þriðjudagur, mars 29, 2005

"I'm an Icelandic Cowboy on an Icelandic Pony"

First thing's first - fullt af nýjum myndum og nokkur ný video :)

Búhúhú... Edda og Jón Árni eru farin til Danmerkur og við erum strax farin að sakna þeirra. Það var svo gaman að fá gesti og við létum bara eins og við værum í útlöndum líka :) Fórum heilmikið á bretti og veðurguðirnir voru svo góðir að kæla pleisið aðeins niður svo snjórinn væri skíðamönnum bjóðandi. Síðan var farið aftur á hundasleða með Steve vini okkar en í þetta sinn var ferðin lengri, á skemmtilegri stað og næstum helmingi fleiri hundar og þar af leiðandi meiri hraði. Hundarnir voru líka allir ungir og viljugir svo Steve var ekkert að halda aftur af þeim...whoa!

Sigtryggur og Jón Árni keyptu sér svona líka fína kúrekahatta í safnið og skyrtur í stíl í Vancouver. Í tilefni af því skelltum við okkur á Cactus Jack's hér í sveitinni og það kvöld var akkúrat "Mechanic Bullriding" kvöld.... við urðum öll að skella okkur á hann nema Edda og þetta var skemmtileg upplifun. Sigtryggur átti fyndnasta augnablik kvöldsins og Jón Árni það næstfyndnasta en brandarinn tapar sér í þýðingu svo ef þið viljið sjá videó af herlegheitunum þá bara nefna það :)

Skelltum okkur til Kelowna í Batting range til að æfa softball sveifluna á laugardaginn. Gekk svona upp og niður en Nína Berglind fann sig alveg. Hún stóð sig eins og hetja og henni fannst þetta svo rosalega gaman að þegar ég fór með hana útúr búrinu þá trylltist hún og henti kylfunni í jörðina og skellti sér svo sjálf niður eins og sönnum hafnaboltaleikmanni sæmir!

fimmtudagur, mars 17, 2005

Aukinn orðaforði

Keypti dúkkuhús fyrir Nínu Berglindi í gær (tapa mér alltaf þegar ég fer í dótabúðina :/ fer þangað bara af illri nauðsyn eins og til að kaupa afmælisgjafir bara svona til að forðast óþarfa útgjöld) og hún er svo ánægð með það. Heyrði útundan mér í gær þegar hún var að vesenast með húsið "Ég er svo ánægð, I'm so ánægð!" frekar sætt og svo faðmaði hún húsið og mömmu sína :) Svo verð ég bara að halda þessu við með því að kaupa reglulega húsgögn í húsið og viðbætur. Þau kunna að féfletta mann þessi dótafyrirtæki.....

Nýjasta orðið hennar spratt fram þegar við vorum í súperstore hérna um daginn og við löbbuðum framhjá nærbuxum í afsláttarkörfu: "Mamma this is COOL" "and this is also so COOL" (með þvílíkum hreim!) Bíðum bara spennt eftir að heyra "Whatever" fyrst hún er komin í þennan gír.

Sigtryggur er hægt og rólega að jafna sig eftir helgina og er orðinn mjög útitekinn eftir að hafa setið á ísnum í glampandi sól í þrjá daga. Ég ætlaði því að finna mér sólbaðsstofu sem spreyjar á mann brúnkukremi (til að líta ekki út eins og vofa við hliðina á honum) en það er ekki til hér í þessum bæ:/ Ekki fer ég að hætta mér í venjulega ljósabekki. Það er einmitt verið að tala um það hérna eins og heima sýndist mér að banna ljósabekki fyrir fólk undir lögaldri og að allar ljósastofur þurfa að skaffa sólarvörn. Svo þurfa þær að vera með skilti sem segir að þetta sé stórhættulegt (Eins og á sígarettupökkunum). Gæti hljómað svona "LJÓS DREPA".

fimmtudagur, mars 10, 2005

Uppdeit

Þar sem það er svo langt síðan við höfum skrifað eitthvað ætla ég að stikla á stóru bara.

Erum orðin mikið betri á snjóbrettunum... sérstaklega eftir að við fórum í kennslu.
Nína Berglind hefur líka farið í skíðakennslu og fer aftur fljótlega. Hún var soldið fyndin þessi elska þegar hún fór í skíðaskólann. Hún þarf alltaf að stjórna öllu og ákvað þegar hún var búin með nokkrar ferðir niður litlu brekkuna að núna væri hún bara of þreytt til að renna sér meira og settist niður meðan hin börnin héldu áfram að láta ýta sér niður brekkuna.

Því miður virðist þó snjórinn ætla að hverfa áður en við náum fullkomnun því þetta er hlýjasti vetur hér í Kamloops í meira en 30 ár - til dæmis var 20° hiti seinnipartinn í gær og verður örugglega toppað í dag.

Edda María og Jón Árni koma svo á fimmtudaginn eftir viku til Vancouver og við leggjum í hann daginn eftir til að eyða helginni í stórborginni og pikkum þau auðvitað upp í leiðinni. Við ætlum að fara með þau á snjóbretti og í hundasleðaferð og gullgrafaraleiðangur og loksins á Qua'out veitingastaðinn - sem er indíánaveitingastaður fyrir utan bæinn. Verðum að vera grand á því þar sem þetta verða einu gestirnir okkar (sem ekki tengjast vinnunni hans Sigtryggs) hér í Kamloops.

Árni Þór sem vinnur með Sigtryggi var svo góður að koma með páskaegg fyrir Nínu Berglindi sem hún bíður spennt eftir að fá að narta í... "má ég núna fá páskaeggið mitt?" segir hún og brosir blítt..... þurfum bara að streitast á móti þessu fallega brosi í tíu daga í viðbót ;)

Sigtryggur er að fara á morgun í árlega ferð sem kölluð er "Cold Hole". Snýst um að veiða fisk uppúr lítilli holu á ísilögðu vatni og drekka áfengi og skjóta svo upp eldflaugum og setja jafnvel eins og eina tvær sprengjur í til að auka áhrifin - macho ferð segi ég bara. Þeir ætla meira að segja að reyna að fara með djúpsteikingarpott útá vatnið og tempuradeig til að geta djúpsteikt fiskinn beint uppúr vatninu eins og gert er í Japan... þar sem einn vinur okkar er nú einu sinni hálfur Japani.

Á meðan ætlum við Nína Berglind uppí Sun Peaks í fleiri skíða/brettakennslustundir og jafnvel kannski til Kelowna til að sjá hvað er merkilegt þar.

Og inná milli ætlum við að njóta sumarblíðunnar hérna þar sem við búumst við því að maí verði á Íslandi eins og hann er alltaf.

Ooog það fjölgaði á heimilinu í morgun þar sem Heiða litla húsamús er komin til að vera (vona samt ekki) hún felur sig í eldavélinni og fer undir helluna ef maður grípur hana glóðvolga nartandi í kex og svo niður í ofninn ef maður er eitthvað að ybba sig... fínar þessar amerísku eldavélar... fyrir mýs!