þriðjudagur, mars 28, 2006

Ok ok ok...

... þá er komið að því. Fyrsta bloggið frá Kóngsins Köben. Það er ýmsu að venjast hér og sem frekjuÍslendingar er það ekki gott. Til dæmis þá erum við að bíða eftir nettengingu og það tekur þrjár vikur at least. Núna tveimur vikum eftir að við pöntuðum netið og heimasímann kemur bréf sem tilkynnir okkur hvaða heimasímanúmeri okkur var úthlutað og að það muni koma annað bréf með internet upplýsingunum og svo stóð að einhver myndi koma fljótlega að tengja þetta allt saman. Ég er viss um að það er bara on off takki hérna einhversstaðar!
Annað dæmi er að við sóttum um bankareikning og fengum reikningsnúmer og okkur sagt að Dankortið okkar kæmi í pósti og svo pin-númerið stuttu seinna ásamt leyniorði í netbankann. Tveir þriðju stóðust og fór ég í bankann í dag þrem vikum síðar til að ýta á eftir þessu með netbankann.....

En sem betur fer erum við með einhvern nágranna sem læsir ekki þráðlausu tengingunni sinni svo við stelum af honum á meðan - nema hann sé að stela af okkur tilbaka.... sumir hafa ekkert annað að gera.

Yndislegi drengurinn okkar fékk nafnið Hjálmar dúlla. Við eigum eftir að skíra en búin að nefna svo þetta er fast við hann enda ber hann það vel. Hann fór í fyrstu sprautuna sína í dag og brosti bara til mín á meðan....er hægt að biðja um meira krútt?

Nína Berglind er byrjuð í leikskólanum og gekk það vel til að byrja með en svo kom bakslag og held ég að það sé tungumálaörðugleikum um að kenna. Þeir sem eiga eða þekkja til fjögurra ára telpna vita að allt snýst um hlutverkaleiki og þar skiptir tungumálið miklu. En þetta er að skána og ætli hún verði ekki farin að kenna pabba sínum dönsku fyrr en varir. Ég stend mig hinsvegar eins og hetja og á áhuga móður minnar á danskri tungu mikið að þakka - eins og þetta fór í taugarnar á mér þegar ég var krakki og unglingur og ung kona....

Svo er vorið bara að koma eins og kallað og krakkarnir í götunni okkar eru farin að æfa sig að hjóla án hjálpardekkja - Nína Berglind er ekki alveg tilbúin í það enn en ég sagði henni að við myndum gera það í sumar og þá var það ákveðið.

Nú hlökkum við bara til að fá fyrstu gestina um páskana og þá verður mikið stuð...

p.s. komnar nýjar myndir - smella á myndaklasann hérna til hliðar ;-) (svona fyrir tengdamömmu)