Mikið búið að ganga á síðastliðinn mánuð. Fór með börnin til Íslands í sextugsafmælið hennar mömmu og það var mikið stuð. Svo kom Dísa vinkona með sitt stóð og það var mikið stuð. Dallasmenn og konur komu tuttugu og eitthvað talsins til að djamma heila helgi og það var mikið stuð.
Gaman að upplifa danskan julefrokost - svolítið frjálslegri en þessi íslensku jólahlaðborð og alls ekki verri. Það var setið og borðað og drukkið og leikið og sungið milli borða í marga klukkutíma í pínkulitlu kjallaraherbergi með einn opnanlegan glugga og viftu sem var ekki mjög kirfilega fest í loftið.
Veðrið hefur "leikið" við okkur. Það er rigning og stundum soldið kalt en ekkert vetrarveður að kalla. Mér finnst þetta bara nokkuð frískandi.
Þurfum að fara að finna okkur annað húsnæði.... aaarrrggh. Nenni ekki að flytja aftur en svona er þetta, við vissum allan tímann að þetta væri möguleiki og nú er bara að pæla ekkert í þessu fyrr en eftir áramót.
Hér ætlum við að vera þessi jól og fáum gesti yfir áramótin. Það verður gaman að upplifa dönsk jól. Það er líka mikið að gera framundan. Jólaskemmtanir á tveimur leikskólum, danssýning hjá Nínu Berglindi, mamma kemur í heimsókn, jólaglögg hér og þar, piparkökubakstur og þetta venjulega jólastúss.
Hafið það öll gott í jólaamstrinu en ekki gleyma tilgangi jólanna.
þriðjudagur, desember 05, 2006
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
3 ummæli:
Arrrg! Fúlt að þurfa að flytja. Vonandi finnið þið eitthvað sem þið verðið ánægð með. Þökkum enn og aftur fyrir okkur. Frábært að vera hjá ykkur. Knús og kossar, Dísa og co.
Sæl fjölskylda!
Gott að heyra að allt er í hers höndum
hjá ykkur. Yrði gaman að heyra frá ykkur sem fyrst.
Ykkar villingur með meiru;
Árni Már
Til hamingju með daginn sæti Hjálmar. Og Gleðileg Jól öllsaman.
Knús af Hraunbrautinni
Imba, Neil og Sóley Björk
Skrifa ummæli