þriðjudagur, ágúst 24, 2004

Rigning og kalt á Hótel Regínu

Loksins get ég farið að vera í buxum og langermabolum og ég er svo ánægð en Sigtryggur ekki..... en það á að fara að létta til og þá verður vonandi ekki aftur eins heitt og hefur verið, góð tilbreyting og dregur úr heimþránni :)
Svo komu fleiri Íslendingar í gær, Árni og Björk, og Hótel Regína opnaði formlega þar sem Árni gistir hjá okkur... það var reyndar svolítið stjórnunarlegt klúður sem olli því að rúmið hans var ekki komið og hann þurfti svo að halda á því uppá þriðju hæð þegar hann var búinn að sækja það (með sigtryggi).... en nú verður bætt úr því.
ciao

1 ummæli:

Arni Thor sagði...

Sæl, Árni hérna í herbergi 001. Get ég fengið sent upp á herbergi 2kg af rauðum lakkrís, rifjasteik og djúpsteikt Mars takk...