fimmtudagur, nóvember 24, 2005

Móðursýki "ófrískra" kvenna

Er ekki tími til kominn að blogga? Held bara það sé komið meira en hálft ár síðan síðast og ég hef ekkert annað að gera þessa dagana hvort eð er. Ligg bara og bíð eftir að tíminn líði svo Úddi litli komi ekki of snemma í heiminn. Skrítið að maður skuli missa svona allan áhuga á sjónvarpi uppúr þurru. Sigtryggur kemur með nýja þætti og nýjar myndir í hverri viku sem ég get horft á þegar mig lystir - en nei enginn áhugi. Er samt dugleg að lesa og ætla að fara að prjóna eitthvað sniðugt á barnið :)
Vorum einmitt hjá Áslaugu ljósmóður í dag og hún var að hlæja að því að þetta hafi verið svo mikið andlegt þegar Sigtryggur fór til Kanada um daginn og ég fékk þessa samdrætti og var með allan tímann meðan hann var úti og lagaðist nánast um leið og ég vissi að hann var um borð í vél númer eitt á leið heim frá Kamloops!! Er maður svona hrikalega eigingjarn undir niðri, ég meina hvað er málið? Það eru þekktar sögur um konur sem fara svona af stað bara af því maðurinn þeirra fer til útlanda. Viljum við ekki hafa þá viðstadda, viljum við að þeir séu á nálum allan tímann meðan þeir eru úti og geti engan veginn notið sín eða verðum við bara svona skelfingu lostnar að vera einar og yfirgefnar og líkaminn tekur öll völd til að fá manninn heim hið snarasta. Það þarf eitthvað að fara að rannsaka þetta held ég.

En allavega þá eru fimm dagar í leyfilega heimafæðingu og þá verður öndinni varpað léttar. Ætla nú samt ekki að fara að æða af stað til að koma fæðingu í gang því ég vil hafa litla drenginn okkar í sem bestri aðstöðu til að takast á við heiminn...sérstaklega af því það er vetur og allskonar veikindi sem stóra systir getur dregið með sér heim af leikskólanum.

Talandi um stóru systur. Hún er að taka þessu hlutverki ansi alvarlega og er strax búin að mynda sérstaklega sterkt sambandi við litla bróður sinn... ég vona bara að þetta sé ekki stelpa því þá fær hún væntanlega taugaáfall greyið!

Best að yfirblogga sig ekki svona í fyrsta skiptið í langan tíma....