þriðjudagur, apríl 26, 2005

Íslenskar lauslætisdrósir

Asnaðist til að horfa á þáttinn hennar Opruh í gær um konur um allan heim. Sá þar þetta fína myndband frá Íslandi og viðtal við nokkrar konur þar og allt í lagi. Svo kemur hún Svanhildur Hólm í þáttinn og talar bara um hvað það sé eðlilegt og algengt að konur sofi hjá á fyrsta stefnumóti og vilji svo jafnframt ekki endilega áframhaldandi samband og hvað þær horfðu mikið á ameríska sjónvarpsþætti!!!! Ég átti ekki til eitt aukatekið orð og varð bara hálfskömmustuleg heima í sófa. Nú þarf ég að fara að hitta fólk og svara fyrir þetta..... Varð ekki allt vitlaust þegar Flugleiðir auglýstu einhvern tímann flugfreyjur á djamminu og að það væri auðvelt að ná sér í einnar nætur gaman í Reykjavík?! Hvar eru feministarnir núna?
Er ekki eitthvað annað merkilegt við íslenskar konur? Ekki það að þetta sé merkilegt eða algengt - allavega ekki í þeim hópi sem ég tilheyri.
Er ekki merkilegra að við áttum fyrsta kvenforsetann, er ekki merkilegra að flestar konur vinna úti ásamt því að eiga fjölskyldu, er ekki merkilegra að íslensk kona hefur unnið verðlaun á Ólympíuleikum, er ekki merkilegra hvað stór hluti kvenna á Íslandi er menntaður á einn eða annan hátt, er ekki allt annað varðandi íslenskar konur merkilegra en þetta?

miðvikudagur, apríl 13, 2005

Það er komið sumar tralalalala...

Náði henni Heiðu húsamús í kassa um daginn og setti hana út, það var nú ágætt að losna við hana úr eldhúsinu þessa litlu elsku. En viti menn það tók hana ekki nema sólarhring að klifra aftur upp og í þetta sinn í arininn (ég geri auðvitað ráð fyrir að þetta sé Heiða). Það er nú kannski öllu verra að hafa hana á gólfinu inní stofu en uppá eldhúsbekk svo ég tróð plastpokum í gatið og hef ekki séð hana síðan.... vona eiginlega að ég sjá hana ekki aftur.

Mikið líður tíminn annars hratt. Það er bara komið vor og í Kamloops þýðir það sól og sumar. Bærinn hefur bara lifnað við, fullt af fólki niðrí bæ og í görðunum hjá sér og ég veit ekki hvað og hvað. Það fer líka að styttast í að við leggjum í hann. Förum til New York 16. maí og ætlum að eyða þar nokkrum dögum. Það verður svo gaman því ég hef ekki komið þangað síðan ´93 og Sigtryggur aldrei. Svo verður gott að koma heim til Íslands í eins og einn dag áður en ég skelli mér til Amsterdam með saumó!! Vona að ég verði fljót að snúa sólarhringnum við....

Nína Berglind er að æfa dans fyrir stóru ballettsýninguna sem verður því miður sunnudaginn eftir að við förum en það er gaman að horfa á þessar litlu sætu dansa YMCA og ég fæ að taka þetta upp áður en hún hættir svo fólkið heima geti séð hvað þetta er krúttlegt.

Svo er búið að loka skíðasvæðinu og við setjum snjóbrettaiðkun á hold í bili þó svo að við séum byrjuð að hugsa um að fara til Þýskalands, Frakklands eða Ítalíu um næstu jól eða bara sem fyrst... erum orðin hooked!!!!