fékk að opna einn pakka á meðan við gengum frá og höfðum til eftirréttinn (Sigtryggur var reyndar enn að borða því eins og allir vita er hann lengur en meðaljón að borða og ég fljótari!!) Svo var bara sest niður og Nína Berglind sá um að sækja pakkana og opna þá fyrir okkur líka og ég þakkaði Guði fyrir að það voru ekki fleiri pakkar í þetta skiptið. Nína Berglind fékk litla tölvu sem er þroskaleikfang og eru þau strax farin að slást um það feðginin hver fær að leika sér með hana! Spurning hver er að þroskast? Ég fékk þennan svaka fína og mjúka slopp sem mér finnst mjög leiðinlegt að geta ekki tekið með mér til Íslands.... en svo fékk ég líka tvær bækur í bókaröðinni um No.1 Ladies Detective Agency sem eru alveg yndislegar (takk fyrir Soffía að benda mér á hana). Hlökkum til að halda litlu jólin á Fróni áður en langt um líður. Er einmitt að eyða tímanum núna því klukkan er bara sex og ég vaknaði fyrir ca. hálftíma síðan en við eigum ekki að mæta útá flugvöll fyrr en átta.... svona er maður spenntur eins og börnin á jólunum :) En það er ágætt að byrja að snúa tímanum við í rólegheitunum þar sem það er átta tíma munur.
sunnudagur, desember 26, 2004
GLEÐILEG JÓL.....
.... allir saman! Við höfðum það svakalega gott um jólin. Kalkúnninn heppnaðist vel og sósan og allt og rauðvínið var gott og Nína Berglind var bara ótrúlega róleg og sat nánast í gegnum borðhaldið :)
fékk að opna einn pakka á meðan við gengum frá og höfðum til eftirréttinn (Sigtryggur var reyndar enn að borða því eins og allir vita er hann lengur en meðaljón að borða og ég fljótari!!) Svo var bara sest niður og Nína Berglind sá um að sækja pakkana og opna þá fyrir okkur líka og ég þakkaði Guði fyrir að það voru ekki fleiri pakkar í þetta skiptið. Nína Berglind fékk litla tölvu sem er þroskaleikfang og eru þau strax farin að slást um það feðginin hver fær að leika sér með hana! Spurning hver er að þroskast? Ég fékk þennan svaka fína og mjúka slopp sem mér finnst mjög leiðinlegt að geta ekki tekið með mér til Íslands.... en svo fékk ég líka tvær bækur í bókaröðinni um No.1 Ladies Detective Agency sem eru alveg yndislegar (takk fyrir Soffía að benda mér á hana). Hlökkum til að halda litlu jólin á Fróni áður en langt um líður. Er einmitt að eyða tímanum núna því klukkan er bara sex og ég vaknaði fyrir ca. hálftíma síðan en við eigum ekki að mæta útá flugvöll fyrr en átta.... svona er maður spenntur eins og börnin á jólunum :) En það er ágætt að byrja að snúa tímanum við í rólegheitunum þar sem það er átta tíma munur.
fékk að opna einn pakka á meðan við gengum frá og höfðum til eftirréttinn (Sigtryggur var reyndar enn að borða því eins og allir vita er hann lengur en meðaljón að borða og ég fljótari!!) Svo var bara sest niður og Nína Berglind sá um að sækja pakkana og opna þá fyrir okkur líka og ég þakkaði Guði fyrir að það voru ekki fleiri pakkar í þetta skiptið. Nína Berglind fékk litla tölvu sem er þroskaleikfang og eru þau strax farin að slást um það feðginin hver fær að leika sér með hana! Spurning hver er að þroskast? Ég fékk þennan svaka fína og mjúka slopp sem mér finnst mjög leiðinlegt að geta ekki tekið með mér til Íslands.... en svo fékk ég líka tvær bækur í bókaröðinni um No.1 Ladies Detective Agency sem eru alveg yndislegar (takk fyrir Soffía að benda mér á hana). Hlökkum til að halda litlu jólin á Fróni áður en langt um líður. Er einmitt að eyða tímanum núna því klukkan er bara sex og ég vaknaði fyrir ca. hálftíma síðan en við eigum ekki að mæta útá flugvöll fyrr en átta.... svona er maður spenntur eins og börnin á jólunum :) En það er ágætt að byrja að snúa tímanum við í rólegheitunum þar sem það er átta tíma munur.
föstudagur, desember 17, 2004
Stutt í jólin :)
Ætla aldrei að kvarta yfir ruslpósti heima aftur. Hér er alltaf mikill ruslpóstur en í tilefni jólanna var ákveðið að allir skyldu eiga sinn eigin regnskóg og við höfum ekki undan að tæma póstkassann. Svo er maður nú einu sinni Íslendingur og verður að lesa í gegnum þetta allt til að vera örugglega viss um að missa ekki af einhverju stórkostlegu tilboði...... Það er líka eins og íbúafjöldinn í Kamloops hafi aukist um 100% því nú er umferðin svipuð og í Reykjavík og jafnerfitt að finna bílastæði og að troðast um í búðunum. Ég er svooooo fegin að vera nánast búin að öllu og ef það er eitthvað sem ég á eftir er ég svo heppin að geta farið fyrir tíu á morgnana.
Þar sem ég var í mollinu í morgun ákvað ég að setja Nínu Berglindi í klippingu. Gekk rosalega vel og hún sofnaði næstum í stólnum eins og venjuleg börn!!!! (var frekar hissa á þessu þar sem hún sofnar aldrei fyrr en hún er búin með batteríin) Eftir klippinguna var auðvitað blásið á henni hárið og sett glimmersprey a l´america. Hafði ekki hjarta í mér að segja hárgreiðslukonunni að við værum að fara í sund þar sem henni fannst svo gaman að dúlla við hana :)

mánudagur, desember 13, 2004
Jólarokk
Þvílíkt stuð var í gærkveldi í Christmas party BCLC.... góður matur, dansað og dansað.... var soldil ´89 stemmning í salnum "Hammer Time", "Funky Called Medina" og ég veit ekki hvað og hvað... hver man ekki eftir þessum hittum? Skemmtilegast var að fólk var alls ekki feimið við að fara á dansgólfið eins og heima á Íslandi þar sem fólk þarf að vera búið að fá sér allavega fimm GogT áður en þeir hreyfa stóru tá. Leiðinlegast var að annaðhvert lag var kántrí og það er ekki hægt að dansa við það nema línudans eða twostepp.
Það var svo auðvitað frekar leiðinlegt að þurfa að fara og sækja Nínu Berglindi fyrir miðnætti... væri gott að hafa næturpössun af og til eða allavega til eitt am!!
Svo vaknaði ég við sírenuvæl klukkan fimm í morgun og varð alveg snælduvitlaus... samdi þvílíka ritgerð í huganum um hvað það er fáránlegt að nota sírenur um miðja nótt í Kamloops þar sem allir vita að er ekki nokkur maður á ferli á þessum tíma nema maðurinn með sírenuna :/
Í morgun vöknuðum við svo hress og tilbúin til að fara með Nínu Berglindi á ballettsýninguna hennar. Héldum kannski að hún yrði ekkert alltof hress að láta alla horfa á sig og færi öll inní sig eins og hún hefur gert áður þegar hún þarf að sýna eitthvað en hún var þessi líka stjarna. Ekkert mál að fara frá mömmu og pabba og bíða baksviðs í hálftíma... nema hún gleymdi að biðja um að fara á klósettið og var því í spreng alla sýninguna en verandi professional dansari þá kláraði hún sitt og fór svo með mömmu á klósettið eftirá :)
Settum inn myndir og videó frá sýningunni og partýinu.

fimmtudagur, desember 09, 2004
Fyrsta snjóbrettaferðin
Þá er fyrsta snjóbrettadegi lokið. Fórum upp í Sun Peaks á sunnudaginn til að prufa nýju snjóbrettin. Það var tekin sú ákvörðun að vera með ekki neinn aumingjaskap og því skelltum við okkur bara strax í almennilega brekku. Ég held að maður læri mest á því. Alla veganna lærði ég að detta á ýmsan hátt. Ég vissi ekki einu sinni að það væri hægt að detta á svona marga vegu. Þetta var samt ótrúlega gaman og stefnan er að fara aftur sem fyrst enda líkaminn alveg að fara að jafna sig.
þriðjudagur, desember 07, 2004
CSI: Kamloops
Það er ótrúlegt hvað gerist í svona smábæjum útá landi í Kanada. Vinir okkar áttu hús hinum megin við ánna og eru nýbúin að selja og flutt annað (sem betur fer segi ég nú bara). Þau leigðu þar út kjallaraíbúðina en voru að henda leigjendunum út af því þau skulduðu leigu. Daginn sem þau áttu að afhenda íbúðina vorum við að hjálpa þeim að flytja og þrífa og svona og húsfrúin ákvað að kíkja niður í kjallara og athuga hvort þau væru ekki að fara að koma sér út en þá var bara rétt byrjað að pakka og allt skítugt. Daginn eftir hafði ekki spurst til þeirra og þess vegna þurftu þau að hóa saman helling af liði til að pakka afganginum af dótinu þeirra, flytja það í geymslu og þrífa. Haldið þið ekki að í dag hafi það verið í fréttunum að konan sem leigði hjá þeim hafi verið barin til dauða af tveimur mönnum......ég á ekki til eitt aukatekið orð.... aumingja konan, hræðilegur dauðdagi, get ekki sagt neitt annað. Svo er spurning hvort við höfum eyðilagt "the crime scene"!!! Bíð eftir að Grissom banki uppá til að fá fingraför og DNA sýni :/
föstudagur, desember 03, 2004
Sveinki Trump
Skelltum okkur í Santa´s parade síðustu helgi og fengum þetta líka fína veður - smá kuldi - en þurftum að standa ansi lengi til að fá að sjá Sveinka sjálfan. Fyrst var óendanleg röð af alls konar fólki að auglýsa sinn bissness og troða sælgæti í börnin... og að lokum kom sveinki í allri sinni dýrð í kastalanum sínum (!) og það varði í 5 sekúndur en við vorum fegin því á þeirri stundu vorum við tilbúin að stökkva í eldhraun til að hlýja okkur :/
Fórum svo í barnaafmæli til Ainsley vinkonu hennar Nínu Berglindar og það var rosa stuð. Að því loknu var ákveðið að skella sér í Aberdeen Mall til að freista þess að hitta sveinka aftur til að ná eins og einni mynd af karlinum með litlunni, þó það hafi þýtt að standa í biðröð í klukkutíma með fullt af ótrúlega þægum og þolinmóðum börnum. Nína Berglind hafði hitt hann fyrir utan þegar hann kom akandi að í limósínunni sinni (!) eftir að hafa lent í Kamloops í þyrlunni sinni (!) og hann var svo góður við hana og knúsaði hana í bak og fyrir - sem betur fer því þegar röðin kom að henni að setjast í fangið á honum að spjalla stökk hún til hans og þurfti ekkert á mömmu sinni eða pabba að halda :) og við fengum þessa fínu mynd af þeim saman til að minnast amerísku jólanna okkar.

fimmtudagur, desember 02, 2004
Afmæli + kúreka jól
Hún Regína á afmæli 2.desember og vill ég byrja á því að óska henni til hamingju með daginn. Það verður farið út að borða um kvöldið til að fagna afmælinu. Veit alla vegna um einn góðan stað sem Regína hefur ekki farið á en það eru nú ekki margir staðir sem við eigum eftir að prófa.
Við höfum ákveðið að vera yfir jólin hér í Kamloops og komum heim til Íslands morguninn 27.desember. Það verður gaman að hitta aftur fjölskylduna og vinina. Ekki skemmir fyrir að það bíður Dallas pakki eftir manni um áramótin.
Í tilefni af kúreka jólunum hér í Kamloops þá fékk ég mér tvo jóladiska, einn með Johnny Cash og hinn með John Denver. Þeir hafa fengið það hlutverk að koma mér í jólaskapið.
Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)