Þá er fluttur inn maður á neðri hæðina sem er í sjálfu sér allt í lagi þó það hafi verið kósý að vera svona ein í þessu húsi. Hann flutti inn í gær og nú þegar er allt angandi af sígarettureyk - kannski ekki við öðru að búast af Dana. Er búin að ræða við hann og hann segist ekki þola lyktina af sígarettum og reyki því alltaf útum gluggann.... hvernig getur hann sagt þetta þegar hann angar af reyk sjálfur ég næ því ekki.
Þetta byrjar ekki vel en ég er búin að hafa samband við leigusalann og bíð eftir hvað kemur útúr því... kannski væri hægt að setja upp hurð á milli íbúðanna - það myndi leysa ýmislegt :þ
Jæja fall er fararheill.
Nína Berglind er farin að babla á dönsku og er hressari á leikskólanum þó hún sé ekki búin að eignast góða/r vinkonu/r enn en það kemur. Kannski gerist það þegar hún fer í koloni = þriggja nátta/fjögurra daga sveitaferð með leikskólanum. Við erum ekki alveg að sjá hvernig við eigum að höndla það en erum búin að leigja þyrlu til að vera standby ef þetta verður of erfitt :/
Hjálmar er alltaf sami sjarmörinn og heillar alla uppúr skónnum sem líta í áttina til hans. Hann mætti alveg hætta að heilla mömmu sína klukkan sex á morgnana samt....
Fórum í mat til Guðnýjar frænku í Slagelse áðan sem er um klukkutíma bíltúr héðan. Hef ekki komið þangað síðan ég var sirka 9 ára og það var mjög gaman rifjaði upp gamlar minningar meðal annars eitt atvik varðandi Freddie Mercury sem bara Selma systir skilur LOL
Gaman að hitta fjölskyldumeðlimi sem maður hefur ekki hitt í mörg ár og börnin þeirra sem maður hefur aldrei hitt. Nínu Berglindi leist mjög vel á Julie frænku sína sem er 6 ára og léku þær sér vel saman. Endurtökum þetta vonandi fljótlega aftur.
sunnudagur, apríl 30, 2006
laugardagur, apríl 29, 2006
Roskilde Festival
Nú er það komið á hreint að það verður farið á Roskilde festival í sumar. Nóg af hljómsveitum til að kíkja á. Þetta verður mín fyrsta ferð á Roskilde og kominn tími til. Það eru tveir tónlistarmenn sem ég verð að sjá, Bob Dylan og Morrissey. Búinn að bíða lengi eftir að sjá Morrissey á tónleikum, aldrei að vita að Atli muni kíkja með þegar hann fréttir að Morrissey mun spila.Var að frétta að Morrissey væri hugsanlega á leiðinni til Íslands og ætlar að halda tónleika í sumar. Ef einhver veit meira um það mál þá má hann láta mig vita.
Keypti einnig miða fyrir okkur og Guðjón á Antony & the Johnsson en hann verður með tónleika í Köben í september. Fórum á tónleika með honum í Fríkirkjunni um jólin í fyrra. Þeir tónleikar voru frábærir og það verður gaman að sjá hann aftur. Takk fyrir ábendinguna Hjalti.
Erum búin að fara eina ferð í Tívolí. Það er alltaf gaman að fara í Tívolíið hér í Köben, það er einhver ákveðinn sjarmi yfir Tívolíinu. Nínu Berglindi finnst rosalega gaman að fara í tækin þar. Fór aftur og aftur í tækin svo við verðum að fara þangað aftur fljótlega. Nýtt tæki verður opnað 1.maí sem verður gaman að prófa. Hér eru upplýsingar um Himmelskibet.
Eigum það til að bæta við myndum á myndasíðuna án þess að blogga eitthvað svo þið verðið bara að skoða hana reglulega.
Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)