Það verður ekki af þeim skafið flutningamönnunum sem tóku dótið okkar og fluttu það til Lúxemborgar síðustu helgi. Þurfti í fyrsta lagi að bíða lengi eftir þeim og þegar þeir á endanum komu á föstudaginn voru þeir svo þreyttir eftir flutninga dagsins að ég var ekki alveg viss hvort ég ætti að treysta þeim fyrir verkinu en svo komu tveir til viðbótar og allt gekk þetta á endanum. Fyrir utan auðvitað að þeir stálu fyrir mína hönd nokkrum hlutum úr geymslunni sem ólánsamir nágrannar mínir geymdu úti á geymslugangi þó svo að ég hafi stoppað þá tvisvar sinnum með sama sjónvarpsskápinn og skíðabogana!!! En við erum komin með skúffur í geymsluna sem er ágætt :)
Þegar við svo mættum í húsið okkar á mánudagskvöldið áttum við ekki til orð... hvurslags vinnubrögð eru þetta spyr ég. Þegar maður kemur inní húsið er smá gangur og svo stofan nokkuð stór beint áfram. Þeir hentu dótinu inní stofuna hér og þar nota bene ekkert skipulega og svo þegar plássið var uppurið þar inni fylltu þeir uppí hurðaropið (sem er tvöfalt) með kössunum og settu hjólin okkar og skenk fyrir framan svo þetta var eins og að bjarga húsgögnunum sínum úr hruninni kolanámu. Svo fyrst eftir að við náðum dýnunum okkar úr prísundinni gátum við lagt okkar þreyttu hausa á koddana eftir tæplega 9 tíma keyrslu.
miðvikudagur, desember 05, 2007
mánudagur, nóvember 26, 2007
Whúha....
... fórum á "Gala"frumsýningu á myndinni hans Hjálmars "Daisy Diamond" á fimmtudaginn og ég verð að segja hreint út að mér fannst þetta vera ansi mikið á grensunni klám/artí fartí! Það heyrðist vel þegar það fór óþægindakliður um salinn í ákveðnum senum. Hún fær mjög góða dóma hérna þessi mynd og margir frægustu leikarar Danmerkur sem ganga ansi langt fyrir þennan leikstjóra en Hjálmar fær ekki að sjá hana fyrr en hann er orðinn 20 ára um leið og ég kaupi fyrsta bjórinn hans!! Þetta er ekki fyrir viðkvæmar sálir og ef einhver er forvitinn og vill sjá kappann á hvíta tjaldinu þá er allt í lagi að ganga út þegar barnasenurnar eru búnar því þetta verður bara hard core klám eftir það. Við höfum verið að grínast með það að nú eru Snæfríður og Hjálmar búin að leika saman í klámmynd og þá getum við strikað það útaf listanum yfir það sem við þurfum að hafa áhyggjur af í framtíðinni.
En seriously folks ekki fara að sjá þessa mynd nema þið hafið áhuga á að láta vekja með ykkur óþæginda/viðbjóðstilfinningu. Þetta er vond mynd og þær eru svo sem nauðsynlegar því það er margt í þessum heimi sem er vont en ég vil frekar að myndir veki með mér hlátur og gleði en ekki viðbjóð ;/ Enda fórum við skötuhjúin heim hálfsjokkeruð og horfðum á Friends til að ná viðbjóðnum úr hausnum fyrir svefninn.

þriðjudagur, október 23, 2007
Smáborgarasögur
Hovsa.... er ekki kominn október? Mikið líður tíminn hratt þegar mikið er um að vera.
Varð vitni að dópsölu/kaupum í fyrsta skiptið, mjög pent! Gaman að rölta með barnavagninn á leið í sund á sunnudegi og sjá svona :)
Á leiðinni heim sama sunnudaginn sátum við Nína Berglind saman í strætóinum og það var einhver ólukkulega útlítandi maður að gefa henni auga alltaf og henni leið eitthvað óþægilega með þetta svo ég hélt bara utan um hana og sagði að þetta væri allt í lagi. Maðurinn fer út á stoppustöðinni á undan okkar og reynir að grípa í hendina á Nínu á leiðinni út en þegar það misheppnast sleikir hann stöngina þar sem Nína var með hendina!!! Og ég var að segja henni að það væri allt í lagi...... þetta var sko ekki í lagi!!!!!
Daginn eftir var ég að hjóla í vefnaðarvöruverslun og hún er á torgi og þar má auðvitað ekki hjóla. Vill svo skemmtilega til að hún er við hliðina á lögreglustöð. Það hjóla allir á þessu torgi... ég meina hvað er málið.... allavega þá mæti ég einkennisklæddum lögregluþjóni og óeinkennisklæddum (geri ég ráð fyrir miðað við viðbrögðin), þessi einkennisklæddi brosir við mér og ég fer með annan fótinn af og læt mig renna þá verður hinn óeinkennisklæddi laganna vörður sem var að tala í símann by the way svona lítið reiður og öskrar á mig "DU CYKLER PÅ FORTOVET!!!!!!" Ég sný mér við og fer af hjólinu og segi ertu að "tala" við mig? þá verður hann enn reiðari og öskrar enn hærra "DU CYKLER PÅ FORTOVET!!!!!!" Ég sagði þá bara allt í lagi og fór af hjólinu. Slapp með skrekkinn að þurfa að borga þennan 510 kall í sekt en í staðinn var ég í tilfinningalegu áfalli.
Nokkrar skemmtilegar smásögur af "stór"borgarlífinu hér í Kaupmannahöfn. Það er kannski bara ágætt að við séum að flytja í sveitina í Lúxemborg ;)

þriðjudagur, september 25, 2007
Nína Berglind 6 ára töffaradama og fleiri fréttir
Nú er Nína Berglind orðin 6 ára skvísa. Hélt upp á afmælið sitt á afmælisdaginn, sunnudag. Henni fannst "alveg rosalega gaman" og var "alveg svakalega glöð" með daginn. Við vorum líka svo heppin þar sem við héldum afmælið útí garðinum hérna að sólin braust fram og hitinn fór uppí 20° akkúrat þegar gesti bar að garði :) Nína Berglind var aftur á móti engan veginn ánægð með ratleikinn minn því þau voru svo fljót að finna útúr öllum vísbendingunum svo ég læt hana gera næsta leik. Maður nær ekki að fylgjast með hvað þau eru orðin klár þessi börn.
Hjálmar átti sínar stundir í afmælinu, réðst á öll börnin sem voru svo góð að mæta og dró þau niður í jörðina, sló þau, kýldi þau eða hrinti, meira að segja var hann að abbast uppá einn sjö ára! Nú held ég að við verðum að tilkynna hvort Hjálmar verður viðstaddur þegar við bjóðum fólki með börnin sín til okkar því aumingja angarnir bera ör á sálinni eftir þessi ósköp. Hvernig á maður að aga svona lítinn skæruliða sem er svona mikill sjarmör, ha? Einhver góð ráð þarna úti?
Á föstudaginn var tók ég þátt í að hindra að fólk kæmist inn á leikskólann hans Hjálmars af því Kaupmannarhafnarkommúna var búin að boða 250 milljón króna (danskra) niðurskurð á leikskólum og frístundaheimilum og fleiru þrátt fyrir að kommúnan skili hagnaði, ég meina hvaða kommúna sem er í plús fer að skera svona svakalega niður á þessum stað? En allavega þá urðu foreldrar svakalega reiðir og skipulögðu alls konar mótmæli og það var fullt í gangi og fullt af fólki sem mætti á þessa fundi og göngur og pedagógar hótuðu verkfalli og í einni svipan var þessi niðurskurður kominn niðrí 0 krónur danskar. Vá ég hef nú skrifað mig á marga undirskriftarlistana á Íslandi og það hefur aldrei skilað neinum árangri... við ættum kannski að taka upp mótmælastíl Dananna. En það er gaman að sjá að maður hefur eitthvað að segja, ég hef ekki upplifað það sérstaklega sem Íslendingur. En svo er spurning hvort þeir (stjórnmálamennirnir) geri þetta bara að gamni sínu til að létta sér stundir því þeir gerðu þetta í fyrra líka - hótuðu stórfelldum niðurskurði í skólakerfinu og kennarar fóru í verkfall í 1 dag og þá var allt tekið til baka.
Atvinnuviðtal númer tvö á morgun. Það verður gaman. Átti að fara á föstudaginn en fékk bréfið svo seint og það var stílað á alter egóið mitt Camillu svo ég var ekki viss hvað ég átti að gera en við erum búnar að leysa úr þessu ég og deildarstjórinn á þessari deild og þetta átti ekki að fara til Camillu heldur til Regínu sem er gott því Camilla veit ekkert um hjúkrun :)

laugardagur, september 15, 2007
Ný video og myndir
Við erum búin að setja inn myndir fyrir ágúst og september mánuð. Einnig höfum við sett inn fullt af nýjum video-um.
miðvikudagur, september 05, 2007
Snakker du dansk?
Engin vinna enn... ég held áfram að leita þýðir fátt annað.
Tók stöðupróf áðan í dönsku til að reyna að komast á eitthvað námskeið... turns out að ég er of góð í dönsku til að fara á námskeið! Smá búst fyrir sjálfsálitið en samt ekki, er einhvern veginn milli steins og sleggju, þarf að æfa mig að tala dönsku og geri það ekki nema ég umgangist dani, sem ég myndi gera ef ég fengi vinnu.... skrípaleikur.

miðvikudagur, ágúst 22, 2007
Alvara lífsins tekin við á ný
Jæja þá er ég búin að fara í atvinnuviðtalið og fékk ekki vinnuna en er mjög fegin að vera búin að fara í eitt stykki viðtal þá veit ég við hverju ég á að búast næst. Þær voru allavega mjög almennilegar en ég held að það hái mér mest að hafa ekki unnið hérna áður. Hef heyrt nokkrar sögur af fólki sem hefur sótt um fullt af vinnum og ekkert fengið en svo þegar það fær fyrstu vinnuna þá fara hjólin að snúast. Eins og atvinnurekendur séu hræddir við að ráða útlendinga í fyrsta starfið en svo ekkert mál þegar einhver annar hefur gert það. En ég hef unnið eina vakt það hlýtur að telja ;)
Er búin að sækja um aðra vinnu nú þegar og bíð eftir upphringingu - vonandi :) Best að vera bjartsýn.
Nína Berglind stendur sig eins og hetja í öllu í kringum skólann, sprettur upp klukkan 7 á morgnana (sem við héldum að yrði erfiðasti parturinn fyrir svefnpurkuna okkar) og klæðir sig og borðar og setur á sig skólatöskuna áður en við getum sagt góðan daginn.... spurning hvað þessi spenningur endist lengi. Svo vill hún vera mætt klukkan 10 mínútur í 8 þó skólinn byrji ekki fyrr en átta en þessar tíu mínútur eru fyrir foreldra til að ræða við kennarann ef þarf. Hún á eftir að verða súpersamviskusöm erum við búin að spá. Hún ætti að hafa það frá okkur báðum. Ég var súpersamviskusöm sem barn og Sigtryggur sem fullorðinn - góð blanda :)
Danskan hennar er á sínum stað en hún var mest hrædd um að vera búin að gleyma henni þar sem hún var svo lengi á Íslandi og byrjaði aftur að tala enskuna við frænku sína frá Englandi. En hún er syngjandi og trallandi hér allan daginn "Pixelineeeee, vi skal til Pixieland, vi skal grihine og lege alle med...."
Hjálmar er orðinn soldið meiri mömmustrákur, ekki eins gott að skilja við hann á morgnana en hann skemmtir sér vel það sem eftir er dagsins og það er gott að vita. Hann er núna með alveg svakalega kúlu á enninu, sú stærsta hingað til (vonandi sú stærsta ever). Datt á hurðakarm í sumarhúsinu um helgina og svo á "fína" marmarann hérna í garðinum í gær. Hann er alltaf að koma við hana og segja áávvv og svo brosir hann bara til okkar með glettni í augunum. Hann er ekki mikið að gera drama úr þessu eins og sumir sem við þekkjum en hann er að læra af henni samt. Sparkar stundum í eitthvað og hleypur svo til okkar og vill að við kyssum á "bágtið" :)

mánudagur, ágúst 20, 2007
Fyrsti skóladagurinn
laugardagur, júlí 28, 2007
Gestagangur og klaufaskapur
Mikill gestagangur búinn að vera og í nokkrum tilfellum farið með gesti á flugvöllinn og aðrir sóttir. Nú eru síðustu gestirnir hjá okkur í bili og Nína Berglind farin til Íslands alein með Elvu Cailin frænku sinni sem er einu ári yngri! Þetta gekk eins og í sögu og mín kona vissi alveg nákvæmlega hvert hún var að fara og hvernig átti að gera hlutina - hún er náttlega svo vön þessi pæja :)
Núna er hún í stelpuferð í sveitinni með ömmu Nínu og fleiri frænkum.
Á meðan er afskaplega hljótt hérna hjá okkur og Hjálmar er að vinna í því að bæta upp skortinn á látunum.... ekki mjög erfitt fyrir hann þar sem hann er háværasta barn í heimi eins og við höfum fengið að vita :)
Fórum til Odense á afmælisdaginn hans Sigtryggs með Selmu systur og hennar börnum til að heimsækja Stymma bróður og fjölskyldu sem eru nýflutt þangað. Mjög gaman að kíkja í sveitina í einn dag og fá kökur og góðan mat í skemmtilegum félagsskap. Svolítið erfitt að keyra tilbaka þar sem ég var nokkuð nálægt því að sofna undir stýri. Hef aldrei lent í þessu áður - en heim komumst við Hjálmar heilu og höldnu. Afgangurinn af liðinu var í öðrum bíl, kannski þess vegna sem ég átti erfitt með að halda mér vakandi :/
Veðrið í gær sló svo öll met - þrumuveður og stormur og mesta rigning sem ég hef séð hér í Danmörku, slagaði hátt í rigninguna í Frakklandi í fyrrasumar en stóð yfir í mun styttri tíma og svo haglél í lokin - hvað er að gerast með veðrið hér í Evrópu?!
Að lokum ein klaufaleg saga af yours truly. Var að sækja um vinnu hér á Ríkisspítalanum, vaktalaus vinna og allt bara ídealt fyrir mig. Vandaði mig svakalega við umsóknina, afritaði leyfin mín tvö og einkunnir og prófskírteini og meðmælabréf og CV og skrifaði svo nokkrar línur með um sjálfa mig eins og Danir vilja hafa það og sendi í pósti í fyrradag. Vaknaði svo í gærmorgun við vondan draum og kallaði á Sigtrygg "ÉG GLEYMDI AÐ SENDA ALLAR KONTAKTUPPLÝSINGAR MEÐ UMSÓKNINNI!!!!" Svo ég settist aftur niður og skrifaði annað bréf og lét fylgja með í þetta sinn símanúmer, heimilisfang og netfang og setti í póst :)

fimmtudagur, júní 28, 2007
Pearl Jam, Justin, skylmingar og óveður
Vá hvað það er búið að vera mikið að gera.
Fólki rignir hér inn í Kaupmannahöfn í stuttar og lengri ferðir. Svo eru búnar að vera sumarhátíðir í gamla leikskólanum hennar Nínu og frístundaheimilinu hennar nýja. Grill og lautarferðir á meðan veðrið var stórkostlegt. Ekki svo mikið um það núna þar sem það rignir eitthvað flesta daga. Erum búin að vera dugleg að fara á tónleika. Justin Timberlake - stelpuferð í leðjubað og gufu og lunch og dinner og svo JT svakalega gaman. Damien Rice sló í gegn líka en bestu tónleikarnir voru núna á þriðjudaginn.... OMG segi ég nú bara - Pearl Jam í allri sinni dýrð í fyrsta skipti í Danmörku síðan harmleikurinn átti sér stað á Roskilde þar sem 9 mann létu lífið og þeir lögðu sko allt í tónleikana og það var svo gaman. Ég og Sigtryggur náðum að troða okkur fremst og berja gömlu goðin okkar augum og ekki spillti fyrir að ég náði í eitt stykki McCreedy gítarnögl fyrir gítarnördið :) Svo hjóluðum við heim kófsveitt með eyrnasuð. Verð að segja að þetta eru með bestu ef ekki bestu tónleikar sem ég hef farið á.... liggja á svipaðri línu og þegar ég fór að sjá Weezer á pínkulitlum tónleikastað í Osló hér um árið þegar þeir voru uppá sitt besta.
Fór líka að sjá hann Bödda frænda minn keppa á norðurlandamótinu í skylmingum í Odense í fyrradag. Hann var rosaflottur og endaði á því að taka bronsverðlaunin í sínum aldursflokki yngri en 13 ára semsagt. Gaman að fylgjast með sporti sem ekki er fjallað mikið um og fáir æfa. Þó var alveg slatti af Íslendingum þarna, eiginlega meirihluti - gaman að því. Virðulegt sport og Íslendingum veitir ekki af smá virðuleika :)
Að lokum - fórum til Marielyst í gær til að hitta vini okkar sem voru í sumarhúsi þar og þvílíkt og annað eins. Ágætis veður þegar við lögðum af stað, búið að stytta upp eftir svakalega rigningu og aðeins að glitta í sól en eftir því sem við keyrðum lengra því meira bættist í vindinn og rigninguna og okkur var hætt að standa á sama. Ég er með harðsperrur í handleggjunum eftir að hafa rembst við að halda bílnum á veginum. Þurftum svo að stoppa í einhverri geðveikri umferðarteppu rétt hjá Farø brúnni yfir á Falster og hringdum hingað og þangað til að komast að því hvað væri í gangi og þá var brúin lokuð vegna veðurs en sem betur fer stuttu seinna fóru þeir að hleypa fólksbílum yfir á meðan hjólhýsi og vöruflutningabílar þurftu að raða sér upp í vegakantinum og bíða eftir að lægði. Þegar við svo komum loksins til Marielyst eftir að hafa fengið slatta af laufblöðum og trjágreinum í bílinn fengum við þær fréttir að þetta væri versta óveður á Falster í 30 ár. Það sem maður leggur ekki á sig fyrir góðan mat í góðra vina hópi og smá sequence :)
p.s. börnin hafa það gott og bíða spennt eftir að komast í sumarfrí

laugardagur, júní 02, 2007
Hún er tannlaus greyið ...
fimmtudagur, maí 31, 2007
"MAMMA ÚA KÚKA"
...fyrsta 3ja orða setningin hans Hjálmars sögð við hátíðlegt tækifæri og benti á rassinn á sér í leiðinni :) Flottur strákur.
mánudagur, maí 28, 2007
Vorlokapistill
Sumarið komið og við á fullu að njóta þess. Erum alltaf eitthvað úti. Mjög þægilegt hérna í hverfinu sem við erum í núna. Fullt af rólóvöllum og görðum og alltaf eitthvað hægt að gera. Ekki spillir fyrir að hafa svona margar búðir og kaffihús til að velja úr líka :)
Hlökkum mikið til að fá fyrsta sumargestinn í næstu viku. Svo eru alltaf fleiri að bætast í hópinn sem ætla að kíkja til Köben í sumar og það lítur út fyrir að það verði partí á hverju kvöldi....
Ég fór að vinna um daginn og líkaði bara vel. Soldið erfitt að koma svona inn sem afleysingamanneskja og kunna ekkert á tölvukerfin hjá spítulunum og svo ekki nógu góða "chitchat" dönsku. En það er allt að koma finnst mér. Hér í húsinu erum við nánast í öllum íbúðunum á sama aldri og með ung börn og erum oft að spjalla, svo vorum við uppí sveit í gær hjá vinnufélaga hans Sigtryggs henni Åse og manninum hennar og þau voru imponeruð yfir því að við skiptum ekki yfir í enskuna innan hálftíma heldur vorum bara allan daginn í dönskunni. Mér fannst það voða gaman. Sigtryggur er líka allur að koma til og skilur alltaf meira og meira.
Nína Berglind er byrjuð á "Fritten" eins og hún kallar það og þetta er voðalega spennandi. Hún er soldið feimin en þetta tekur smátíma. Hún er mjög ánægð með að vera þarna og það er svo gott fólk að vinna á þessum stað svo ég er líka ánægð. Hef verið að fara með hana seint og sækja snemma og hún finnur öryggi í því. Ég er svo þakklát fyrir að geta gefið mér tíma í þetta og þurfa ekki að henda henni frá mér grátandi. Eftir að hún byrjaði þarna er orðið svo spennandi að spila allskyns spil þannig að ég er búin að kaupa eitt fyrir hana og auglýsi eftir öðru sem ég finn ekki því dótabúðin sem það fékkst í er lokuð. Það heitir Thinkfun ef einhver sér þetta - á Íslandi kannski.... er svona strategíu spil fyrir einn. Nína er orðin mjög flink í því og á einni viku er hún farin frá beginner uppí advanced - klár stelpa.
Hjálmar orðinn stór STRÁKUR svo ekki sé meira sagt. Farinn að lemja og rífa í hárið á systur sinni og hendir öllu mögulegu og ómögulegu frá sér og sumu niður af svölunum. Svo keypti ég lítið "racer" hjól fyrir hann um daginn og hann þeysist um á þessu eins og elding. Hann hefur langað í þetta svo lengi og er í sjöunda himni yfir að eiga sjálfur eitt. Getur núna hætt að stelast á annarra manna hjól útá róló og bara hvar sem er :)
Svo brunnum við hjónaleysin allhressilega um daginn við að horfa á maraþonhlauparana koma í mark og vonum að þetta sé fyrsti og síðasti sólbruninn þetta árið. Erum útmökuð í sólarvörn þessa dagana til að lenda ekki í þessu aftur.

miðvikudagur, maí 23, 2007
Nýjar myndir og video
Höfum sett nýjar myndir og video á síðuna okkar. Nokkrar myndir fóru í Apríl mánuð en flestar í Maí.
miðvikudagur, apríl 18, 2007
Vor í lofti
Nú er komið vorveður aftur eftir nokkra yndislega daga í sumarveðri. Nú er bara að vona að svona tíð komi aftur af og til það sem eftir er af vorinu.
Nína Berglind er að fara að hætta á leikskólanum... hún er orðin svo stór þessi stelpa. Byrjar á frístundaheimilinu 16. maí með bekknum sem hún verður í í haust þegar skólinn byrjar. Mjög sniðugt fyrirkomulag. Þá ná þau að kynnast og mynda vinabönd yfir sumarið og það verður ekki eins ógnvekjandi að byrja í skólanum. Veit ekki alveg hvernig Nína Berglind tekur því að skilja við hana Selmu vinkonu sína en þær geta alltaf hist þar sem við erum orðin næstum nágrannar.
Ég er ekki alveg að fíla þessi vinnumál. Er að komast að því að ég er með svo sértæka reynslu að það er ekki mikið að gera fyrir mig sem íhlaupahjúkka. Núna er því stefnan tekin á Ríkisspítalann og athuga hvort það er einhver möguleiki að fá dagvinnu þar og engar helgar eða helgidaga. Sá reyndar eina auglýsingu sem gæti hentað mér og ég þeim.
Svo er bara tónleikaruna framundan - gaman gaman. Fórum á Bob Dylan fyrir páska og það var svona gaman að sjá kappann en ekki meira en það. Svo er það Cold War Kids í maí og Damien Rice og Pearl Jam í júní alveg geggjað. Endum svo rununa á Roskilde festival í byrjun júlí og þá er komið sumarfrí. Vantar reyndar pössun fyrir Roskilde hátíðina og auglýsi eftir því hér með. Einhvern sem langar að koma til Kaupmannahafnar í byrjun júlí að passa tvo engla??

föstudagur, apríl 13, 2007
Skuldadagar!
Engar myndir fyrir marsmánuð!!! Hefur þetta einhvern tímann gerst? Afsakið allir en við bættum úr því og það eru komnar inn síðustu febrúar myndirnar, allur marsmánuður og eitthvað frá páskafríinu í apríl :)
fimmtudagur, mars 22, 2007
Flutt, flutt, flutt
í nýja húsið loksins. Þetta hafa verið langdregnustu flutningar sem ég og mín fjölskylda hefur staðið í og hafa þeir verið margir. Frá því við Sigtryggur fórum að vera saman höfum við flutt - skipt um heimili/verið í millibilsástandi - 11 sinnum að þessum flutningum meðtöldum og þar af Nína Berglind 6 sinnum á sinni næstum 6 ára ævi. Ég held fast í vonina að hér verðum við í að minnsta kosti tvö ár ég bið ekki um meira. Þarf að halda ró í huga og kropp og njóta þess að vera í núinu og hér á Skanderborggade númer 5. Það leggst allavega vel í okkur. Hér höfum við sofið vel frá fyrstu nóttu og getum losað okkur við alla kassa úr íbúðinni eftir nákvæmlega 1 og 1/2 viku því þá fáum við geymsluna okkar heila en ekki hálfa.
Hjálmar er himinlifandi - hleypur í hringi gegnum eldhúsið inní stofu og finnst skemmtilegast þegar stóra systir eltir hann eða hleypur á móti honum til að bregða honum. Þá er mikið hlegið hér á bæ.
Heimasíminn er ekki lengur við lýði svo það má jarða það númer.
Bíðum svo bara spennt eftir fyrstu gestunum sem koma rétt eftir páska :)

mánudagur, mars 05, 2007
Helenlea
Konan sem ég elska að hata. Í þarsíðasta skipti sem ég fór að heimsækja hana langaði mig að slá hana utanundir en þá sagði hún mér að í næsta skipti ætlaði hún að hvíla grindina og vöðvana þar í kring og leggja meiri áherslu á herðarnar og hálsinn. Þegar ég heyrði þetta hætti ég við að segja henni upp. Hélt að hún fyndi nú ekkert eins slæmt og þarna niðri og að ég gæti notið þess að liggja á bekknum hennar til tilbreytingar, en hún hefur töfraputta þessi kona. Hún finnur ALLT - sem auðvitað gerir hana að góðum nuddara. Ætli ég verði ekki líka að viðurkenna að mér líður svo miklu betur í skrokknum svo eitthvað er hún að gera rétt. Hún er auðvitað alveg frábær, það er ekki hlaupið að því að losna við svona krankleika svo ég verð bara að kyngja þessu og fara svo á fullt í líkamsræktina til að styrkja þessa vöðva sem hún er búin að losa um spennuna í. Ég verð líka að undirbúa mig vel ef ég á að geta gengið með fleiri börn.
Grindargliðnun er ekkert grín ;)
Grindargliðnun er ekkert grín ;)
miðvikudagur, febrúar 28, 2007
Babb í bátinn
Fékk þær upplýsingar að ég þarf að sækja um löggildingu á hjúkrunarprófinu mínu áður en ég get farið að vinna. Getur tekið allt að þrjá mánuði!!! að fá það í gegn. Einhversstaðar klingja samt bjöllur í hausnum á mér að ég hafi vitað þetta. Það var örugglega einhver af þessum hjúkkum sem ég þekki og vinna hér eða hafa unnið hér sem voru búnar að segja mér frá þessu en í allri brjóstabarnaþokunni hurfu þessar upplýsingar og ég sit eftir með sárt ennið. Vonandi er bara verið að setja væntingarmarkmið svo fólk verði ekki brjálað ef það fær ekki löggildingu innan við þrjá mánuði og að þetta verði tilbúið í viku 11 :) Ég er svo bjartsýn á að stundum geti hlutirnir hérna bara gertst 1, 2 og 10.... Hringdi samt í skrifstofuna sem ég sótti um vinnu hjá og þær voru þvílíkt leiðar yfir þessu og langaði svo að fá mig í vinnu strax... sem er auðvitað gott fyrir sjálfsálitið svona þegar maður gerir ekki mikið annað en að hugsa um rassinn á sér og heimilið og börnin ;)
Annars er nóg framundan. Fáum lyklana að nýju íbúðinni á morgun og getum byrjað að flytja í rólegheitunum. Mjög skemmtilegur leigusamningurinn þar... sendi útdrátt úr honum seinna.
Allir hressir og sprækir að öðru leyti.
Og loksins verið að hirða ruslið eftir verkfallið.

mánudagur, febrúar 26, 2007
Hreyfimyndir af krökkunum
mánudagur, febrúar 12, 2007
Fréttaskot
Er þetta ekki orðið soldið gamalt - að hafa "gleðileg jól" efsta bloggið.
Heilmikið að gerast annars. Búið að gefa út trailer fyrir "Daisy Diamond" myndina hans Hjálmars og það er hægt að fara inná myndasíðuna okkar og finna hann þar í febrúar settinu og líka "freeze frame" af senunni þar sem sést framan í drenginn :) Þetta lítur út fyrir að ætla að verða spennandi mynd þó þetta myndbrot gefi afskaplega lítið upp ;)
Erum líka búin að setja inn nýjar myndir.
Fundum nýja íbúð á föstudaginn og það er þvílíkur léttir þar sem við þurfum að fara úr þessari 1. apríl. Var farin að herða mig uppí það að búa með börnin í bílnum. Fáum hina íbúðina 1. mars svo það er nógur tími til að flytja. Þurfum ekki að skipta um hverfi sem er plús en missum garðinn og leiksvæðið hérna fyrir utan... fáum í staðinn tvær stórar svalir svo þetta jafnast út. Gestaaðstaðan verður ekki eins góð og hún hefur verið en það er allt hægt ef viljinn er fyrir hendi.
Hjálmar fær sérherbergi loksins. Ágæt tímasetning þar sem ljúflingsdrengurinn er allt í einu kominn með eigin vilja og skellir sér niður á gólfið organdi ef við leyfum honum ekki eitthvað. Tímarnir breytast og börnin með.
Nína Berglind alltaf hress, með sinn eigin vilja líka auðvitað. Svakalega ánægð í leikskólanum og þau ánægð með hana og danskan hennar orðin mjög góð. Svo á hún að byrja í skóla í haust og er farin að hlakka mikið til. Talar ekki um annað og hvað lífið breytist mikið þegar hún verður sex ára: Þá getur hún farið í fimleika (ekki fyrr), hún ætlar að vakna snemma og klæða sig alveg sjálf, vera fljót að borða morgunmatinn, fara ein í dansskólann sinn í strætó og svona gæti ég haldið áfram. Ég vona bara að hún standi við eitthvað af þessu, þó ekki þetta með að fara ein í strætó ;/
Ég er búin að sækja um vinnu. Á skrifstofu sem sendir hjúkrunarfræðinga í afleysingar á nokkra spítala hér í nágrenninu. Nú bíð ég spennt eftir fyrsta símtalinu... og soldið kvíðin. Með þessu móti get ég stjórnað vinnutímanum og auðvitað bað ég bara um dagvaktir og enga helgarvinnu - komin með nóg af því. Hef unnið vaktavinnu frá því ég hætti í unglingavinnunni og kominn tími á breytingar.
Svo bíðum við spennt eftir vorinu. Ótrúlegt hvað maður hefur lítið þol. Veturinn kom um helgina og nú nennum við ekki meir!

Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)