Fékk þær upplýsingar að ég þarf að sækja um löggildingu á hjúkrunarprófinu mínu áður en ég get farið að vinna. Getur tekið allt að þrjá mánuði!!! að fá það í gegn. Einhversstaðar klingja samt bjöllur í hausnum á mér að ég hafi vitað þetta. Það var örugglega einhver af þessum hjúkkum sem ég þekki og vinna hér eða hafa unnið hér sem voru búnar að segja mér frá þessu en í allri brjóstabarnaþokunni hurfu þessar upplýsingar og ég sit eftir með sárt ennið. Vonandi er bara verið að setja væntingarmarkmið svo fólk verði ekki brjálað ef það fær ekki löggildingu innan við þrjá mánuði og að þetta verði tilbúið í viku 11 :) Ég er svo bjartsýn á að stundum geti hlutirnir hérna bara gertst 1, 2 og 10.... Hringdi samt í skrifstofuna sem ég sótti um vinnu hjá og þær voru þvílíkt leiðar yfir þessu og langaði svo að fá mig í vinnu strax... sem er auðvitað gott fyrir sjálfsálitið svona þegar maður gerir ekki mikið annað en að hugsa um rassinn á sér og heimilið og börnin ;)
Annars er nóg framundan. Fáum lyklana að nýju íbúðinni á morgun og getum byrjað að flytja í rólegheitunum. Mjög skemmtilegur leigusamningurinn þar... sendi útdrátt úr honum seinna.
Allir hressir og sprækir að öðru leyti.
Og loksins verið að hirða ruslið eftir verkfallið.
miðvikudagur, febrúar 28, 2007
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
Engin ummæli:
Skrifa ummæli