Nína Berglind stóð sig eins og hetja í koloni eða kolo'ní eins og hún segir það með nýja fína danska hreimnum sínum :) Hún var tilneydd að tala dönsku og kennararnir sögðu að hún hefði staðið sig eins og hetja. Sjálf segir hún að þetta hafi verið rosalega gaman og þá er það útrætt. Erum að reyna að draga uppúr henni hvað hafi verið gert en lítið orðið ágengt. Sem betur fer kom hún til baka með bók sem búið var að skrifa í stutta dagbók... alveg frábært. Núna bíðum við bara eftir myndum og áframsendum þær þá og þegar.
Hjálmar er farinn að borða eins og herforingi tvær máltíðir á dag þrátt fyrir tannleysi. Honum finnst allt sem við bjóðum honum gott og heldur alltaf að við séum að gefa honum eitthvað að borða þegar hendurnar okkar koma nálægt andlitinu á honum. Kannski hann fari þá að bæta eitthvað á sig. Svo brosir hann útí eitt og heillar alla í kringum sig. Getur orðið soldið vandræðalegt á stundum og roðna ég þá bara og blána og veit ekkert hvað ég á af mér að gera... sumar konur geta verið ansi hömlulausar þegar þær sjá sæta stráka :þ
Svo erum við að fara í næturtöku núna á eftir í bíómyndinni hans Hjálmars og svo held ég að ég segi bara pass... allar hugmyndir um glamúrinn við kvikmyndagerð foknar út í veður og vind. Ekki að það sé vindur hér - við varla náum andanum í þessum hita.
Vonandi fer sumarið að ná einhverjum þunga þarna heima á Fróni - hugsa allavega sterkt til ykkar.
mánudagur, júní 12, 2006
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
1 ummæli:
Djí hvað ég öfunda ykkur af þessu veðri, við erum bara hér í rigningu og kulda.
Hvað er þetta með næturtökur, er stráksi strax orðin moviestar??
Hvenær er svo lending hjá ykkur á Íslandinu góða??
Jæja læt þessu spurningaflóði lokið knús og koss til ykkar.
Kveðja Nanna og co
Skrifa ummæli