þriðjudagur, ágúst 03, 2004

Stelpukvöld

Skelltum okkur útá lífið á föstudagskvöldið. Það var mjög gaman. Vorum semsagt sjö stelpur og fórum á held ég eina klúbbinn í bænum sem heitir Rivers. Byrjuðum reyndar heima hjá Chris og Lauru og fórum svo á pöbb. Strákarnir ákváðu að skella sér líka og Chris var svo sniðugur að redda pössun fyrir Nínu Berglindi líka. Það var dansað og dansað á Rivers og ég var alveg að verða uppgefin því það er svo langt síðan ég hef reynt eitthvað á mig...... ekki gott. Ætla að skella mér í YMCA & YWCA þar er víst kennt bæði jóga og pilates svo er það í göngufæri frá nýja húsinu - held þetta séu bara örlög.
Hittum svo strákana í mat á Denny's af öllum stöðum klukkan 2 um nóttina og þar var haldið áfram að skralla. Mjög vel heppnað kvöld og Nína Berglind sofnaði held ég bara fyrir tíu sem er nánast met hjá henni.

nú verð ég svo reglulegar á netinu þar sem ég fæ tölvu á morgun og vonandi nettengingu fyrir helgi :-)

1 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Heil og sæl, Regína okkar, við Nína (Elínborg) erum að kíkja á síðuna þína fínu. Gaman að fá að heyra frá ykkur. Til hamingju með nýja heimilið og nýju rúmin. Þið eruð greinilega vinsæl þarna úti, bara að partýa alla daga! Hvað varð um ábyrgu Regínu okkar, bara orðin villt BBQ partýdýr!!! Jæja við erum bara mjög glaðar yfir því hversu vel gengur hjá ykkur en við söknum þín náttúrulega ofboðslega mikið, mikið, snökt, snökt. Knús og kossar frá GG. Kveðja Nína og Elínborg