miðvikudagur, september 29, 2004

Afmælisstelpa

Þá er það búið afmælið hennar Nínu og gekk bara vel. Takk kærlega fyrir allar gjafirnar að heiman :)

Við bjuggum náttúrulega til alltof mikinn mat og erum enn að narta í afgangana, erum vön að hafa þrisvar sinnum fleiri gesti... Hún fékk vinkonur sínar af leikskólanum í heimsókn og þær léku sér inni með allt dótið sem hún fékk en fullorðna fólkið sat úti í sólinni. Það er búið að vera alveg frábært veður, sól og 15-20° hiti alveg akkúrat fyrir mig :) Eftir afmælið fórum við á softball leik með liðinu í vinnunni hans Sigtryggs. Sigtryggur sló í gegn og er orðin virtur meðlimur á meðan ég sem hef ekki staðið mig nógu vel er notuð þegar vantar stelpur í liðið - það verða nefnilega að vera 4 stelpur í liði til að það megi keppa. En þetta er skemmtilegt og allir hvetja mann áfram þó maður hvorki hitti boltann né grípi hann :) mér líður stundum eins og persónu úr teiknimyndunum um Kalla Bjarna! Það verður mót um helgina og aldrei að vita nema maður fái að taka í eina kylfu eða svo.....

Við gáfum svo Nínu Berglindi lítið hjól með hjálpardekkjum í afmælisgjöf og hún er bara að standa sig eins og hetja á því. Vonandi fáið þið að sjá myndir af henni fljótlega á fartinni....
Hún er líka orðin dugleg í ballettinum, í fyrsta tímanum þurfti ég að dansa meira en helminginn af tímanum með litlu stelpunum en slapp í dag :D Það er stepp í hálftíma og svo ballett í hálftíma og henni finnst rosalega gaman. Hún er líka orðin hressari í sundinu og ég get skroppið frá á meðan og synt nokkrar ferðir - (eða ég gæti það ef ég hefði ekki gleymt sundbolnum heima og toppurinn sem ég er í er ekki beint gerður til að halda "my bossom" á sínum stað...haha svo ég syndi bara baksund þangað til ég finn almennilegan sundbol hérna!)

Svo er náttúrulega aðalfréttin að snúllan hætti uppá eigin spýtur að nota dudduna!!! Við vorum að búa okkur undir stríð á afmælisdaginn hennar en tveim dögum áður hætti hún bara að nota hana og hefur varla minnst á duddur síðan :) Við erum auðvitað í skýjunum en hún er aðeins að herma eftir vinkonu sinni henni Sierru sem hefur aldrei notað duddur heldur sýgur bara þumalinn..... En Nína Berglind reynir aftur á móti að troða allri hendinni uppí sig svo það er ekki eins sætt :D

miðvikudagur, september 22, 2004

"Rocky Mountain High"

Tatara... loksins komin með skrifborð :) var orðið frekar leiðinlegt að sitja alltaf á gólfinu og reyna að gera eitthvað í tölvunni - komin með talsvert sigg á olnbogana líka.
Ætlum að halda uppá afmælið hennar litlu á sunnudaginn - það verður allavega ekki eins fjölmennt og síðastliðin afmæli hjá henni!!! Minni vinna fyrir okkur :)
Hún er búin að biðja um bangsímon hjól í afmælisgjöf og ætli við verðum ekki við því, erum helst að velta fyrir okkur hvort hún sé orðin nógu stór til að fara á lítið hjól með hjálpardekkjum eða hvort þríhjól sé ekki bara nóg fyrir hana... einhver comment?
Svo byrjar hún í ballett í fyrramálið og er búin að vera að æfa sig talsvert - alger rúsína tekur þessu svo alvarlega :) (minnir kannski á einhvern?!)
Skelltum okkur í "smá" -bíltúr um helgina. Keyrðum alla leið að Lake Louise sem er í klettafjöllunum "Rocky Mountains" og gistum þar eina nótt og keyrðum svo til Banff sem er þekktur bær hjá skíðafólki. Rosalega fallegt þarna og gaman að róa í rólegheitunum á kanó og drekka heitt kakó því það var orðið ansi kalt svona hátt uppi - ætli við höfum ekki verið 1000 m.y.s. eða meira. Gistum á Paradise Lodge sem er sveitalegt og kósý og gætum vel hugsað okkur að leigja kofa þarna síðar meir. Svo vorum við stoppuð á leiðinni heim fyrir of hraðan akstur og hann var svona hrikalega alminnilegur mounty-inn að gefa okkur bara aðvörun. Hann var nú ekki í rauðum jakka með brúnan hatt og á hestbaki eins og ég ímyndaði mér að þeir væru :) Það verður ekki tekið af Kanadabúum að þeir eru kurteisasta þjóð í heimi - ekki svo leiðinleg steríótýpa það.
Svo erum við búin að kaupa okkur passa til að geta stundað snjóbretti af ákafa í Sun Peaks... get varla beðið :/

mánudagur, september 13, 2004

Orkuhelgi

Það var ansi mikið gert um helgina og langt síðan við höfum dúllað okkur svona sem fjölskylda. Við fórum á Laugardaginn í Wells Grey Park sem er ca. 1 og 1/2 tíma keyrsla norður af Kamloops. Það er mjög stór þjóðgarður og við skoðuðum nokkra fossa og einn gamlan bóndabæ eða Homestead eins og það er kallað hér þar sem frumbyggjar (aðrir en indíánar) bjuggu. Við þurftum að ganga svolítinn spöl til að komast að húsinu og hálfa leiðina byrjaði að rigna soldið og svo heyrðum við bara geðveikan nið og svo dembdi yfir okkur þessi þvílíka rigning og aumingja Nína Berglind varð svo hrædd en sem betur fer vorum við nýbúin að kaupa kúrekahatta á okkur öll svo það var allavega einhver þurr blettur á okkur þegar við komum til baka. Þetta var alveg magnað og allir litirnir ýktust einhvernveginn því það var líka sól og mér leið svona eins og við værum ein í heiminum langt frá allri siðmenningu og bara náttúran... var hálfpartinn að vonast eftir að sjá svartan björn því þeir eru algengir á þessum stað en hann kom ekki því miður. Ray Farm er núna orðinn einn af uppáhaldsstöðunum mínum :)
Daginn eftir var ákveðið að skella sér á Jet ski og fundum við eftir mikla leit leigu sem var ennþá opin því það er búið að vera óvenju kalt síðustu þrjár vikur miðað við árstíma. Og það var krúsað um Shuswap vatn þvert og endilangt og Nína Berglind fór með og það var ótrúlega lítið mál en hún var ekkert of hrifin af því að fara 180° beygju !! Við vorum nú aldeilis ekki búin að fá nóg af vatninu eftir klukkutíma svo við ákváðum að leigja okkur lítinn spíttbát líka...... svo ætluðum við að borða á Qaaout Resort sem er byggt á hefðum frumbyggjanna og ætluðum að fá okkur elg í forrétt og vísund í aðallrétt og svona en það var akkúrat að loka þegar við komum svo við verðum að kíkja seinna bara og ég hlakka til :) Alveg að drekka inn alla þessa indánamenningu og líf allra frumbyggja hér.... veit ekki hvort Sigtryggur er eins spenntur fyrir því og ég en hann hefur komið talsvert á óvart malbiksdrengurinn úr vesturbænum......

laugardagur, september 11, 2004

Jæja....

...hafið þið sem lesið þetta reglulega tekið eftir því hvað ég byrja oft að blogga með orðinu jæja?!!! Hvað er málið? Ég er búin að vera að pæla í þessu orði og ég botna ekkert í því hvað það þýðir en því meira sem maður pælir í orðum því minna skilur maður þau er það ekki - á ekki íslenskan að vera gegnsætt tungumál...hmmmmm

En nóg um það ég er allavega búin að fatta þetta núna og batnandi konu er best að lifa:) Við erum að minnsta kosti heil heilsu eftir næturgolfið og það var mjög gaman - er soldið ryðguð og finnst eins og ég hafi sturtað peningunum sem ég eyddi í golfkennsluna á sínum tíma niður á hafsbotn. Það var semsagt sjálflýsandi kúla og holurnar voru sjálflýsandi og flöggin og svo voru allir með allskonar sjálflýsandi dót á sér og þetta var mjög vírað... ætla að sjá hvernig myndirnar koma út og sýni ykkur þær ef það er eitthvað varið í þær. Þetta gekk nú samt ágætlega þar sem spilað var í fjögurra manna liðum og besta höggið gilti svo flestar holurnar voru farnar á fugli eða pari.... en það voru nokkrir sem létu það eftir sér að fara úr fötunum og strípast aðeins á meðan á spilinu stóð en enginn í okkar liði svo við misstum af því stuði:)

Annars frábært veður og við ætlum að skella okkur í fjölskylduferð útí sveit að elta gamla geit.....

þriðjudagur, september 07, 2004

Tölvuvírus og Ikea

Jæja þá er ég orðin gráhærð.... blessuð tölvan er að gera mig vitlausa því það er einhver vírus í henni og Sigtryggur þarf að setja hana upp aftur - ég fékk allavega skýrt nei að ég gæti það ekki því ég er ekki töluvnörd!
Annars er ég byrjuð á ljósmyndanámskeiðinu og er strax búin að læra heilan helling og hlakka til að halda áfram, svo er ég á fullu í leikfiminni og er öll að koma til bara - líkamlega sko, var farin að fá alls konar krampa og vesen eins og ég fæ þegar ég hreyfi mig ekki í langan tíma. Svo er Helga að fara heim á morgun og það er soldið skrýtið því hún er búin að vera hér í sex vikur.... eigum öll eftir að sakna hennar mikið en það eru enn Íslendingar hér og verða út september en eftir það verðum við bara litla fjölskyldan í góðan tíma :)
Ég er líka byrjuð að plana smá frí fyrir okkur og stefnan er að taka það um miðjan október. Þá verður krúsað yfir landamærin til Seattle og svo flogið til Chicago að heimsækja ættingja sem ég á þar og svo flogið til baka og keyrt upp til Vancouver og kannski gist á Vancouver eyju en þar er víst geggjað flott. Spurning hvort maður stoppi þá ekki í Ikea sem er besta búð í heimi hef ég komist að.... sakna hennar allavega þvílíkt þar sem ég hef þurft að kaupa í búið á hinum ýmsu stöðum og allt frekar ósmart og ekki eins ódýrt og þar - áfram Ikea!

Á föstudagskvöldið ætlum við í næturgolf og það verður áhugavert því golfvöllurinn verður ekki upplýstur og allir verða með glowstick á sér til að fá ekki kúluna í hausinn :) Þá er bara að vona að við fáum barnfóstru því hún Candace sem hefur passað Nínu og Sierru vinkonu hennar er að byrja í háskólanum og hefur sífellt minni tíma til að bjarga okkur fyrir horn......
Allavega ef þið heyrið ekki frá okkur eftir helgi þá höfum við fengið kúlu í hausinnog misst minnið :/