miðvikudagur, nóvember 24, 2004

Ása týnd og tröllum gefin...

...hlaut að koma að því. (Ása er dúkkan hennar Nínu Berglindar sem fór útum allt með henni frá því hún fæddist og var búin að fara nokkrum sinnum í þvottavélina til að hún myndi ekki valda sjúkdómafaraldri heima og svo framvegis...) Erum búin að leita dyrum og dyngjum að henni og spyrjast fyrir en enginn veit hvar hún er... hugsa að við foreldrarnir séum meira miður okkar en Nína Berglind sem var við það að missa áhugann á henni og virðist ekki kippa sér upp við að sofa með Ella elg í staðinn :) Hefði verið gaman að eiga hana og ramma hana inn fyrir Nínu svo hún gæti sýnt vinum sínum hana á unglingsárunum... (veit ekki alveg í hvaða heimi við lifum) en það eru til fullt af myndum af henni svo....
Nóg um það, erum mjög glöð að tilkynna að það er búið að panta far fyrir okkur heim milli jóla og nýárs og hlökkum við mikið til... erum menningarlega að svelta hérna :/ Sigtryggur verður í tvær og hálfa viku en við mæðgur í heilan mánuð... júhú!! leggjum af stað 26. des og verðum komin heim eldsnemma 27. des svo við poppum næstum beint inní árshátíð saumó...meira júhú!!
Talandi um menningu þá langar okkur að skella okkur í leikhús þegar við komum heim... einhverjar uppástungur? Mig langar mikið til að sjá "Þetta er allt að koma" en er tilbúin að skoða aðrar hugmyndir ef fólk hefur sterkar skoðanir á þessu :)
En það verður nú "Santa´s parade" á laugardaginn og svo teknar myndir af börnunum með sveinka í kringlunni á eftir og mikið gaman fyrir stubbana. Vona bara að það verði ekki of kalt en það snjóaði í fyrsta sinn hér niðrí bæ í gær og allt þakið snjó... kvarta ekki á meðan það verður ekki 15° frost eins og heima :/ Allt komið í jólagírinn hérna. Er búin að vera að hlusta á jólalög í meira en mánuð og búin að afgreiða nánast allar jólagjafirnar og þær komnar á klakann og föndra jólakortin og skrifa þau svo nú er bara að senda þau og byrja að baka með litlunni... núna fær hún að skreyta allar piparkökurnar... ætlum meira að segja að kaupa jólatré eftir sirka tvær vikur svo við getum notið þess áður en við höldum heim... jólaljós, jólaljós hátíð í bæ..... tralalala

föstudagur, nóvember 12, 2004

Long time no blog...

... en svona er þetta bara. Rosalega gaman í Chicago og fyrir þá sem ekki eru búnir að frétta það þá varð Chicago allt í einu borg elskendanna í vestri... Sigtryggur ákvað að biðja mín sem ég var auðvitað mjög ánægð með og sagði já... og allt komið á fullt í planeringum :)
Núna er líka verið að plana frí á heimaslóðir sem verður ekki leiðinlegt....

Annars hér fullt af Íslendingum eina ferðina enn og alltaf gaman að fá nýtt fólk til Kamloops... svo maður geti nú sýnt þeim "herlegheitin"!

Aðalmálið er nú samt að það er rétt rúm vika í að Sun Peaks opnar og við erum komin með snowboardin í hús og getum ekki beðið eftir að fá rasssæri :/

Nína Berglind er svo byrjuð að æfa fyrir jólaballettsýninguna og ég vona bara að hún verði ekki súperfeimin á sýningardaginn..... en ég stefni að því að taka upp generalprufuna svo fólkið heima geti séð ;)

Að lokum eru komin inn nokkur ný videó fyrir þá sem geta séð þau...

mánudagur, nóvember 08, 2004

Dallas Reunion

Átti góða kvöldstund fyrir framan sjónvarpið að horfa á Dallas Reunion þáttinn. Allar helstu stjörnurnar komu fram: Larry Hagman, Patrick Duffy og Linda Gray voru á staðnum ásamt fleirum. Verið að rifja upp allt það helsta sem gerðist í þáttaröðinni, viðtal við leikara o.fl. Þessi þáttur sannfærði mig enn þá meira að J.R. Ewing er flottastur. Þetta er skyldu áhorf fyrir Dallas menn.

miðvikudagur, nóvember 03, 2004

Komin heim

Nú erum við komin heim eftir ferðalag okkar til Vancouver og Chicago. Gistum 2 daga í Vancouver og náðum að skoða hluta af borginni en mikið er eftir. Það var farið í Sædýrasafnið, Stanley park, Science Museum og labbað um downtown Vancouver. Á rölti okkar um Stanley park rákumst við á Helga, Guðrúnu og son þeirra Ólaf en þau bjuggu í Vancouver í 8 ár og voru að heimsækja borgina sína. Fórum út að borða með þeim um kvöldið og áttum góða kvöldstund. Síðan var ferðinni haldið til Seattle. Við ákváðum að fara keyrandi á Big White og þegar við komum að landamærunum þá lentum við líka á þessum hressa landamæraverði. Rosalega hljóta þeir að skemmta sér í vinnunni, eennnnúúú. Töluðum við nokkra verði áður en við komumst í gegn og ekki eitt bros allan tímann. Þegar við nálguðumst vöggu grunge-ins þá var ákveðið að athuga útvarpsstöðvarnar og auðvitað var Nirvana á fóninum. Svo það var bara tjúnað í botn og þotið að flugvellinum til að ná fluginu til Chicago.
Í Chicago tóku Jóhann Dal og Isabella á móti okkur. Þau eru höfðingjar heim að sækja. Jóhann guidaði okkur um borgina eins og hann hefði aldrei gert neitt annað. Ef einhver er á leiðinni til Chicago þá mælum við með veitingastaðnum Topo Gigios... vinsæll hjá mörgum stjörnum eins og t.d. Seinfeld. Einnig fórum við tvisvar á Green Mill sem er elsti jazzbar Bandaríkjanna og á sínum tíma vöndu Al Capone og Charlie Chaplin komu sína á þennan stað. Þar hlustuðum við á Kurt Elling og Michal Urbaniak. Það var virkilega gaman að fara þangað því þetta er staður með sál. Þarna rættist gamall draumur hjá mér.
Síðasta helgi var halloween helgi svo við skelltum okkur til Hrannar frænku hennar Regínu í úthverfi Chicago til að leyfa Nínu Berglindi að prufa "trick or treat". Hún skemmti sér mjög vel og náði að fylla pokann sinn af nammi sem hún gaf svo pabba sínum :)
Þegar þessu ferðalagi var lokið þá keyrðum við í einum rikk á highwayinum frá Seattle til Kamloops syngjandi lag eftir David Brent.
"Free love on free love freeway
the love is free and the freeways long
I got some
hot love on a hot love highway"

Það eru komnar inn myndir frá ferðinni í Október möppuna.