Annars er Regína byrjuð að plana ferðina okkar til Vancouver. Ég hlakka til að fara þangað því fólk sem ég hef talað við segir að hún er falleg borg og mikið að sjá.
Einnig ætlum við að fara í verslunarleiðangur þar. Búðirnar hérna hafa ekki mikið úrval og ég veit að Regína verður virkilega ánægð ef við gætum komist í IKEA búð í leiðinnni :) Það var keypt "Coupon" bók um daginn þar sem við eigum að geta fengið hina ýmsu afslætti í búðum, veitingastöðum og hótelum. Sé fram á að við getum sparað okkur góðann pening á hótelafsláttunum.
Nú er bara að finna tíma fyrir ferðalagið.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli