fimmtudagur, október 21, 2004

Frávita forseti...

...frávita kjósendur, stórþjóð á barmi taugaáfalls. Sjónvarpið gerir alla vænisjúka og mig líka... þessi einu sinni sallarólega unga kona er að breytast í frávita húsmóður! Það er einhver huggun að vera réttu megin við landamærin eins og ég er farin að kalla það og ég viðurkenni að ég er soldið stressuð að krossa yfir í næstu viku en það er huggun í því að vera komin "heim" aftur fyrir kosningar...
En á jákvæðari nótum þá hlakka ég mikið til að keyra til Vanouver í fyrramálið... margir sem segja að það sé ein fallegasta borg í heimi... ekki amalegt það.... svo er aldrei að vita nema við rekumst á eitt stykki björn á leiðinni... það eru allir að segja við okkur "jú þið fáið að sjá björn þeir eru útum allt núna, það var einn í bakgarðinum hjá mér í gær" .. en við sjáum aldrei neinn... fórum meira að segja á bjarnarrúnt um daginn árangurslaust.
Hlakka líka mikið til að hitta fjölskylduna sem ég á í Bandaríkjunum og fara "trick or treatin´" með Nínu Berglindi á Halloween... kann ekki mörg trick svo ég vona að við fáum mikið af treatum!
Við biðjum bara að heilsa í bili... þessi fjölskylda er farin í frí :)

sunnudagur, október 17, 2004

Nú mætti gashitarinn fara að virka

Nú er haustið formlega komið, gerðist eiginlega bara í gær. Farið að vera undir 15° meirihluta dagsins og létt rigning af og til. Frekar notalegt að fá haustið svona í rólegheitunum en ekki með hávaðaroki og rigningu eins og heima :/
Erum búin að hafa það bara nokkuð gott um helgina. Ég fór óvænt á djammið á föstudagskvöld og það var bara rosalega gaman (gaman að rekast á fólk sem maður kannast við inná stöðunum).... á laugardaginn byrjuðum við á að fara í afmæli til Sierru vinkonu hennar Nínu Berglindar og svo fóru konurnar í "Babyshower" fyrir Moniku (maðurinn hennar vinnur hjá lotterí hér í bæ eins og svo margir aðrir). Ég bjóst við að þetta yrði eitthvað hræðilega væmið og var búin að búa mig undir það en svo var þetta bara mjög gaman. Held að það væri alveg hægt að taka þetta upp heima á Íslandi og ánægðastir yrðu karlarnir... að losna við að hlusta á endalausar fæðingasögur og brjóstagjafasögur og svo framvegis..... það var farið líka í nokkra létta leiki, borðað og svo fékk nýbakaða barnið auðvitað fullt af gjöfum :) Eftir sturtuna skelltum við okkur á go-kart braut með softball liðinu okkar góða og Sigtryggur sló í gegn á venjulegu bílunum (hann er svo mikil hetja þessi elska) áður en einhver ákvað að hægja á bílnum hans... meiri vitleysan... svo fóru aðrir á power go-kart og það er greinilega skemmtilegra því þeir fara náttúrulega miklu hraðar. Ætlaði að fara með Nínu Berglindi á tvöfaldan og var búin að borga og allt... sem tók sinn tíma því blessaði gaurinn sem var að vinna þarna gat ekki litið uppúr tölvuleiknum sem hann var að spila.. þegar ég kom út var bara einn tvöfaldur bíll til og hann var upptekin... svo ég fer inn aftur og reyni að ná athygli mannsins frá fótboltaleik í þetta sinn og segi honum að ég vilji bara fá endurgreitt..."nei, nei þú ferð bara þegar hinir eru búnir!" þá fauk í mig eins og mín er von og vísa og ég hellti mér aðeins yfir hann og sagði ".. dettur þér virkilega í hug að ég ætli að hanga hér í 80 mínútur með þriggja ára barn og fara svo ein útá brautina... í myrkri...???" ".. ok en ef þú vilt fá endurgreitt þá verðurðu að bíða eftir konunni minni því ég kann ekki á kassann!!!" Sumt fólk er bara ekki að nenna vinnunni sinni!!!! Sem betur fer þurfti ég ekki að bíða lengi eftir konunni hans.... og hún greyið var svo heillengi að finna útúr því hvað hann hefði gert á kassanum og hvað hann hefði rukkað mig um mikinn pening....
Ætluðum svo að fara í softball partí á eftir en ég og Nína Berglind vorum alveg að verða búnar á því svo við fórum heim og Sigtryggur heim til Chris að spila Doom eða eitthvað álíka huggulegt.
Í dag á svo að gera tilraun til að fara í bíó með frumburðinn ... í þriðja sinn á hennar stuttu ævi... alltaf að gera eina tilraun á ári þar til hún situr kyrr allan tímann... félagsmótun á háu stigi.... Hún er líka orðin meiri sjónvarpsglápari svo það er aldrei að vita... 7 9 13

miðvikudagur, október 13, 2004

Video

Erum búin að bæta við Video-um af Kamloops fjöldskyldunni sem hægt er að nálgast hægra megin á síðunni. Sum video eru nokkuð stór en þar sem flestir íslendingar eru komnir með ADSL þá ætti það ekki að stöðva ykkur.
Annars er Regína byrjuð að plana ferðina okkar til Vancouver. Ég hlakka til að fara þangað því fólk sem ég hef talað við segir að hún er falleg borg og mikið að sjá. Einnig ætlum við að fara í verslunarleiðangur þar. Búðirnar hérna hafa ekki mikið úrval og ég veit að Regína verður virkilega ánægð ef við gætum komist í IKEA búð í leiðinnni :) Það var keypt "Coupon" bók um daginn þar sem við eigum að geta fengið hina ýmsu afslætti í búðum, veitingastöðum og hótelum. Sé fram á að við getum sparað okkur góðann pening á hótelafsláttunum.
Nú er bara að finna tíma fyrir ferðalagið.

þriðjudagur, október 12, 2004

Þakkargjörð

Fengum okkar fyrsta þakkargjörðarkalkún í gærkvöldi, hann var mjög góður og þetta var skemmtilegt af því það er ekki mikið um hátíðleg kvöldverðarboð hérna... en ég er ekki enn búin að ná því um hvað þessi hátíð snýst. Það var aðallega verið að grínast með það að Kanadabúar taka sér annarra þjóða hátíðisdaga til að geta fengið frí í vinnunni... svo vonandi kemst ég að meiru þegar ég fer yfir til Bandaríkjanna og fæ þakkargjörðarmáltíð þar :) Svo var líka verið að gera grín að veiðimönnum sem klæða sig upp í "camouflage", setja á sig "night vision goggles" og vefja um sig skotbeltum til að veiða hátíðarkalkúninn þegar varnarmekanísmi greyið fuglanna er að standa kyrr....
Fengum svo pumpkin pie í eftirrétt. Mér hefur alltaf fundist allir sem hafa smakkað svona tala um að þetta sé ekki gott og væri bara borðað útaf hefðinni svona eins og rjúpurnar heima...hahaha!!! En þetta var bara mjög gott, minnti soldið á epla pie en ekki eins sætt...
Eftir matinn var svo spilað Trivial Pursuit - sem, fyrir þá sem ekki vita, var "fundið upp" í Kanada... við stóðum okkur nú ekkert sérstaklega vel Íslendingarnir og ekki að furða þar sem enginn virðist vita mikið um Kanada hvort sem þeir eru Kanadabúar eða ekki!(....þetta er nú kannski soldið fyrir neðan beltisstað biðst afsökunar fyrirfram ef einhver frá Kanada er að lesa þetta og skilur íslensku).

fimmtudagur, október 07, 2004

Lögregluvangeta

Gleymdi alveg að minnast á handtökuna sem við urðum vitni að um daginn!! Nína Berglind fór í pössun á North Shore sem er álitið svona slæmt hverfi hér í bæ en er samt ekkert svoooo hræðilegt.... við skelltum okkur út að borða tvö og í bíó sem hefur ekki gerst síðan síðasta vor held ég.... það var gaman - fórum á Bourne Supremacy sem var allt í lagi.. fín spennumynd - ég nagaði allavega af allt skinnið innan á vörunum..... Svo þegar við vorum að sækja litluna sáum við lögreglubíl fyrir utan húsið sem Gloria - sem var að passa - á heima í og ég fékk hland fyrir hjartað verandi í Ameríku og svona þið skiljið... svo sáum við fyrir framan lögreglubílinn lögreglumann ofan á "..hinum grunaða" að reyna að setja hann í handplast en var ekki að meika það og hann var líka bara einn... við algerar skræfur hlupum bara inn í húsið og vonuðum að það kæmu fleiri lögreglumenn til aðstoðar.... sem og gerðu og allt í einu voru fimm vopnaðir lögreglumenn og einn borgari sem birtist uppúr þurru að reyna að setja einn gaur í annarlegu ástandi í handplast.... og það tókst á endanum sem betur fer... á meðan horfðum við á atganginn út um gluggann. Nína Berglind var heil á húfi og Gloria líka svo ég var glöð....

miðvikudagur, október 06, 2004

Gestabók

Halló halló allir saman... ef þið viljið skrifa í gestabók þá er hún í myndaalbúminu... fæ kannski Sidda sæta til að setja link á forsíðuna. Alltaf gaman að sjá hverjir eru að kíkja á síðuna :)

Tengdamamma og mágkonur mínar eru svo að fara til Barcelona eftir viku og væri ég auðvitað að fara með ef ég væri ekki hinum megin á hnettinum!! Vona bara og veit að þær skemmta sér vel og ekki spillir fyrir að ein þeirra bjó í Barcelona og þekkir því borgina vel.... Vona líka að þær hugsi til mín og sakni mín á meðan.... Ég á góðar minningar frá Barcelona sem ég get yljað mér við í staðinn :)

Bye for now

þriðjudagur, október 05, 2004

BallBusters

Kepptum á okkar fyrsta softball móti um helgina og stóðum okkur eins og hetjur bara. Ég er farin að ná tökum á þessu akkúrat þegar seasonið er búið... kannski verð ég hérna þegar vordeildin fer af stað aldrei að vita.
Urðum í öðru sæti í okkar riðli sem er neðsti riðillinn en það skiptir mestu máli að taka þátt og skemmta sér er það ekki? Fengum peningaverðlaun (sem breyttust fljótt í bjór) og boli sem voru bara í X-large svo það var eins og ég væri ekki í neinum buxum og allir þurftu að minnast á það:|
Ég er allavega orðin mjög hrifin af þessu sporti og gæti vel hugsað mér að flytja það heim, það geta allir verið með konur, karlar, ömmur, afar og svo framvegis. Alvöru fjölskyldusport....

Veðrið var líka alveg geggjað sól og 20°hiti, að minnsta kosti eftir hádegi. Spiluðum einn leik klukkan 8.00 á sunnudags-morguninn og þá var ekki alveg stuttbuxnaveður en samt í lagi. Það bjargaði náttúrulega alveg málunum að Savannah vinkona hennar Nínu Berglindar var á staðnum svo þær léku sér bara á meðan við lékum okkur :) Svo er skrokkurinn eitthvað í ólagi í dag gat varla gengið (spurning hvort það sé aldurinn sem er að segja til sín eða eitthvað annað) en það jafnaði sig eftir nokkrar sundferðir og gufu...

Bestu fréttirnar eru svo að Tryggingamiðstöðin ætlar að borga tjónið sem við urðum fyrir í London útá kortatrygginguna:) Ekkert vesen og verið að fela sig á bak við smáa letrið eins og blessaða tryggingafélagið okkar gerði. Við erum í sjöunda og getum farið að kaupa okkur vetrarföt, júhúú!!!

laugardagur, október 02, 2004

Nýjar myndir og Rogers leaving me moneyless

Loksins eru komnar nýjar myndir inn á vefinn. Ferðalagið um Rocky Mountains og afmælið hennar litlu og fleira.... endilega kíkið.

Annars vorum við að uppgötva að það er alltaf verið að plokka peninga af okkur!!! Var að kíkja á símreikninginn okkar Sigtryggs fyrir GSM símana og hann er himinhár.... fór og talaði við karlinn hjá Rogers Wireless sem seldi mér símana og planið sem við erum með og langaði mest að slá hann utanundir þegar hann sagði að við værum að borga 30 sent eða 17 krónur á mínútuna ef við erum í símanum hvort sem við hringjum eða einhver annar.... sem sagt ef við tölum í símann við einhvern annan en hvort annað þá erum við að borga þetta á mínútuna... svo ég bið ykkur sem hringið vinsamlegast að hringja í heimasímann okkar - plís. Þetta á líka við um símakortin sem ég var svo ánægð með ekki alls fyrir löngu... meira plokkið. Svo var einhver kona við hliðina á mér sem fannst hún endilega þurfa að commenta á allt sem hinn elskulegi Bryce sagði við mig eins og "... to many I love you´s, dear" og ".. stick to the limit dear.." hvað er fólk að skipta sér af því sem því kemur ekki við.... daaahhh

Duttum soldið niður í heimþrá fyrir helgina en náðum að tala okkur saman uppúr því og skelltum okkur svo í póker í gærkvöldi. Ég spilaði ekki en Sigtryggur fór á kostum og náði að vinna innborgun á símreikninginn :) En ég var að fylgjast með og læra svo ég spila kannski næst, þau spila á þriggja vikna fresti og eru með alvöru pokerchips og svona. Ég þarf bara að æfa pókerface-ið mitt því ég hef aldrei verið góð að halda andlitinu.....

Næst á dagskrá er svo að ég er að fara í magadans með Lauru og mágkonu hennar, Corrine. Það gæti verið gaman, ég missti nefnilega af pilates tímunum og næsta holl byrjar ekki fyrr en í nóvember - og ég er búin að kaupa mér almennilegan sundbol svo ég get farið að synda líka...