föstudagur, september 29, 2006

Síðasti í afmæli...

...liðinn og fæturnir á prinsessunni hægt og rólega að nálgast jörðina. Rosa fínt á Íslandi, afslappað og engin læti. Tvö afmæli þar og svo komum við heim í þetta svakalega góða veður og tvö afmæli hér. Síðasta var á mánudaginn þar sem allir krakkarnir á leikskólanum, 18 stykki, kíktu við í grill í hádeginu. Rosalega gaman, gott veður svo það var hægt að skiptast á að vera úti og inni en á tímabili voru ansi margir í herberginu hennar Nínu og ótrúlegt að ég var í minna en 10 mínútur að taka til á eftir :) Algerir englar.

Nú er Nína Berglind svo svakalega ánægð á leikskólanum, farin að tala dönsku og hjóla án hjálpardekkja og heimsækja vinkonur sínar og ég veit ekki hvað og hvað.

Hjálmar er að fara að byrja á vuggestue á mánudaginn... jeminneini! Fróðlegt að sjá hvernig það gengur. Annars er hann farinn að verða ansi kræfur skríður eins og slanga og þýtur áfram, maður þarf að hafa sig allan við að ná honum þegar hann ákveður að fara fram á gang til dæmis. Verð að fara að drífa mig í Ikea og kaupa öryggishlið - algjört möst.

Svo verður farið aftur til Íslands í endaðan október þar sem mín kæra móðir er að verða sextug.

Sjáumst þá :)

2 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Nýjustu myndirnar eru bara sætar, greinilega stuð að eiga afmæli verandi í ykkar familíu ;-) Hlakka bara til næstu afmælis tríólógíunnar í desemberrrrrrrRegína!

Nafnlaus sagði...

Mikið er gaman og spennandi að lesa fréttirnar og skoða myndirnar af ykkur. Nína Berglind, ég var að leika mér við vin minn í gær og dag. Við vorum miklir vinir þegar við vorum 5 ára og erum það ennþá. En verst er að hann á heima svo langt í burtu í Cleveland í Bandaríkjunum svo við leikum okkur ekki oft saman, en skrifum bréf e-mail. Sjáumst fljótlega. Bestu kveðjur elskuleg öll. Árni afi