mánudagur, desember 25, 2006

GLEÐILEG JÓL....

...Öllsömul og takk kærlega fyrir jólakortin og gjafirnar. Við erum búin að hafa það rosalega gott. Héldum smákökuafmæli fyrir Hjálmar í dag og það var afskaplega notalegt. Litli prinsinn alsæll með allar gjafirnar sínar og athyglina sem hann hefur fengið :)

Nína Berglind ekki síður ánægð með gjafirnar hans Hjálmars en sínar ;)

Við erum búin að setja inn jólamyndirnar fyrir ykkur öll heima og heiman.

Hafið það gott sem eftir lifir hátíðarinnar

þriðjudagur, desember 05, 2006

Október, nóvember og desember

Mikið búið að ganga á síðastliðinn mánuð. Fór með börnin til Íslands í sextugsafmælið hennar mömmu og það var mikið stuð. Svo kom Dísa vinkona með sitt stóð og það var mikið stuð. Dallasmenn og konur komu tuttugu og eitthvað talsins til að djamma heila helgi og það var mikið stuð.
Gaman að upplifa danskan julefrokost - svolítið frjálslegri en þessi íslensku jólahlaðborð og alls ekki verri. Það var setið og borðað og drukkið og leikið og sungið milli borða í marga klukkutíma í pínkulitlu kjallaraherbergi með einn opnanlegan glugga og viftu sem var ekki mjög kirfilega fest í loftið.

Veðrið hefur "leikið" við okkur. Það er rigning og stundum soldið kalt en ekkert vetrarveður að kalla. Mér finnst þetta bara nokkuð frískandi.

Þurfum að fara að finna okkur annað húsnæði.... aaarrrggh. Nenni ekki að flytja aftur en svona er þetta, við vissum allan tímann að þetta væri möguleiki og nú er bara að pæla ekkert í þessu fyrr en eftir áramót.

Hér ætlum við að vera þessi jól og fáum gesti yfir áramótin. Það verður gaman að upplifa dönsk jól. Það er líka mikið að gera framundan. Jólaskemmtanir á tveimur leikskólum, danssýning hjá Nínu Berglindi, mamma kemur í heimsókn, jólaglögg hér og þar, piparkökubakstur og þetta venjulega jólastúss.

Hafið það öll gott í jólaamstrinu en ekki gleyma tilgangi jólanna.

föstudagur, október 13, 2006

Haust í Kaupmannahöfn

Haustið er komið og laufin og kastaníurnar falla af trjánnum og við sitjum og búum til allskonar fígúrur úr þessu öllu saman. Veðrið alveg æðislegt - þetta er ekta veður fyrir mig, soldið kalt loftið en sól og bara nammi...

Hnakknum var stolið af hjólinu mínu um daginn! Eitthvað sem ég skil ekki, vorum í Parken á Trafiklegepladsen sem er mjög skemmtilegur garður fyrir krakka. Litlar götur og umferðarskilti og -ljós þar sem krakkarnir geta hjólað og lært umferðarreglurnar í nokkuð öruggu umhverfi. Náttúrulega "brjálaðir" krakkar inn á milli. Þegar við erum svo að taka okkur til til að fara heim komumst við að þessu. Ég er fegin að ég skil ekki svona hegðun en verði þjófnum að góðu því ég er alltaf rassblaut útaf einhverjum "svakaflottum" saumum á hnakknum :) Ein vinkona mín sagði mér að ég þyrfti bara að njóta þess að hjóla hnakklaus :D Verst að stöngin sem hnakkurinn situr á var tekin líka.....

Hjálmar hefur hlotið viðurnefnið "Sjarmetrold" á leikskólanum. Hann lýsist allur upp í framan og reynir að henda sér úr kerrunni um leið og við komum inná leikskólasvæðið. Vill ekkert vera í fanginu á mömmu bara beint að leika.

Nína Berglind er núna alltaf með munnræpu á dönsku og ef hún kann ekki eitthvað orð þá er það bara sagt á íslensku með dönskum hreim. Krakkarnir kippa sér ekkert upp við það. Leikskólakennararnir eru mjög ánægðir með hana. Hún fær málkennslu 1x í viku og sá kennari hefur engar áhyggjur af henni sem er gott því hún er að fara að byrja í skóla eftir tæpt ár - þarf meira að segja að fara að skrá hana núna í nóvember ... mikið líður tíminn hratt.

Og núna þarf ég að fara að skella mér að sækja um vinnu - verkefni næstu viku...

föstudagur, september 29, 2006

Síðasti í afmæli...

...liðinn og fæturnir á prinsessunni hægt og rólega að nálgast jörðina. Rosa fínt á Íslandi, afslappað og engin læti. Tvö afmæli þar og svo komum við heim í þetta svakalega góða veður og tvö afmæli hér. Síðasta var á mánudaginn þar sem allir krakkarnir á leikskólanum, 18 stykki, kíktu við í grill í hádeginu. Rosalega gaman, gott veður svo það var hægt að skiptast á að vera úti og inni en á tímabili voru ansi margir í herberginu hennar Nínu og ótrúlegt að ég var í minna en 10 mínútur að taka til á eftir :) Algerir englar.

Nú er Nína Berglind svo svakalega ánægð á leikskólanum, farin að tala dönsku og hjóla án hjálpardekkja og heimsækja vinkonur sínar og ég veit ekki hvað og hvað.

Hjálmar er að fara að byrja á vuggestue á mánudaginn... jeminneini! Fróðlegt að sjá hvernig það gengur. Annars er hann farinn að verða ansi kræfur skríður eins og slanga og þýtur áfram, maður þarf að hafa sig allan við að ná honum þegar hann ákveður að fara fram á gang til dæmis. Verð að fara að drífa mig í Ikea og kaupa öryggishlið - algjört möst.

Svo verður farið aftur til Íslands í endaðan október þar sem mín kæra móðir er að verða sextug.

Sjáumst þá :)

þriðjudagur, september 05, 2006

Sirkus pirkus

Fór með Nínu Berglindi í Sirkus Dannebrog á sunnudaginn - lofaði henni sirkus fyrir svona 3 mánuðum og allt í einu var hann fyrir framan okkur og engin leið að sleppa. Mér hefur alltaf þótt gaman að fara í góða sirkusa sem eru ekki margir en þessi var bara fínn... flottir loftfimleikar og skemmtilegur trúður og flott hundaatriði en ég sá soldið eftir að hafa borgað mig þarna inn þegar ég var að horfa á fílinn dansa - ég meina hvað er málið?!

En Nína Berglind var í skýjunum og fannst allt æðislegt. Sat meira að segja á sér í þessa 2 og 1/2 tíma sem þetta tók sem er mjög óvanalegt fyrir litlu Energizer kanínuna okkar :)

Hlökkum svo bara til að sjá alla á Íslandi í næstu viku. Nína Berglind hefur nefnilega miklar áhyggjur af því að hún sé að verða dönsk af því hún er farin að tala meiri dönsku :)

föstudagur, ágúst 25, 2006

Hjálmar dáðadrengur

Það er nú ekkert lítið að gerast hjá honum Hjálmari núna. Fékk tvær tönnslur og byrjaði að klappa þegar við vorum á Íslandi. Er svo núna farinn að sýna hvað hann er stór og skríður um allt eins og elding... á maganum! Nýjasta nýtt er svo að hann var að standa upp við sófaborðið bara rétt í þessu.

Það má ekki líta af honum ef maður vill ekki missa af neinu :)

mánudagur, ágúst 07, 2006

Stiklað á stóru

Þá erum við loksins lent í Köben. Fríið búið að vera alveg stórkostlegt. Marielyst á Falster hér í Danmörku, geðveikt veður, frábær matur í góðra vina hópi. Stutt stopp í Luxembourg. Montelimar í Frakklandi, fínasta hús með æðislegri og nauðsynlegri sundlaug í steikjandi hitanum. Þar áfram lítið gert annað en að borða og spila Sequence á meðan krakkarnir léku sér eins og englar ;) Svo aftur stutt stopp í Luxembourg hjá Silju og Árna í áframhaldandi afslappelsi. Utrecht í Hollandi að heimsækja Valtý og Eddu og svo heim í nokkra daga að ná áttum áður en haldið var til Íslands í brjálæðið!

Selma systir giftist honum Paul sínum á Íslandi og það var alveg frábær dagur í alla staði. Skemmtileg athöfn, gott veður, góður matur, skemmtilegar ræður og frábærir taktar á dansgólfinu hjá öllum og sérstaklega móðursystrum mínum :) Ég lifi lengi á þessu.
Selma var svo auðvitað alveg gullfalleg brúður og bráðum koma myndir af því hér á síðuna svo allir geti dáðst að henni :D
Að lokum áttum við svo að fara í brúðkaup vestur í Bolungarvík en Sigtryggur þurfti að fara einn þar sem Hjálmar fékk svo háan hita í langan tíma að ég treysti mér ekki til að fara frá honum hvað þá leggja það á einhvern annan að passa svona lítið veikt barn og foreldrarnir þetta langt í burtu - en svona er lífið. Hjálmar er allavega orðinn stálsleginn núna okkur til mikillar ánægju og gleði því hann er náttúrulega bara algert nammi.

Núna erum við svo bara nýlent í Danmörku og strax búin að fækka fötum og opna alla glugga til að reyna að vinna á móti þessum hita.

Spurning hvort við þurfum að fara að hlaupa hér i kringum söen útaf öllu þessu áti...

Eftir þetta frábæra frí þurfum við að fara að vinna í því að Nína Berglind átti sig á því að þetta er ekki alltaf svona á Íslandi. Það eru ekki alltaf allir í fríi og tilbúnir að fara útum allar trissur með hana og leika við hana endalaust og svo framvegis. Sjáum til hvernig verður í leikskólanum á morgun. Hún hefur auðvitað frá mörgu að segja þó það tróni auðvitað á toppnum að hún er ".. tannlaus greyið" eins og hún orðar það sjálf. Stóra stúlkan okkar missti fyrstu tönnina sína 3. ágúst og er orðin fullorðin :) Við sátum og vorum að spila finna pör og hún fer að tala um að amma Nína sé alltaf að svindla í þessu spili sem er ekki alveg satt því hún er alltaf að svindla og ég segi það við hana og þá stendur hún upp, setur hendur á mjaðmir og segir "Nehei, ekki eftir að ég missti tönn!!"

föstudagur, júlí 21, 2006

Fyrstu myndirnar komnar

Komnar inn myndir frá Lomma í Svíþjóð, Maríelyst í Danmörku og nokkrar frá Roskildeupplifun Sigtryggs :)

mánudagur, júlí 17, 2006

Sól og sumar....

...í allt sumar! Það vonum við allavega. Erum búin að þeysast um Evrópu endilanga og allstaðar gott veður - ég veit að það er ekki gaman fyrir Íslendinga að heyra það þessa dagana þess vegna stefnum við á að taka góða veðrið með okkur þegar við förum til Íslands eftir tæpar tvær vikur... hljómar það ekki vel?

Erum semsagt búin að vera í sumarhúsi í Danmörku, sumarhúsi í Frakklandi og erum núna stödd í Lúxemborg áður en við höldum heim á leið með smá stoppi í Hollandi. Brjálað stuð. Börnin alveg eins og englar enda ekki leiðinlegt að vera alltaf með fullt af fólki og börnum að leika sér í sundlaugum eða skemmtigörðum og Hjálmari finnst ekki leiðinlegt að láta frænkur sínar halda á sér.

Það verður líka gott að koma heim til sín það þekkja allir.

Setjum fljótlega inn myndir af European Vacation stórfjölskyldunnar.

fimmtudagur, júní 15, 2006

"Jelma" som "Daisy"

Þá er Hjálmar (a.k.a. Jelma) búinn að skila sínu í bíómyndinni og nú er það á valdi klipparans að láta hann líta sem best út...
En þetta er búið að vera fínt. Erfitt að vera í næturtökunum en Hjálmar tók þeim með stóískri ró og heillaði alla uppúr skónnum. Hann var nú ekkert í nærmyndum því hann var eina barnið sem var grannt og ekki með margar undirhökur svo hann skar sig soldið úr hópnum :) En ég get komið með frekari upplýsingar þegar myndin "Daisy Diamond" eins og hún heitir verður frumsýnd næsta vor fyrir þá sem vilja.

Það sem var gott við þetta allt saman fyrir utan að það er spennandi að fylgjast með einhverju nýju og sem maður veit í rauninni ekkert um var að komast í smástund í danskan félagsskap. Fyrsta skiptið sem reynir eitthvað af viti á dönskukunnáttuna og það var gott. Fyrst var ég bara eins og auli og sagði ekki neitt, brosti bara þegar ég hélt að ég hefði skilið eitthvað en svo fór ég að skilja allt í einu og var farin að spjalla áður en ég vissi af. Gott að vita til þess að þegar á reynir verður þetta fljótt að koma. Hef einmitt verið að spá í hvernig þetta verður þegar ég fer að vinna eitthvað and now I know...

Svo lærði ég líka að "Action" er "og værsogo´" á dönsku :)

mánudagur, júní 12, 2006

Nína hetja og Hjálmar sjarmör

Nína Berglind stóð sig eins og hetja í koloni eða kolo'ní eins og hún segir það með nýja fína danska hreimnum sínum :) Hún var tilneydd að tala dönsku og kennararnir sögðu að hún hefði staðið sig eins og hetja. Sjálf segir hún að þetta hafi verið rosalega gaman og þá er það útrætt. Erum að reyna að draga uppúr henni hvað hafi verið gert en lítið orðið ágengt. Sem betur fer kom hún til baka með bók sem búið var að skrifa í stutta dagbók... alveg frábært. Núna bíðum við bara eftir myndum og áframsendum þær þá og þegar.

Hjálmar er farinn að borða eins og herforingi tvær máltíðir á dag þrátt fyrir tannleysi. Honum finnst allt sem við bjóðum honum gott og heldur alltaf að við séum að gefa honum eitthvað að borða þegar hendurnar okkar koma nálægt andlitinu á honum. Kannski hann fari þá að bæta eitthvað á sig. Svo brosir hann útí eitt og heillar alla í kringum sig. Getur orðið soldið vandræðalegt á stundum og roðna ég þá bara og blána og veit ekkert hvað ég á af mér að gera... sumar konur geta verið ansi hömlulausar þegar þær sjá sæta stráka :þ

Svo erum við að fara í næturtöku núna á eftir í bíómyndinni hans Hjálmars og svo held ég að ég segi bara pass... allar hugmyndir um glamúrinn við kvikmyndagerð foknar út í veður og vind. Ekki að það sé vindur hér - við varla náum andanum í þessum hita.
Vonandi fer sumarið að ná einhverjum þunga þarna heima á Fróni - hugsa allavega sterkt til ykkar.

föstudagur, maí 26, 2006

Heimasíminn er kominn í lag

Loksins er heimasíminn hjá okkur kominn í lag svo ekki hika við að hringja í okkur :)

þriðjudagur, maí 16, 2006

Ég og Nína, ein í kotinu

Núna eru Regína og Hjálmar búin að vera í London í nokkra daga. Regína er þar að aðstoða systur sína fyrir brúðkaupið hennar sem verður í sumar. Ég og Nína höfum haft það fínt hér í Köben á meðan þó við söknum þeirra mjög mikið og hlökkum til að fá þau aftur heim. Nína vill alltaf fá að tala við Hjálmar í síma og hann segir ekki mikið á móti en brosir bara við það að heyra í systur sinni. Hef heyrt að hann sé að heilla allar dömurnar í brúðarkjólabúðunum enda mikill sjarmör.
Hún Nína mín er nokkuð dugleg í að reyna að plata pabba sinn í að gera ýmsa hluti fyrir sig á meðan mamma sín er í burtu. Stundum getur maður ekki staðist það þegar hún brosir fallega til manns og biður mann um eitthvað með því að segja elsku, elsku, elsku pabbi viltu ...
Hún fór til Höllu Margrétar vinkonu sinnar í dag því ég þurfti að vinna lengur. Þær eru orðnar mjög góðar vinkonur og það er virkileg gott að Nína er búin að finna svona góðan vin. Þær eru einnig svolitlir prakkarar og maður verður að vera vel vakandi í sumar við að fylgjast með þeim.

Þá er meistaradeildin á morgun þar sem Barcelona og Arsenal mætast. Ég vona að Barcelona vinni og síðan mun Thierry Henry skipta á treyju við Eto eftir leikinn og ekkert fara úr henni. Mætir bara í henni til leiks á næsta tímabili með Barcelona. Það væri ekki leiðinlegt að sjá hann spila með snillingunum í Barca.
Svo er að styttast í HM. Það verður bara snilld. Verð að finna leið til að horfa á leikinn út í garði þegar það er gott veður.

fimmtudagur, maí 11, 2006

Heimasími

Heimasíminn hjá okkur hefur verið í einhverju rugli síðan við fengum hann.  Þetta lið hjá Cybercity er ekki að standa sig.  Þið takið ekki eftir því að eitthvað er að svo ef við svörum ekki þá þýðir það ekki endilega að við erum ekki heima.  Þið getið svo alltaf náð í okkur í gsm símana.
Læt vita þegar síminn er kominn í lag.

mánudagur, maí 08, 2006

Nóg að gerast

Elsku kallinn niðri er búinn að þétta hjá sér hurðina og kaupa sér viftu til að blása reyknum frá hurðinni og ræða við vin sinn verkfræðinginn sem er sérfræðingur í loftræstingu :) Hann er allur af vilja gerður en vantar kannski verkfærnina. Þetta er orðið eilítið betra og leitar ekki eins mikið í herbergið hennar Nínu Berglindar en er samt svona viðloðandi. Við þurfum nú bara að fara að hugsa málið hvort við eigum að þrýsta á leigusalann að setja hurð á milli eða hvort við eigum að finna okkur annað húsnæði. Leigusalinn er nefnilega líka allur af vilja gerður svo þetta á allt saman eftir að fara vel - komin yfir fyrsta áfallið og núna er bara að vinna í þessu máli.

Sumarið er komið hingað eins og til Íslands. Alger steik hérna fyrir utan hjá okkur og eiginlega óbærilegt þar sem við erum á solsiden og í miðjunni á götunni. Húsin hinum megin fá nefnilega eiginlega enga sól þar sem það er svo stutt á milli húsanna og forgarðurinn er í norður - veit ekki hvort við erum heppin eður ei. En æðislegt að geta labbað niður að søerne og fengið smá andvara og leyft Nínu að hjóla eða hlaupa eða línuskautast þar. Svo er fólk alltaf að grilla hérna fyrir utan og krakkarnir að leika sér og bara svakalega kósý. Nína er ekkert mikið að vilja leika því hún talar ekki mikið dönskuna enn en það er allt að koma - þau segja á leikskólanum að hún sé byrjuð að tala einhverja dönsku og það er á undan okkar áætlun :þ


Sófinn kom svo á fimmtudaginn - oh hvað hann er geðveikur, djúpur og breiður eins og áin og æðislegt að geta slakað á í honum. Fyrir þá sem ekki vita var ekki hægt að slaka á í gamla sófanum okkar - meira svona tepartý sófi, sitja á bríkinni og krossleggja fætur týpan. Hann er núna í fjórum pörtum niðrí geymslu.
En það skapaði auðvitað annað vandamál - nú þurfum við örugglega innanhúshönnuð til að raða uppá nýtt í stofunni. Erum búin að prufa allskonar útfærslur og erum vonandi að finna lausn á þessu.

Svo bara nóg að gerast framundan Þorvaldur bróðir á leiðinni, ég á leiðinni til London, Stymmi bróðir og fjölskylda á leiðinni, Stefnir bróðir og fjölskylda á leiðinni til Svíþjóðar og við skellum okkur í smá heimsókn þangað og svo bara sumarfrí útum alla Evrópu :)

Fyrir svo utan það er Hjálmar kannski að fara að "leika" í kvikmynd... meira um það síðar.

p.s. nýjar myndir komnar í maí albúmið - takið eftir hvað Hjálmari finnst þumallinn góður :)

sunnudagur, apríl 30, 2006

Neighbours

Þá er fluttur inn maður á neðri hæðina sem er í sjálfu sér allt í lagi þó það hafi verið kósý að vera svona ein í þessu húsi. Hann flutti inn í gær og nú þegar er allt angandi af sígarettureyk - kannski ekki við öðru að búast af Dana. Er búin að ræða við hann og hann segist ekki þola lyktina af sígarettum og reyki því alltaf útum gluggann.... hvernig getur hann sagt þetta þegar hann angar af reyk sjálfur ég næ því ekki.
Þetta byrjar ekki vel en ég er búin að hafa samband við leigusalann og bíð eftir hvað kemur útúr því... kannski væri hægt að setja upp hurð á milli íbúðanna - það myndi leysa ýmislegt :þ

Jæja fall er fararheill.

Nína Berglind er farin að babla á dönsku og er hressari á leikskólanum þó hún sé ekki búin að eignast góða/r vinkonu/r enn en það kemur. Kannski gerist það þegar hún fer í koloni = þriggja nátta/fjögurra daga sveitaferð með leikskólanum. Við erum ekki alveg að sjá hvernig við eigum að höndla það en erum búin að leigja þyrlu til að vera standby ef þetta verður of erfitt :/

Hjálmar er alltaf sami sjarmörinn og heillar alla uppúr skónnum sem líta í áttina til hans. Hann mætti alveg hætta að heilla mömmu sína klukkan sex á morgnana samt....

Fórum í mat til Guðnýjar frænku í Slagelse áðan sem er um klukkutíma bíltúr héðan. Hef ekki komið þangað síðan ég var sirka 9 ára og það var mjög gaman rifjaði upp gamlar minningar meðal annars eitt atvik varðandi Freddie Mercury sem bara Selma systir skilur LOL

Gaman að hitta fjölskyldumeðlimi sem maður hefur ekki hitt í mörg ár og börnin þeirra sem maður hefur aldrei hitt. Nínu Berglindi leist mjög vel á Julie frænku sína sem er 6 ára og léku þær sér vel saman. Endurtökum þetta vonandi fljótlega aftur.

laugardagur, apríl 29, 2006

Roskilde Festival

Nú er það komið á hreint að það verður farið á Roskilde festival í sumar.  Nóg af hljómsveitum til að kíkja á.  Þetta verður mín fyrsta ferð á Roskilde og kominn tími til.  Það eru tveir tónlistarmenn sem ég verð að sjá, Bob Dylan og Morrissey.  Búinn að bíða lengi eftir að sjá Morrissey á tónleikum, aldrei að vita að Atli muni kíkja með þegar hann fréttir að Morrissey mun spila.
Var að frétta að Morrissey væri hugsanlega á leiðinni til Íslands og ætlar að halda tónleika í sumar.  Ef einhver veit meira um það mál þá má hann láta mig vita.
Keypti einnig miða fyrir okkur og Guðjón á Antony & the Johnsson en hann verður með tónleika í Köben í september.  Fórum á tónleika með honum í Fríkirkjunni um jólin í fyrra.  Þeir tónleikar voru frábærir og það verður gaman að sjá hann aftur.  Takk fyrir ábendinguna Hjalti.
Erum búin að fara eina ferð í Tívolí.  Það er alltaf gaman að fara í Tívolíið hér í Köben, það er einhver ákveðinn sjarmi yfir Tívolíinu.  Nínu Berglindi finnst rosalega gaman að fara í tækin þar.  Fór aftur og aftur í tækin svo við verðum að fara þangað aftur fljótlega.  Nýtt tæki verður opnað 1.maí sem verður gaman að prófa.  Hér eru upplýsingar um Himmelskibet.
Eigum það til að bæta við myndum á myndasíðuna án þess að blogga eitthvað svo þið verðið bara að skoða hana reglulega.

þriðjudagur, mars 28, 2006

Ok ok ok...

... þá er komið að því. Fyrsta bloggið frá Kóngsins Köben. Það er ýmsu að venjast hér og sem frekjuÍslendingar er það ekki gott. Til dæmis þá erum við að bíða eftir nettengingu og það tekur þrjár vikur at least. Núna tveimur vikum eftir að við pöntuðum netið og heimasímann kemur bréf sem tilkynnir okkur hvaða heimasímanúmeri okkur var úthlutað og að það muni koma annað bréf með internet upplýsingunum og svo stóð að einhver myndi koma fljótlega að tengja þetta allt saman. Ég er viss um að það er bara on off takki hérna einhversstaðar!
Annað dæmi er að við sóttum um bankareikning og fengum reikningsnúmer og okkur sagt að Dankortið okkar kæmi í pósti og svo pin-númerið stuttu seinna ásamt leyniorði í netbankann. Tveir þriðju stóðust og fór ég í bankann í dag þrem vikum síðar til að ýta á eftir þessu með netbankann.....

En sem betur fer erum við með einhvern nágranna sem læsir ekki þráðlausu tengingunni sinni svo við stelum af honum á meðan - nema hann sé að stela af okkur tilbaka.... sumir hafa ekkert annað að gera.

Yndislegi drengurinn okkar fékk nafnið Hjálmar dúlla. Við eigum eftir að skíra en búin að nefna svo þetta er fast við hann enda ber hann það vel. Hann fór í fyrstu sprautuna sína í dag og brosti bara til mín á meðan....er hægt að biðja um meira krútt?

Nína Berglind er byrjuð í leikskólanum og gekk það vel til að byrja með en svo kom bakslag og held ég að það sé tungumálaörðugleikum um að kenna. Þeir sem eiga eða þekkja til fjögurra ára telpna vita að allt snýst um hlutverkaleiki og þar skiptir tungumálið miklu. En þetta er að skána og ætli hún verði ekki farin að kenna pabba sínum dönsku fyrr en varir. Ég stend mig hinsvegar eins og hetja og á áhuga móður minnar á danskri tungu mikið að þakka - eins og þetta fór í taugarnar á mér þegar ég var krakki og unglingur og ung kona....

Svo er vorið bara að koma eins og kallað og krakkarnir í götunni okkar eru farin að æfa sig að hjóla án hjálpardekkja - Nína Berglind er ekki alveg tilbúin í það enn en ég sagði henni að við myndum gera það í sumar og þá var það ákveðið.

Nú hlökkum við bara til að fá fyrstu gestina um páskana og þá verður mikið stuð...

p.s. komnar nýjar myndir - smella á myndaklasann hérna til hliðar ;-) (svona fyrir tengdamömmu)

föstudagur, janúar 20, 2006

Annað barn og annað húsnæði

Þá erum við búin að breyta bloggútlitinu í takt við nýja strauma.

Litli J.Óli okkar fæddist 25. desember og er því sannkallaður jólastrákur. Hann fæddist heima og allt gekk eins og í sögu eins og við var að búast... var soldið að flýta sér en mér fannst það ekkert leiðinlegt. Engillinn okkar var 15 merkur og 53 cm og dafnar vel.
Það eina sem vantar er nafn áður en viðurnefnin fara að festast við hann. Ef einhver er með góða hugmynd endilega senda á okkur :-)

Við erum komin með íbúð í Kaupmannahöfn á frábærum stað. Vona að íbúðin sé eins frábær en við sendum Dag vin okkar að skoða hana svo hann fær að heyra það þegar við komum út... (eða ekki) Hef enga trú á öðru en að þetta sé fínt. Er farin að innrétta í huganum. Það er soldið erfitt þar sem það er svo langt síðan við bjuggum með okkar húsmunum að ég veit ekkert hvað við eigum lengur.
Íbúðin er í Kartoffelrækkerne eða "Kartöflugörðunum heima" eins og við kjósum að kalla það. Ferlega sæt hús sem voru byggð seint á 19. öld og mynda nokkrar götur í miðbænum. Mjög góð stemmning víst og mikið gert saman eins og sést á heimasíðunni www.kartoffelraekkerne.dk ef einhver skyldi hafa áhuga og ekkert betra að gera.

Það er víst pláss fyrir gesti svo ekki vera feimin...


Að lokum erum við búin að taka út allar gömlu myndirnar og ætlum að flokka þær betur en það eru komnar inn nýjar og fleiri bætast við á næstunni.