laugardagur, febrúar 19, 2005
Beikon
Bara af því það er einhver gúrkutíð í gangi.... mig dreymdi að ég var að syngja karíókí með Kevin Bacon og það var svona rosalega gaman :) Vaknaði allavega í stuði og átti góðan dag.
þriðjudagur, febrúar 15, 2005
Whoa!!
Þvílíkt gaman á hundasleðanum... fengum næstum því ekki að fara því börn yngri en 5 ára mega ekki vera ein á sleðanum. Við spurðum nú sérstaklega að því hvort við þyrftum ekki bara einn sleða þar sem Nína Berglind væri bara 3 ára og þá var sagt nei þið þurfið tvo!!! Týpískt eitthvað - við urðum alveg fjúkandi vond - búið að eyðileggja heilan laugardag fyrir okkur með þessum mistökum svo ég lét hana heyra það stelpuna og sagðist vilja fá góðan afslátt EF okkur dytti í hug að láta verða af þessu seinna meir. Svo ákváðum við að fara í göngutúr um Sun Peaks þorpið í staðinn fyrir að keyra strax heim aftur og þá hringdi vinkonan í okkur og sagði að "hundasleða" Steve væri tilbúinn að keyra einn sleðann með annað okkar og litluna í :) við urðum svo glöð og þetta var svo gaman og Steve alveg frábær. Hann er búinn að vera að rækta þessa hunda í mörg ár og keppti áður í stóru hundasleðakeppnunum uppí Alaska og Yukon svo hann er ekta pró. Við erum þess vegna búin að ákveða að fara aftur en þá á annan stað þar sem þetta er ekki svona mikið túristadæmi og þá fáum við mikið meira fyrir peninginn auðvitað og Nína Berglind kemur þá ekki með heldur. Hlökkum mikið til.
Svo var haldið þetta þvílíka partí um kvöldið... ákváðum að bjóða húsið okkar undir afmælisveislu fyrir Chris og það var rosastuð... fullt af fullu fólki og ófullu og pictionary og Sigtryggur tapaði sér í dansinum!! Aldrei vill hann dansa við mig en Rob vildi hann endilega dansa við.... maður spyr sig?

sunnudagur, febrúar 06, 2005
Nýjar myndir
Bara að láta vita að það eru komnar inn nýjar myndir... bæði í desemberalbúmið og svo í ný albúm fyrir janúar og febrúar ;)
Skelltum okkur í smá bíltúr útfyrir bæinn í gær og fundum þennan fína snjó...við óðum nánast upp að mjöðmum og Nína Berglind rétt náði með hausinn uppúr :) Hægt að sjá myndir af þessu. Ágætt að hafa þennan snjó hérna rétt fyrir utan en ekki í bænum.
Nú ættum við líka að geta farið á brettin aftur þar sem vorveðrið um daginn fór eitthvað illa í brekkurnar og svo er planið að fara á hundasleða næsta laugardag búið að panta og allt. Það er nú ekki hægt að hafa búið í Kanada og aldrei farið á hundasleða... eða hvað? Það er allavega sú hugmynd sem Bandaríkjamenn upp til hópa (ekki bara redneckar) hafa af Kanadabúum - að þeir fari allra sinna ferða á hundasleða svona eins og Íslendingar búa í snjóhúsum!

Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)