þriðjudagur, september 05, 2006

Sirkus pirkus

Fór með Nínu Berglindi í Sirkus Dannebrog á sunnudaginn - lofaði henni sirkus fyrir svona 3 mánuðum og allt í einu var hann fyrir framan okkur og engin leið að sleppa. Mér hefur alltaf þótt gaman að fara í góða sirkusa sem eru ekki margir en þessi var bara fínn... flottir loftfimleikar og skemmtilegur trúður og flott hundaatriði en ég sá soldið eftir að hafa borgað mig þarna inn þegar ég var að horfa á fílinn dansa - ég meina hvað er málið?!

En Nína Berglind var í skýjunum og fannst allt æðislegt. Sat meira að segja á sér í þessa 2 og 1/2 tíma sem þetta tók sem er mjög óvanalegt fyrir litlu Energizer kanínuna okkar :)

Hlökkum svo bara til að sjá alla á Íslandi í næstu viku. Nína Berglind hefur nefnilega miklar áhyggjur af því að hún sé að verða dönsk af því hún er farin að tala meiri dönsku :)

1 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Elsku Nína Berglind til hamingju með 5 ára afmælið og þakka þér fyrir allar myndirnar þær eru frábærar.
Bestu kveðjur elsku vina

Þinn Árni afi