fimmtudagur, júní 15, 2006

"Jelma" som "Daisy"

Þá er Hjálmar (a.k.a. Jelma) búinn að skila sínu í bíómyndinni og nú er það á valdi klipparans að láta hann líta sem best út...
En þetta er búið að vera fínt. Erfitt að vera í næturtökunum en Hjálmar tók þeim með stóískri ró og heillaði alla uppúr skónnum. Hann var nú ekkert í nærmyndum því hann var eina barnið sem var grannt og ekki með margar undirhökur svo hann skar sig soldið úr hópnum :) En ég get komið með frekari upplýsingar þegar myndin "Daisy Diamond" eins og hún heitir verður frumsýnd næsta vor fyrir þá sem vilja.

Það sem var gott við þetta allt saman fyrir utan að það er spennandi að fylgjast með einhverju nýju og sem maður veit í rauninni ekkert um var að komast í smástund í danskan félagsskap. Fyrsta skiptið sem reynir eitthvað af viti á dönskukunnáttuna og það var gott. Fyrst var ég bara eins og auli og sagði ekki neitt, brosti bara þegar ég hélt að ég hefði skilið eitthvað en svo fór ég að skilja allt í einu og var farin að spjalla áður en ég vissi af. Gott að vita til þess að þegar á reynir verður þetta fljótt að koma. Hef einmitt verið að spá í hvernig þetta verður þegar ég fer að vinna eitthvað and now I know...

Svo lærði ég líka að "Action" er "og værsogo´" á dönsku :)

1 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Ekkert smá stolt af litla frænda. Kvikmyndastjarnan litla. Kemur mér ekkert á óvart að hann heilli alla í kringum sig...alveg sætastur. Hlakka hrikalega mikið til að fá ykkur hingað út í heimsókn. Get hreinlega ekki beðið.
Kveðja og kossar frá Lúx,
Silja