Asnaðist til að horfa á þáttinn hennar Opruh í gær um konur um allan heim. Sá þar þetta fína myndband frá Íslandi og viðtal við nokkrar konur þar og allt í lagi. Svo kemur hún Svanhildur Hólm í þáttinn og talar bara um hvað það sé eðlilegt og algengt að konur sofi hjá á fyrsta stefnumóti og vilji svo jafnframt ekki endilega áframhaldandi samband og hvað þær horfðu mikið á ameríska sjónvarpsþætti!!!! Ég átti ekki til eitt aukatekið orð og varð bara hálfskömmustuleg heima í sófa. Nú þarf ég að fara að hitta fólk og svara fyrir þetta..... Varð ekki allt vitlaust þegar Flugleiðir auglýstu einhvern tímann flugfreyjur á djamminu og að það væri auðvelt að ná sér í einnar nætur gaman í Reykjavík?! Hvar eru feministarnir núna?
Er ekki eitthvað annað merkilegt við íslenskar konur? Ekki það að þetta sé merkilegt eða algengt - allavega ekki í þeim hópi sem ég tilheyri.
Er ekki merkilegra að við áttum fyrsta kvenforsetann, er ekki merkilegra að flestar konur vinna úti ásamt því að eiga fjölskyldu, er ekki merkilegra að íslensk kona hefur unnið verðlaun á Ólympíuleikum, er ekki merkilegra hvað stór hluti kvenna á Íslandi er menntaður á einn eða annan hátt, er ekki allt annað varðandi íslenskar konur merkilegra en þetta?
þriðjudagur, apríl 26, 2005
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
1 ummæli:
Halelúja!!
Það á að sýna þáttin hér á miðvikudag bíð spennt þetta er búið að fá frekar mikla umfjöllun. Jæja nú fer að styttast í heimkomuna hlakka til að sjá ykkur
Knús og kossar Nanna
Skrifa ummæli