Keypti dúkkuhús fyrir Nínu Berglindi í gær (tapa mér alltaf þegar ég fer í dótabúðina :/ fer þangað bara af illri nauðsyn eins og til að kaupa afmælisgjafir bara svona til að forðast óþarfa útgjöld) og hún er svo ánægð með það. Heyrði útundan mér í gær þegar hún var að vesenast með húsið "Ég er svo ánægð, I'm so ánægð!" frekar sætt og svo faðmaði hún húsið og mömmu sína :) Svo verð ég bara að halda þessu við með því að kaupa reglulega húsgögn í húsið og viðbætur. Þau kunna að féfletta mann þessi dótafyrirtæki.....
Nýjasta orðið hennar spratt fram þegar við vorum í súperstore hérna um daginn og við löbbuðum framhjá nærbuxum í afsláttarkörfu: "Mamma this is COOL" "and this is also so COOL" (með þvílíkum hreim!) Bíðum bara spennt eftir að heyra "Whatever" fyrst hún er komin í þennan gír.
Sigtryggur er hægt og rólega að jafna sig eftir helgina og er orðinn mjög útitekinn eftir að hafa setið á ísnum í glampandi sól í þrjá daga. Ég ætlaði því að finna mér sólbaðsstofu sem spreyjar á mann brúnkukremi (til að líta ekki út eins og vofa við hliðina á honum) en það er ekki til hér í þessum bæ:/ Ekki fer ég að hætta mér í venjulega ljósabekki. Það er einmitt verið að tala um það hérna eins og heima sýndist mér að banna ljósabekki fyrir fólk undir lögaldri og að allar ljósastofur þurfa að skaffa sólarvörn. Svo þurfa þær að vera með skilti sem segir að þetta sé stórhættulegt (Eins og á sígarettupökkunum). Gæti hljómað svona "LJÓS DREPA".
fimmtudagur, mars 17, 2005
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
1 ummæli:
Cool! Hún er nú algjör moli þessi dúlla! Svo fær hún frítt í leikskóla þegar hún kemur heim, eða því lofar R-listinn núna. Skoðaðu Moggann!
Eru ekki til brúnku-Commodynes í Canada? hvurslags hallæri er þarna eiginlega! Allar siðmenntaðar þjóðir eiga svona commódýnur :-)
Skrifa ummæli