Þar sem það er svo langt síðan við höfum skrifað eitthvað ætla ég að stikla á stóru bara.
Erum orðin mikið betri á snjóbrettunum... sérstaklega eftir að við fórum í kennslu.
Nína Berglind hefur líka farið í skíðakennslu og fer aftur fljótlega. Hún var soldið fyndin þessi elska þegar hún fór í skíðaskólann. Hún þarf alltaf að stjórna öllu og ákvað þegar hún var búin með nokkrar ferðir niður litlu brekkuna að núna væri hún bara of þreytt til að renna sér meira og settist niður meðan hin börnin héldu áfram að láta ýta sér niður brekkuna.
Því miður virðist þó snjórinn ætla að hverfa áður en við náum fullkomnun því þetta er hlýjasti vetur hér í Kamloops í meira en 30 ár - til dæmis var 20° hiti seinnipartinn í gær og verður örugglega toppað í dag.
Edda María og Jón Árni koma svo á fimmtudaginn eftir viku til Vancouver og við leggjum í hann daginn eftir til að eyða helginni í stórborginni og pikkum þau auðvitað upp í leiðinni. Við ætlum að fara með þau á snjóbretti og í hundasleðaferð og gullgrafaraleiðangur og loksins á Qua'out veitingastaðinn - sem er indíánaveitingastaður fyrir utan bæinn. Verðum að vera grand á því þar sem þetta verða einu gestirnir okkar (sem ekki tengjast vinnunni hans Sigtryggs) hér í Kamloops.
Árni Þór sem vinnur með Sigtryggi var svo góður að koma með páskaegg fyrir Nínu Berglindi sem hún bíður spennt eftir að fá að narta í... "má ég núna fá páskaeggið mitt?" segir hún og brosir blítt..... þurfum bara að streitast á móti þessu fallega brosi í tíu daga í viðbót ;)
Sigtryggur er að fara á morgun í árlega ferð sem kölluð er "Cold Hole". Snýst um að veiða fisk uppúr lítilli holu á ísilögðu vatni og drekka áfengi og skjóta svo upp eldflaugum og setja jafnvel eins og eina tvær sprengjur í til að auka áhrifin - macho ferð segi ég bara. Þeir ætla meira að segja að reyna að fara með djúpsteikingarpott útá vatnið og tempuradeig til að geta djúpsteikt fiskinn beint uppúr vatninu eins og gert er í Japan... þar sem einn vinur okkar er nú einu sinni hálfur Japani.
Á meðan ætlum við Nína Berglind uppí Sun Peaks í fleiri skíða/brettakennslustundir og jafnvel kannski til Kelowna til að sjá hvað er merkilegt þar.
Og inná milli ætlum við að njóta sumarblíðunnar hérna þar sem við búumst við því að maí verði á Íslandi eins og hann er alltaf.
Ooog það fjölgaði á heimilinu í morgun þar sem Heiða litla húsamús er komin til að vera (vona samt ekki) hún felur sig í eldavélinni og fer undir helluna ef maður grípur hana glóðvolga nartandi í kex og svo niður í ofninn ef maður er eitthvað að ybba sig... fínar þessar amerísku eldavélar... fyrir mýs!
fimmtudagur, mars 10, 2005
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
1 ummæli:
fra selmu reginusystur
hvad er thetta med okkur systur og mys thetta arid!! sem betur fer er farid ad hlyna herna i londres svo vid hofum ekki sed mus sidan mamma var i heimsokn og sa eina hlaupa inni eldhus ur stofunni... ekki gaman thegar gestir verda vitni af thessum othverra...
Skrifa ummæli