Núna eru Regína og Hjálmar búin að vera í London í nokkra daga. Regína er þar að aðstoða systur sína fyrir brúðkaupið hennar sem verður í sumar. Ég og Nína höfum haft það fínt hér í Köben á meðan þó við söknum þeirra mjög mikið og hlökkum til að fá þau aftur heim. Nína vill alltaf fá að tala við Hjálmar í síma og hann segir ekki mikið á móti en brosir bara við það að heyra í systur sinni. Hef heyrt að hann sé að heilla allar dömurnar í brúðarkjólabúðunum enda mikill sjarmör.
Hún Nína mín er nokkuð dugleg í að reyna að plata pabba sinn í að gera ýmsa hluti fyrir sig á meðan mamma sín er í burtu. Stundum getur maður ekki staðist það þegar hún brosir fallega til manns og biður mann um eitthvað með því að segja elsku, elsku, elsku pabbi viltu ...
Hún fór til Höllu Margrétar vinkonu sinnar í dag því ég þurfti að vinna lengur. Þær eru orðnar mjög góðar vinkonur og það er virkileg gott að Nína er búin að finna svona góðan vin. Þær eru einnig svolitlir prakkarar og maður verður að vera vel vakandi í sumar við að fylgjast með þeim.
Þá er meistaradeildin á morgun þar sem Barcelona og Arsenal mætast. Ég vona að Barcelona vinni og síðan mun Thierry Henry skipta á treyju við Eto eftir leikinn og ekkert fara úr henni. Mætir bara í henni til leiks á næsta tímabili með Barcelona. Það væri ekki leiðinlegt að sjá hann spila með snillingunum í Barca.
Svo er að styttast í HM. Það verður bara snilld. Verð að finna leið til að horfa á leikinn út í garði þegar það er gott veður.
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
2 ummæli:
Var að skoða myndirnar frá því í maí, díses sætustu krúttin :) Hlökkum mikið til ferðarinnar í sumar. Ví lov jú gæs
Imba og co
Sæll Frændi
Það var nú ekki leiðinlegt á Stade De France vellinum þótt að barca hafi unni ég var barca meginn.Vonandi hittumst við sem fyrst.Kveðja Baldvin Þór
Skrifa ummæli