinnunni og kominn tími á breytingar.

Svo bíðum við spennt eftir vorinu. Ótrúlegt hvað maður hefur lítið þol. Veturinn kom um helgina og nú nennum við ekki meir!

6 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Þetta eru góðar fréttir, að fá nýja íbúð á grónum slóðum, á réttum tíma betur gat þetta ekki gengið. Er Hjálmar okkar farinn að hafa meiningar? Honum væri illa í ætt skotið ef svo væri ekki, og Nína hress og ánægð. Sigtryggur minn og Regína, gangi ykkur allt í haginn hér eftir sem hingað til. Bestu kveðjur ykkar Árni afi

Nafnlaus sagði...

Linda
Jæja loksins eitthvað nýtt að lesa og skoða :) Gaman hvað gengur vel hjá ykkur í danaveldi, allt gott að frétta af klakanum :)
Kveðja, Linda hollsystir ;)

Aslaug sagði...

Gaman gaman að fá nýtt blogg.
Okkur barst pakki frá ykkur í dag - takk kærlega fyrir dömuna.
Sakna þess að verða ekki granni ykkar bráðum en við skemmtun okkur bara í Prag og kannski fleiri stöðum í sumar í staðinn :)
Bestu kveðjur.

Nafnlaus sagði...

Gaman að heyra af ykkur. Alltaf gaman að flytja ;-)
Þá er bara að fara að versla sér eins og eina til tvær slæður, gangi þér vel í nýja djobbinu. Þú lætur heyra frá þér síðar.
Bestu kveðjur af Gjörginu (þar sem ávallt ríkir sama stuðið ;-) )

Unknown sagði...

Til hamingju með íbúðina, gott að heyra að þið séuð ekki búandi í bíl. Ég vona að ég nái að kíkja á ykkur sem fyrst... Það er orðið alltof langt síðan ég kom til Danmerkur. Hafið það gott!!!
Kv. Árni Már

Nafnlaus sagði...

Halló allir! Til hamingju með nýju íbúðina! Gaman að sjá nýjar myndir og yndislegt að sjá hvað Nína og Hjálmar eru ófeimin við að´"pósa"! Það væri líka gaman að sjá nýjar hreyfimyndir af mömmu og pabba, getur pabbinn líka haldið skeiðum á höfðinu? Túrílú!
amma Nína