...í allt sumar! Það vonum við allavega. Erum búin að þeysast um Evrópu endilanga og allstaðar gott veður - ég veit að það er ekki gaman fyrir Íslendinga að heyra það þessa dagana þess vegna stefnum við á að taka góða veðrið með okkur þegar við förum til Íslands eftir tæpar tvær vikur... hljómar það ekki vel?
Erum semsagt búin að vera í sumarhúsi í Danmörku, sumarhúsi í Frakklandi og erum núna stödd í Lúxemborg áður en við höldum heim á leið með smá stoppi í Hollandi. Brjálað stuð. Börnin alveg eins og englar enda ekki leiðinlegt að vera alltaf með fullt af fólki og börnum að leika sér í sundlaugum eða skemmtigörðum og Hjálmari finnst ekki leiðinlegt að láta frænkur sínar halda á sér.
Það verður líka gott að koma heim til sín það þekkja allir.
Setjum fljótlega inn myndir af European Vacation stórfjölskyldunnar.
mánudagur, júlí 17, 2006
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
3 ummæli:
Gott að heyra í þér Regína.Bestu kveðjur til ykkar allra. Afi Árni
Hlökkum til að sjá myndir frá "The European Vacation" og getum hreinlega ekki beðið eftir að sjá ykkur. Sjáumst fljótlega, Dísa skvísa og co.
Hlökkum mikið til að hitta ykkur hér í stuttu stoppi ;-)
Skrifa ummæli