fimmtudagur, maí 05, 2005

Aumingja Heiða

Ég drap hana í fyrradag og er enn miður mín. Var að reyna að ná henni í box og hún faldi sig undir örbylguofninum og vildi ekki koma undan svo ég færði hann til og á endanum kramdist hún undir þar sem kom svona bunga undan ofninum og kipptist öll til og ég stóð bara í eldhúsinu og öskraði..... best að jarða hana við hátíðlega athöfn svo ég komist einhvern tímann yfir þetta.
Kosturinn er hins vegar sá að núna er ekki músaskítur um allt eldhús þegar við komum niður til að fá okkur morgunmat.... best að líta á björtu hliðarnar!

Á öðrum nótum þá eru bara tíu dagar þangað til við förum til New York og tvær vikur þangað til við komum til Íslands. Gengur hægt að pakka og ég hlakka ekkert sérlega til að burðast með allt draslið í fjórar flugvélar... .tala nú ekki um að þurfa að skilja eitthvað af því eftir á JFK í fjóra daga. Hlakka hins vegar til að sjá svipinn á tollurunum þegar við reynum að koma þessu í gegn í Keflavík... verði þeim að góðu ef þeir nenna að leita í herlegheitunum.

Það verður leiðinlegt að fara úr góða veðrinu hérna og líka að kveðja allt liðið. Mike og September ætla að halda þetta svakalega partí 14. maí og við ætlum að hafa það bara kveðjupartíið okkar í leiðinni. Kannski við setjum Nínu Berglindi í næturpössun hjá Gloriu uppáhaldinu hennar... aldrei að vita.

Og nú að byrja að snúa tímanum hægt og rólega við...