föstudagur, október 13, 2006

Haust í Kaupmannahöfn

Haustið er komið og laufin og kastaníurnar falla af trjánnum og við sitjum og búum til allskonar fígúrur úr þessu öllu saman. Veðrið alveg æðislegt - þetta er ekta veður fyrir mig, soldið kalt loftið en sól og bara nammi...

Hnakknum var stolið af hjólinu mínu um daginn! Eitthvað sem ég skil ekki, vorum í Parken á Trafiklegepladsen sem er mjög skemmtilegur garður fyrir krakka. Litlar götur og umferðarskilti og -ljós þar sem krakkarnir geta hjólað og lært umferðarreglurnar í nokkuð öruggu umhverfi. Náttúrulega "brjálaðir" krakkar inn á milli. Þegar við erum svo að taka okkur til til að fara heim komumst við að þessu. Ég er fegin að ég skil ekki svona hegðun en verði þjófnum að góðu því ég er alltaf rassblaut útaf einhverjum "svakaflottum" saumum á hnakknum :) Ein vinkona mín sagði mér að ég þyrfti bara að njóta þess að hjóla hnakklaus :D Verst að stöngin sem hnakkurinn situr á var tekin líka.....

Hjálmar hefur hlotið viðurnefnið "Sjarmetrold" á leikskólanum. Hann lýsist allur upp í framan og reynir að henda sér úr kerrunni um leið og við komum inná leikskólasvæðið. Vill ekkert vera í fanginu á mömmu bara beint að leika.

Nína Berglind er núna alltaf með munnræpu á dönsku og ef hún kann ekki eitthvað orð þá er það bara sagt á íslensku með dönskum hreim. Krakkarnir kippa sér ekkert upp við það. Leikskólakennararnir eru mjög ánægðir með hana. Hún fær málkennslu 1x í viku og sá kennari hefur engar áhyggjur af henni sem er gott því hún er að fara að byrja í skóla eftir tæpt ár - þarf meira að segja að fara að skrá hana núna í nóvember ... mikið líður tíminn hratt.

Og núna þarf ég að fara að skella mér að sækja um vinnu - verkefni næstu viku...

5 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Nína Berglind og Hjálmar "sjarmör" gaman að heyra hvað ykkur líkar vel í skólunum ykkar og upp á hverju skyldi mamma ykkar taka. Slæmt var að heyra að hjólið var skemmt svon illa. Ég var að rekast á kafla úr bók og hann byrjar svona. "Myndavélin fékk lystina, búin að liggja andlaus inni í skáp en hámaði nú í sig filmu eftir filmu: þú á gólfinu, þú í baði, þú úti, þú í bílnum, þú að borða, þú á koppnum, þú brosandi, þú grátandi, þú sofandi, þú skríðandi,þú standandi, þú á hausnum, þú uppi í tré, þú.
Tíumínútum saman gastu legið á bakinu og hjalað og gurlað með munnvatniog hlustað hugfangin(n) á þessa músik sem var inni í þér. Tilhlökkunin eftir að það yrðu orð, rödd. Bergnumin(n) skoðaðirðu á þér puttana, endalaust rannsóknarefni eins og þig hefði minnt þeir væru fleiri og þyrftir í sífellu að vera að telja til að fullvissa þig að þeir væru örugglega fimm. Allt var inni í þér, líka hringlan sem hékk yfir rúminu og ekki lítill atburður þegar þú náðir í fyrsta skipti að dangla í hana með hendinni og veröldin fór öll á ið.
Viðburðurinn þegar þú bostir í fyrsta skipti,forsíðufrétt í veröldinni þeirra í marga daga líkt og sólin hefði komið upp mörgum sinnum sama daginn."
Pétur Gunnarsson: SAGAN ÖLL.

Bestu kveðjur Afi Árni

Nafnlaus sagði...

hæ hæ

Var að skoða myndirnar, alltaf jafn ótrúlega falleg þessi systkini.
Imba

Aslaug sagði...

Fer ekki að koma vetur í Köben færsla... lít við á síðuna reglulega en ekkert breytist.
Gaman að sjá nýjar myndir samt í hverjum mánuði :)

Nafnlaus sagði...

Alltaf jafn gaman að skoða myndirnar ykkar. Mikið hlakka ég til að hitta ykkur um áramótin.
Kossar frá Lúx,
Silja

Aslaug sagði...

Til hamingju með afmælið á laugardag Regína :) Vonandi áttir þú góðan dag í faðmi vina.