miðvikudagur, nóvember 24, 2004

Ása týnd og tröllum gefin...

...hlaut að koma að því. (Ása er dúkkan hennar Nínu Berglindar sem fór útum allt með henni frá því hún fæddist og var búin að fara nokkrum sinnum í þvottavélina til að hún myndi ekki valda sjúkdómafaraldri heima og svo framvegis...) Erum búin að leita dyrum og dyngjum að henni og spyrjast fyrir en enginn veit hvar hún er... hugsa að við foreldrarnir séum meira miður okkar en Nína Berglind sem var við það að missa áhugann á henni og virðist ekki kippa sér upp við að sofa með Ella elg í staðinn :) Hefði verið gaman að eiga hana og ramma hana inn fyrir Nínu svo hún gæti sýnt vinum sínum hana á unglingsárunum... (veit ekki alveg í hvaða heimi við lifum) en það eru til fullt af myndum af henni svo....
Nóg um það, erum mjög glöð að tilkynna að það er búið að panta far fyrir okkur heim milli jóla og nýárs og hlökkum við mikið til... erum menningarlega að svelta hérna :/ Sigtryggur verður í tvær og hálfa viku en við mæðgur í heilan mánuð... júhú!! leggjum af stað 26. des og verðum komin heim eldsnemma 27. des svo við poppum næstum beint inní árshátíð saumó...meira júhú!!
Talandi um menningu þá langar okkur að skella okkur í leikhús þegar við komum heim... einhverjar uppástungur? Mig langar mikið til að sjá "Þetta er allt að koma" en er tilbúin að skoða aðrar hugmyndir ef fólk hefur sterkar skoðanir á þessu :)
En það verður nú "Santa´s parade" á laugardaginn og svo teknar myndir af börnunum með sveinka í kringlunni á eftir og mikið gaman fyrir stubbana. Vona bara að það verði ekki of kalt en það snjóaði í fyrsta sinn hér niðrí bæ í gær og allt þakið snjó... kvarta ekki á meðan það verður ekki 15° frost eins og heima :/ Allt komið í jólagírinn hérna. Er búin að vera að hlusta á jólalög í meira en mánuð og búin að afgreiða nánast allar jólagjafirnar og þær komnar á klakann og föndra jólakortin og skrifa þau svo nú er bara að senda þau og byrja að baka með litlunni... núna fær hún að skreyta allar piparkökurnar... ætlum meira að segja að kaupa jólatré eftir sirka tvær vikur svo við getum notið þess áður en við höldum heim... jólaljós, jólaljós hátíð í bæ..... tralalala

4 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Hæ Regína, núna verðum við bara að hittast þegar þú kemur heim. Deildin mín lokar 22. desember og opnar ekki fyrr en 3. janúar þannig að ég verð í löngu fríi ;) og þú í fríi líka þannig að við verðum bara að tékka á Sigurbjörgu...hvernig líst þér á það ?
Alltaf gaman að fylgjast með ykkur hér á blogginu
Kveðja, Linda Naabye

Nafnlaus sagði...

fra Selmu Reginu systur...
samhryggist vegna Asu! oh hvad mig langar ad koma heim a fron og hitta ykkur xxx en thad verdur ad bida fram a vor :(
elva cailin laesti sig inna klosetti i gaer og var lokud inni i ruman klukkutima!! hef nu svolitlar ahyggjur af adgerdar/framtaksleysi barnapiunnar i neydartilvikum thvi hun gerdi ekkert blessunin - beid bara eftir ad eg hringdi heim!! elva greyid i heilmiklu uppnami thegar eg loksins nadi ad brjota nidur hurdina og na til hennar og mamman alveg ad farast. eftir ad eg var buin ad skola af elvu og gefa henni heitt kako var allt i lagi og hun vildi bara tala vid ommu ninu a islandi...
buin ad kaupa afmaelisgjof og jolagjof fyrir thig froken fix og sendi thetta med joa og mortu heim a fron, thau verda her i london um helgina.
heyri i ther fljotlega
luv u lots
xSelma the giant duck...

Nafnlaus sagði...

Well done!
[url=http://inmuhepd.com/oesr/zkjm.html]My homepage[/url] | [url=http://lkcjyflq.com/jype/oeih.html]Cool site[/url]

Nafnlaus sagði...

Great work!
http://inmuhepd.com/oesr/zkjm.html | http://mwgrazqa.com/goug/eayt.html